Fréttir
30.6.2008
Ţensla á húsnćđismarkađi var fyrirséđ
27.6.2008
Stađan orđin mjög alvarleg
27.6.2008
Samiđ viđ flugumferđarstjóra
27.6.2008
Stefna SVŢ í Evrópumálum
24.6.2008
Stefnumót atvinnulífsins í Evrópu 2009
22.6.2008
Nauđsynlegt ađ breyta skipulagi Íbúđalánasjóđs
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við fréttastofu Útvarps nauðsynlegt síðar meir að breyta skipulagi Íbúðalánasjóðs og afnema ríkisábyrgðina á skuldbindingum sjóðsins. Það eigi að vera tímabundin ráðstöfun að Íbúðalánasjóður hafi milligöngu um að útvega bönkum lausafé. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar á fasteignamarkaði muni milda áhrifin af þeim samdrætti sem framundan sé en fleira þurfi að gera. Það stefni í alvarlegan efnahagssamdrátt á komandi misserum og vaxtastigið sé alltof hátt. Ekki séu aðstæður fyrir svo gríðarlega aðhaldssama peningastefnu þegar stöðnunar og samdráttar gæti í samfélaginu. Lækka þurfi stýrivexti og huga að atvinnuuppbyggingu með því að fara að krafti í orkuframkvæmdir.
19.6.2008
Um verkfallsbođanir Félags íslenskra flugumferđastjóra
Félag íslenskra flugumferðastjóra (FÍF) hefur boðað til 20 sjálfstæðra verkfalla frá 27. júní - 20. júlí til að knýja á um samþykkt krafna þeirra í viðræðum við Samtök atvinnulífsins og Flugstoðir ohf. Í aðalatriðum fela kröfur félagsins í sér u.þ.b. 30% sérstaka hækkun launa auk ýmissa breytinga sem leiða myndu til verulegra skertra stjórnunarheimilda ef á þær yrði fallist. Launakrafa félagsins er byggð á túlkun á 11 ára gamalli úttekt á réttarstöðu flugumferðastjóra sem unninn var á grundvelli þess að flugumferðastjórar höfðu í reynd ekki verkfallsrétt á þeim tíma. Í ljósi þess er skýrt að umrædd úttekt hefur enga þýðingu nú í viðræðum FÍF við Samtök atvinnulífsins og Flugstoðir ohf.
19.6.2008
Ný hugsun í forystu og stjórnun
16.6.2008
Sveigjanleikaákvćđi mikilvćgur hluti Kyoto-bókunarinnar
13.6.2008
Barcelona myndi falla ef ţví vćri stjórnađ eins og háskóla
12.6.2008
Auka ţarf ađgang ađ lánsfé
12.6.2008
Íslenskir feđur taka ţýska karla í nefiđ
11.6.2008
Rćtt um hópmálsóknir innan ESB
Á vettvangi Evrópusambandsins (ESB) er nú mikið rætt um hvort samræma eigi löggjöf aðildarríkja um hópmálsóknir og þá með útgáfu nýrrar tilskipunnar ESB. Hefur framkvæmdastjóri ESB á sviði neytendamála, Meglena Kuneva, sýnt slíkri löggjöf mikinn áhuga. Samtök atvinnulífsins í Evrópu, BUSINESSEUROPE, hafa hins vegar vakið á því athygli að óeðlilegt sé að ESB sé beinlínis að hvetja til lögsókna með löggjöf sinni. Vænlegra sé fyrir alla aðila, jafnt einstaklinga sem fyrirtæki að leggja fremur áherslu á og styrkja þau úrræði sem nú þegar eru til staðar og hægt er að sækja utan dómstóla s.s. til gerðardóma, sáttameðferða og kærunefnda.
9.6.2008
Útstreymistilskipun ESB hefur mikil áhrif á flugsamgöngur
5.6.2008
Brýn verkefni ríkisstjórnarinnar
5.6.2008
Verđbólguspár Seđlabankans grafa undan peningastefnunni
5.6.2008
Ríkisađstođ á Íslandi međal ţess lćgsta í EES löndum
5.6.2008
Loftslagsviđrćđur standa yfir í Bonn
Í þessari og næstu viku standa yfir í Bonn loftslagsviðræður nánast allra ríkja heim. Viðræðurnar fara fram eftir áætlun sem ríkin komu sér saman um á Balí í desember á síðasta ári. Ferlið hófst í Bangkok í byrjun apríl og mun halda áfram í Ghana í ágúst og í Póllandi í desember. Á árinu 2009 verða svo mikil fundahöld sem ætlunin er að standi í 8 - 10 vikur áður en þeim lýkur á tveggja vikna ráðstefnu í Kaupmannahöfn í desember 2009. Pétur Reimarsson, forstöðumaður hjá SA, er staddur í Bonn og fylgist með viðræðunum og lýsir þeim hér, m.a. áherslum Íslands og vandanum sem við er að glíma.
5.6.2008
Konum fjölgar í stjórnum og ćđstu stjórnendastöđum
Rannsóknasetur vinnuréttar hefur birt upplýsingar um hlutfall kvenna í stjórnum og meðal æðstu stjórnenda í 120 stærstu fyrirtækjunum á Íslandi fyrir árið 2008. Helstu niðurstöður eru þær að konur skipa 13% stjórnarsæta og eru æðstu stjórnendur fyrirtækja í 8% tilvika. Hlutfall kvenna meðal æðstu yfirmanna, þ.e. þeirra sem koma næstir í skipuriti á eftir æðsta stjórnanda, er 19%. Þetta er jákvæð breyting frá árinu 2007 því konum hefur fjölgað milli ára í stjórnum og æðstu stjórnendastöðum. Í þrettán af 120 stærstu fyrirtækjum landsins er stjórnarformaðurinn kona en árið 2007 voru aðeins þrjár konur stjórnarformenn í 100 stærstu fyrirtækjunum. Þeim fyrirtækjum fækkar töluvert milli ára þar sem engin kona er í stjórn. Birting upplýsinganna er liður í verkefninu Jafnréttiskennitalan, en SA eru meðal samstarfsaðila þess.
4.6.2008
Sveitarfélög gćtu sparađ milljarđa
2.6.2008
Seđlabanki Evrópu 10 ára
1.6.2008
SA leita ađ framtíđarfólki
Samtök atvinnulífsins leita að ungu fólki í námi sem vill leggja sitt af mörkum við að auka samkeppnishæfni lands og þjóðar. Ef þú býrð yfir hugmynd sem getur bætt bætt hag Íslendinga eða vilt greina sóknarfæri á sviði atvinnumála, efnahagsmála, vinnumarkaðsmála eða velferðarmála, þá viljum við heyra í þér. Fyrir réttu verkefnin eru í boði styrkir og hugsanlega vinnuaðstaða í Húsi atvinnulífsins ásamt samstarfi við starfsmenn SA.










