Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

30.4.2008

Umsátrinu um Ísland verđi aflétt

Íslenska hagkerfið er lokað um þessar mundir og íslenskt atvinnulíf hefur ekki lengur aðgang að erlendu lánsfé nema á afarkjörum. Við þessi skilyrði geta íslensk fyrirtæki ekki vikið sér undan háum vöxtum innanlands og kjör þeirra hafa versnað verulega. Það er líkt og vextir hafi hækkað um nálægt 10% á stuttum tíma og það virkar eins og sleggja á atvinnulífið. Ástandið birtist í raun sem umsátur um Ísland sem er nauðsynlegt að aflétta sem fyrst. Þetta var meðal þess sem kom fram í erindi Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra SA, á morgunfundi Viðskiptablaðsins í morgun.

29.4.2008

Kennarasamningur dýr

"Þetta er mjög ríflegur samningur," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í Fréttablaðinu í dag, um nýgerðan kjarasamning grunnskólakennara. "Það hafa engin fyrirtæki efni á að gera svona samning og ég held reyndar að sveitarfélögin hafi það ekki heldur. Málið snýst líka um hvort þessi samningur er fyrirmynd annarra samninga hjá opinberum aðilum." Einnig var rætt við Vilhjálm um málið í hádegisfréttum fréttastofu Útvarps. Þar kom m.a. fram hjá Halldóri Halldórssyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga, að erfitt verði fyrir mörg sveitarfélög að greiða kennurum laun samkvæmt þessum nýja samningi.

29.4.2008

Mikill áhugi á jafnréttisnámskeiđum SA

Nær fullbókað er á námskeið Samtaka atvinnulífsins um gerð jafnréttisáætlana og framkvæmd þeirra sem fram fer í fyrramálið í Húsi atvinnulífsins. Örfá sæti eru þó laus en um er að ræða vinnustofu þar sem þátttakendur taka virkan þátt en námskeiðin eru sniðin að þörfum þátttakenda hverju sinni og fyrirtækjum þeirra. Námskeiðið er opið félagsmönnum SA og eru áhugasamir beðnir um að skrá sig sem fyrst með því að senda tölvupóst á sa@sa.is.

29.4.2008

Allt of mikil verđbólga

„Þetta er allt of mikil verðbólga," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við Morgunblaðið í dag. „Menn gældu við að þetta yrði ekki svona mikið," bætir hann við. Ljóst sé að gengislækkun krónunnar hafi komið mjög sterkt fram. „Ég hafði ekki reiknað með því að þetta gerðist svona fljótt og svona mikið," segir hann. Vilhjálmur segist binda vonir við að þar sem verðbólgan hafi aukist svo hratt sem raun ber vitni, detti hún líka fyrr niður og stöðugleiki komist á verð að nýju. „Lækki gengið ekki meira er búið að stilla verðlagið af miðað við hvernig gengi krónunnar er nú," segir hann.

29.4.2008

Gengislćkkun helsta ástćđa aukinnar verđbólgu

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við fréttastofu Útvarps gengislækkun krónunnar helstu ástæðu aukinnar verðbólgu. Hann segir áhrifin ekki komin fram að öllu leyti. Fyrirtæki hafi farið varlega í verðhækkanir og bendir Hannes á í því sambandi að innflutningsverð hafi hækkað um 10% frá áramótum en gengi krónunnar lækkað um 25%. Það sýni að menn hafi að jafnaði verið að gæta hófs og aðhalds í verðlagningu. Mjög miklar hækkanir hafi orðið á alþjóðamörkuðum á ýmsum vörutegundum, fæðu, olíu og bensínvörum - mikið umrót sé í verðlagsmálum í heiminum í dag.

28.4.2008

Upptökur frá ađalfundi SA komnar á vefinn

Upptökur af erindum ræðumanna á aðalfundi SA 2008 sem fram fór í Hafnarhúsinu 18. apríl eru nú aðgengilegar hér á vef SA. Yfirskrift fundarins var Út úr umrótinu - inn í framtíðina. Hægt er að horfa á ræður Ingimundar Sigurpálssonar, fyrrverandi formanns SA, Geirs H. Haarde forsætisráðherra, Kristínar Jóhannesdóttur, framkvæmdastjóra Gaums, Eddu Rósar Karlsdóttur, forstöðumanns greiningardeildar Landsbankans og Ólafar Nordal, alþingismanns, auk ávarps Þórs Sigfússonar nýs formanns SA en hann sleit aðalfundinum eftir að hafa verið kjörinn formaður samtakanna með 94% greiddra atkvæða.

28.4.2008

Skelfilegar verđbólgutölur

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við mbl.is nýjar verðbólgutölur skelfilegar enda hafi verðbólga ekki mælst jafn mikil í tæpa tvo áratugi. Verðbólgan í apríl mældist 11,8% og hefur ekki verið jafn há í tæp átján ár. Er þetta mesta mánaðarhækkun verðbólgu í tuttugu ár. Aðspurður um hvaða áhrif þetta hafi á nýgerða kjarasamninga segir hann að kjarasamningarnir hafi verið byggðir á ákveðnum hugmundum um þróun mála og tölurnar nú séu alls ekki sú framtíðarsýn sem menn höfðu þá. „Vonast var til þess að kaupmáttur yrði nokkuð stöðugur en nú eru horfur á  kaupmáttarrýrnun á árinu. Þar að segja ef gengi krónunnar styrkist ekki á ný."

23.4.2008

Námskeiđ um gerđ jafnréttisáćtlana og framkvćmd ţeirra

Samtök atvinnulífsins efna næstu vikur til námskeiða um jafnréttisáætlanir fyrirtækja, gerð þeirra og framkvæmd samkvæmt nýjum lögum um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna. Fyrsta námskeiðið verður haldið miðvikudaginn 30. apríl fyrir hádegi og er það ætlað stærri fyrirtækjum en þriðjudaginn 6. maí verður haldið námskeið ætlað minni fyrirtækjum. Um er að ræða vinnustofu þar sem þátttakendur taka virkan þátt en námskeiðin eru sniðin að þörfum þátttakenda hverju sinni og fyrirtækjum þeirra. Námskeiðin eru opin félagsmönnum SA.

22.4.2008

Forsendunefnd SA og ASÍ tekur til starfa

Nefnd SA og ASÍ um samningsforsendur hefur tekið til starfa en hlutverk hennar er að meta forsendur kjarasamninga á almennum vinnumarkaði sem skrifað var undir í febrúar síðastliðnum. Nefndin átti sinn fyrsta fund í gær og má búast við að fleiri fundnir verði haldnir. „Við fórum yfir málin og ræddum þetta vítt og breitt. Við eigum eftir að hittast oft," sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Fréttablaðið eftir fundinn.

21.4.2008

Inn í framtíđina á ađalfundi SA 2008

Vel á fimmta hundrað karla og kvenna mættu á aðalfund SA sem fram fór í Hafnarhúsinu 18. apríl - fjölmennasta aðalfund samtakanna frá upphafi. Yfirskrift fundarins var Út úr umrótinu - inn í framtíðina en það var hlutverk þriggja kvenna að líta til framtíðar á fundinum og deila sýn sinni með aðalfundargestum. Þetta voru þær Kristín Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Gaums, Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans og Ólöf Nordal, alþingismaður. Erindi þeirra má nú nálgast hér á vef SA.

21.4.2008

Baráttan um besta fólkiđ

Samtök atvinnulífsins hafa gefið út nýtt rit Baráttan um besta fólkið þar sem fjallað er um alþjóðavæðingu vinnumarkaðarins. Þar kemur m.a. fram að Ísland stendur Norðurlöndunum í heild að baki við að takast á við áskoranir hnattvæðingarinnar. Ísland stendur vel að vígi í alþjóðlegum samanburði hvað varðar laun og skatta en hátt verðlag og smæð landsins eru ekki aðlaðandi. Á heildina litið er samkeppnisstaða Íslands um hæft starfsfólk í meðallagi þegar litið er til kaupmáttar launa eftir skatt, en baráttan um besta fólkið mun fara harðnandi.

20.4.2008

Viđ óbreytt ástand er ekki unnt ađ una

Að fenginni reynslu af flotgengisstefnu Seðlabankans og í ljósi þeirrar stöðu, sem nú blasir við íslensku atvinnulífi, er nauðsynlegt að grípa til samhæfðra aðgerða bæði á sviði peningamála og ríkisfjármála. Þetta sagði Ingimundur Sigurpálsson, fáfarandi formaður Samtaka atvinnulífsins, m.a. í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna í Hafnarhúsinu. Ennfremur sagði Ingimundur: „Því vil ég nota þetta tækifæri til þess að beina því til forsætisráðherra, hvort ekki sé nú tilefni til þess að ríkisstjórnin gefi út yfirlýsingu með skýrum og afgerandi hætti þess efnis, að unnið verði að því að uppfylla viðurkennd skilyrði um stöðugt verðlag, jafnvægi í ríkisfjármálum, stöðugleika í gengisskráningu og samhæfingu langtímavaxta, sem sett eru fyrir aðild að myntbandalagi Evrópu. Með samningi við Seðlabankann verði hafinn undirbúningur að nauðsynlegum aðgerðum til þess að ná niður verðbólgu, lækka stýrivexti og tryggja aðhald í opinberum rekstri, þannig að settum markmiðum verði náð."

20.4.2008

Ávarp forsćtisráđherra á ađalfundi Samtaka atvinnulífsins

Íslenska þjóðarbúið gengur nú í gegnum tímabundna erfiðleika sem allir þurfa að taka höndum saman um að leysa. Við megum þó ekki einblína um of á vandamálin því að við búum við góð lífskjör, undirstöður samfélagsins eru traustar og orðstír okkar góður. Þessu gera allir sér grein fyrir sem á annað borð setja sig inn í íslensk málefni. Við eigum afar verðmætar auðlindir sem verða sífellt eftirsóknarverðari. Þessar staðreyndir munu í senn hjálpa okkur út úr því umróti sem við erum nú í og búa vel í haginn fyrir framtíðina. Þetta sagði Geir H. Haarde, forsætisráðherra, í lokaorðum ávarps sem hann flutti á aðalfundi SA 18. apríl í Hafnarhúsinu.

18.4.2008

Ţór Sigfússon kjörinn formađur SA

Á aðalfundi SA 18. apríl 2008 var Þór Sigfússon kjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins. Kosningin fór fram með rafrænum hætti og var þátttaka góð. Þór var rétt kjörinn formaður starfsárið 2008-2009 með 94% greiddra atkvæða. Þór tekur við formennsku af Ingimundi Sigurpálssyni. Ingimundur var fyrst kjörinn formaður SA á aðalfundi samtakanna árið 2003 og tók þá við að Finni Geirssyni sem gegnt hafði formennsku frá stofnun Samtaka atvinnulífsins í september 1999.

18.4.2008

Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins 2008 - 2009

Lýst hefur verið kjöri stjórnar SA fyrir starfsárið 2008 til 2009. Nýir koma inn í stjórnina Árni Gunnarsson Flugfélagi Íslands ehf., Halldór J. Kristjánsson Landsbanka Íslands hf., Ólafur Rögnvaldsson Hraðfrystihúsi Hellissands, Sigurður Viðarsson Tryggingamiðstöðinni hf.  Úr stjórninni ganga Bjarni Ármannsson Glitni banka hf., Björgólfur Jóhannsson Landssambandi ísl. útvegsmanna, Helgi Bjarnason Sjóvá og Jón Karl Ólafsson Icelandair.

18.4.2008

Ađalfundur SA í dag - föstudaginn 18. apríl

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins verður haldinn í dag föstudaginn 18. apríl í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsinu. Yfirskrift fundarins er Út úr umrótinu - inn í framtíðina. Fundurinn hefst kl. 15:00 með venjulegum aðalfundarstörfum en opin dagskrá hefst kl. 16:00 með ræðu formanns SA og ræðu Geirs H. Haarde, forsætisráðherra. Þá horfa til framtíðar Kristín Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Gaums, Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans og Ólöf Nordal, alþingismaður. Aðalfundargestir fá nýtt rit SA um alþjóðavæðingu vinnumarkaðarins og brugðið verður upp svipmyndum af íslenskum vinnumarkaði. Dagskránni lýkur um kl. 17:15 með móttöku SA í Hafnarhúsinu.

14.4.2008

Óskađ eftir undanţágum frá reglum um hvíldartíma ökumanna

Samgönguráðherra mun í vikunni afhenda Eftirlitsstofnun EFTA beiðni um undanþágur fyrir Ísland frá nýrri reglugerð Evrópusambandsins um aksturs- og hvíldartíma ökumanna í samræmi við undanþáguheimildir reglugerðarinnar. Mun Eftirlitsstofnun EFTA skipa sérstaka nefnd með fulltrúum þeirra þriggja landa sem að stofnuninni standa til að fjalla um þessa beiðni. Verður þetta í fyrsta sinn þar sem sótt er um undanþágu frá reglugerð ESB hjá stofnuninni. Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög sendu í desember síðastliðnum sameiginlega beiðni með ASÍ og Starfsgreinasambandinu til samgönguráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins um að sótt yrði um slíkar undanþágur en þær ganga m.a. út á að heimilt verði að lengja daglegan aksturstíma í allt að 11 klukkustundir tvisvar í viku á akstursleiðum sem fara yfir 400 kílómetra.

10.4.2008

Er betra ađ veifa röngu tré en öngvu?

Enn og aftur hefur Seðlabanki Íslands hækkað stýrivexti sína, nú í 15,5%, og enn og aftur er það misráðin ákvörðun af hálfu bankans. Seðlabankinn hefur alveg litið fram hjá því við vaxtaákvarðanir sínar á undanförnum misserum að íslenska fjármálakerfið verður sífellt alþjóðlegra og tengdara erlendum fjármálamörkuðum. Sú staðreynd hefur dregið úr virkni hefðbundinnar peningamálastefnu auk þess sem víðtæk verð- og gengistrygging fjárskuldbindinga hefur haft sömu áhrif. Ótæpilegar vaxtahækkanir Seðlabankans hafa því ekki unnið á verðbólgu heldur verið undirrót ójafnvægis og gengissveiflna sem hafa valdið íslensku atvinnulífi miklum skaða. Þetta segir framkvæmdastjórn SA í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Þar kemur jafnframt fram að stjórn SA hafi ákveðið að setja á laggirnar nefnd sérfræðinga til þess að meta möguleika á evruvæðingu atvinnulífsins sem felur í sér að einkaaðilar noti evruna sem gjaldmiðil í öllum viðskiptum sín á milli.

10.4.2008

Ríkisbanki er tímaskekkja

Formaður Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF), Lárus Welding, sagði í ræðu á árlegum SFF-degi sem fram fór í Borgarleikhúsinu í morgun jákvætt að ríkisstjórnin stefni að því að tryggja að fjármálastarfsemi geti áfram vaxið hér á landi og sótt inn á ný svið í samkeppni við önnur markaðssvæði - eins og lýst er í stefnuyfirlýsingu hennar. „Í ljósi þessa skýtur skökku við að stjórnvöld skuli enn sjálf reka banka sem nýtur ýmissa forréttinda og keppir í skjóli þeirra um viðskiptamenn við fjármálafyrirtæki á frjálsum markaði," sagði Lárus og velti því upp hvort núverandi vanda peningastefnunnar og ójafnvægi efnahagkerfisins megi að hluta til rekja til þess að skipulagi Íbúðalánasjóðs var ekki breytt samhliða því að Seðlabanka var gert að taka upp verðbólgumarkmið.

10.4.2008

Slćmar ađstćđur í efnahagslífinu

Í könnun um stöðu og framtíðarhorfur hjá 400 stærstu fyrirtækjum landsins telja stjórnendur hjá um 48% fyrirtækjanna núverandi aðstæður í efnahagslífinu vera slæmar eða mjög slæmar, um 36% telja þær hvorki góðar né slæmar, en einungis um 16% telja þær vera góðar. Þessi niðurstaða er mun lakari en fram hefur komið í fyrri reglubundnum könnunum um sama efni eða allt frá árinu 2002. Ljóst er að fjárfesting í atvinnulífinu dregst nú hratt saman en tekið skal fram að könnunin var gerð á tímabilinu 13. febrúar til 12. mars 2008, þegar vísitala gengisskráningar krónunnar var að meðaltali 131, en næstu daga á eftir lækkaði gengi krónunnar verulega og var vísitala gengisskráningar tæplega 155 stig í síðari hluta marsmánaðar. Þegar könnunin var gerð voru stýrivextir Seðlabankans 13,75% og spáðu forsvarsmenn stærstu fyrirtækja landsins að vextirnir yrðu 11% eftir 12 mánuði.

10.4.2008

Veđrabrigđi í kjölfar gríđarlegs hagvaxtar

Íslenska hagkerfið hefur stækkað um rúmlega fjórðung á síðustu fjórum árum og um þriðjung frá árinu 2000, sem er tvöfalt meiri vöxtur en í öðrum þróuðum ríkjum og verulega umfram það sem samrýmist jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Vöxturinn hefur reynt verulega á þanþol hagkerfisins sem einkennst hefur af útþenslu fjármálageirans, vexti stóriðju- og orkufyrirtækja, uppbyggingu íslenskra fyrirtækja erlendis, mikilli einkaneyslu og fjárfestingum í íbúðarhúsnæði, hækkun eignaverðs og verðbólgu, gengissveiflum krónunnar, miklum launahækkunum, skorti á starfsfólki og aðstreymi erlends starfsfólks. Samfara þessu ójafnvægi náði mældur viðskiptahalli áður óþekktum stærðum og erlendar skuldir þjóðarbúsins hafa aukist verulega. Þetta kemur m.a. fram nýrri ársskýrslu SA sem kemur út 18. apríl næstkomandi.

4.4.2008

Undirbúningur gengur vel fyrir álver á Bakka viđ Húsavík

Alcoa mun síðar í þessum mánuði leggja fram hjá Skipulagsstofnun tillögu að matsáætlun fyrir mat á umhverfisáhrifum vegna álvers á Bakka við Húsavík með um 250.000 tonna framleiðslugetu á ári. Þetta var meðal þess sem kom fram á fjölmennum borgarafundi sem sveitarfélagið Norðurþing stóð fyrir á Húsavík, fimmtudaginn 3. apríl. Á fundinum kynntu fulltrúar Norðurþings, Landsnets, Landsvirkjunar, HRV og Alcoa undirbúning og stöðu mála varðandi fyrirhugað álver á Bakka við Húsavík. Áætlað er að álver á Bakka skapi 600 - 700 störf á Norðurlandi, um 1000 störf á landinu öllu og umtalsverð útflutningsverðmæti fyrir þjóðarbúið. Ljóst er að bygging álvers á Bakka myndi hafa mjög jákvæð áhrif á Norðurlandi og efla hagvöxt.

4.4.2008

Áhyggjur af gengi íslensku krónunnar

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar fór fram þann 3. apríl. Í ályktun fundarins um krónuna er áhyggjum lýst yfir miklum sveiflum á gengi hennar. „Þessar sveiflur eru greininni mjög erfiðar og hafa haft mikil áhrif á afkomu fyrirtækja. Gengisþróun, verðsveiflur og háir vextir skekkja samkeppnishæfi íslensks atvinnulífs svo mikið að ekki verður áfram við unað. Miklar sveiflur í gengi koma í veg fyrir virka áætlunargerð innan fyrirtækja," segir m.a. í ályktun aðalfundar SAF.

2.4.2008

SA óska eftir myndum úr atvinnulífinu

Í tilefni af aðalfundi Samtaka atvinnulífsins, þann 18. apríl næstkomandi, óska samtökin eftir myndum frá félagsmönnum SA til að sýna íslenskt atvinnulíf í hnotskurn, fjölbreytileika þess og kraft. Fjölmargar myndir hafa borist en við viljum sjá fleiri! Myndirnar verða sýndar í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsinu en þar fer aðalfundur SA fram þetta árið.

RSS-efnisveita SA

Atvinna fyrir alla - smelltu til ađ sćkja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english