Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

28.11.2008

Leiđbeiningar um stjórnarhćtti opinberra fyrirtćkja gefnar út

Viðskiptaráð Íslands, NasdaqOMX Ísland og Samtök atvinnulífsins hafa gefið út leiðbeiningar um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja. Markmið leiðbeininganna er margþætt en þeim er fyrst og fremst ætlað að auka gagnsæi í rekstri opinberra fyrirtækja og aðstoða hið opinbera og fyrirtæki í eigu þess að skapa traust um starfsemi sína. Fulltrúa fjármálaráðherra var afhent fyrsta eintak leiðbeininganna.

28.11.2008

Gjaldeyrislög fćra Ísland áratugi aftur í tímann

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, er afar ósáttur við nýju gjaldeyrislögin og segir í samtali við fréttastofu RÚV þau vera hræðileg. Lögin verði frekar til þess að minni gjaldeyrir komi til landsins og meiri gjaldeyrir fari út. Svona höft hafi hvergi virkað í heiminum. Lögin færi Ísland áratugi aftur í tímann og um sé að ræða dæmigerð viðbrögð sem eigi ekki að sjást við þeim vandamálum sem við er að eiga.

27.11.2008

Mun stórskađa viđskiptalífiđ

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur að frumvarp um breytingar á lögum um gjaldeyrismál muni stórskaða íslenskt viðskiptalíf. Hann fer fram á að frumvarpið verið dregið til baka hið snarasta, en samkvæmt því er Seðlabankanum gert kleift með tímabundnum takmörkunum á gjaldeyrisviðskipti að hindra fjármagnsflótta úr landi. Þetta kemur fram í frétt á mbl.is.

27.11.2008

Fundir SA föstudaginn 28. nóvember

Samtök atvinnulífsins efna til tveggja funda föstudaginn 28. nóvember. Á Grand Hótel Reykjavík verður blásið til morgunfundar um þjónustutilskipun ESB og áhrif hennar á íslenskt atvinnulíf. Fulltrúi frá Evrópusamtökum atvinnulífsins (BUSINESSEUROPE) fjallar m.a. um áhrif tilskipunarinnar en Íslensk stjórnvöld hafa sett sér það markmið að hafa innleitt hana í lög fyrir árslok 2009. Í hádeginu fer síðan fram félagsfundur SA og SI á Suðurlandi. Fundurinn fer fram á Hótel Selfossi.

27.11.2008

Stefna í kjaramálum verđi mörkuđ til lengri tíma

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við fréttastofu RÚV mikilvægt að horfa nokkur ár fram í tímann og spá í það hvernig kjaramálin þróist. „Við þurfum að losna út úr þessu höfrungahlaupi sem að svo oft hefur einkennt kjarasamninga og stöðu hópa hvers gagnvart öðrum og reyna að sjá einhverja sameiginlega sýn í þessum málum þannig að menn séu ekki alltaf að elta hvern annan heldur að reyna að ná fram kjarabótum á grundvelli lágra launahækkana og ennþá lægri verðbólgu."

26.11.2008

Hugur SA til ađildarviđrćđna viđ ESB kannađur

Skoðanakönnun sem nú stendur yfir meðal aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins um Evrópumál er fyrst og fremst gerð til að kanna hvort stuðningur er fyrir því að SA beiti sér fyrir aðildarviðræðum við Evrópusambandið, að sögn Þórs Sigfússonar, formanns SA. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Meirihluti sé fyrir því innan SA að breyta afstöðu samtakanna til Evrópumála, að minnsta kosti til þess að hefja undirbúning aðildarviðræðna.

26.11.2008

SVŢ hvetja félagsmenn til ađ taka ţátt í könnun SA

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu hvetja félagsmenn til að taka þátt í könnun SA sem nú stendur yfir um afstöðu SA til aðildar að ESB og upptöku evru. Í bréfi til félagsmanna, hvetur Hrund Rudolfsdóttir, formaður SVÞ, félagsmenn til að íhuga vel sína afstöðu og nota sinn atkvæðisrétt.

25.11.2008

Skođanakönnun um afstöđu SA til ESB og upptöku evru

Framkvæmdastjórn SA hefur ákveðið að fram fari rafræn skoðanakönnun meðal aðildarfyrirtækja SA um hvort þau séu fylgjandi eða andvíg því að SA beiti sér fyrir aðild Íslands að ESB og upptöku evru sem gjaldmiðils á Íslandi. Könnunin stendur nú yfir en félagsmenn Samtaka atvinnulífsins hafa fengið sent lykilorð í tölvupósti til að taka þátt í könnuninni.

25.11.2008

LÍÚ og SF andvíg ađild ađ ESB

Stjórn LÍÚ hefur samþykkt að verði Samtökum atvinnulífsins beitt fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið þá muni stjórnin leggja það til við félagsmenn að LÍÚ segi sig úr Samtökum atvinnulífsins. Þetta kemur fram í bréfi á vef LÍÚ til félagsmanna LÍÚ og SF.  „Þetta kemur í sjálfu sér ekkert á óvart en vissulega yrði illt að sjá á eftir þeim úr samtökunum. Ef þeir fara út þá eru þeir alltaf velkomnir til baka," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við mbl.is. Vilhjálmur segir samtökin úr sjávarútvegi mjög traust og mikilvæg í SA. Þau hafi lagt mikið af mörkum til SA. Það styrki augljóslega ekki samtökin ef útgerðarfélögin segi sig úr SA.

23.11.2008

Morgunfundur SA um ţjónustutilskipun ESB

Íslensk stjórnvöld hafa sett sér það markmið að hafa innleitt þjónustutilskipun ESB í íslensk lög fyrir árslok 2009. Markmið tilskipunarinnar er að tryggja betur frjáls þjónustuviðskipti í Evrópu. Af þessu tilefni efna Samtök atvinnulífsins til morgunfundar á  Grand Hótel Reykjavík, föstudaginn 28. nóvember, kl. 8:30-10:00. Erindi flytja Carlos Almaraz sérfræðingur frá BUSINESSEUROPE, Gunnar Þór Pétursson hdl. sérfræðingur við lagadeild HR og Valgerður Rún Benediktsdóttir, lögfræðingur hjá viðskiptaráðuneytinu.

21.11.2008

Áherslur SA vegna ađgerđa ríkisstjórnar í ţágu fyrirtćkja

Í tengslum við aðgerðir ríkisstjórnarinnar í þágu fyrirtækja sem nú er unnið að hafa Samtök atvinnulífsins tekið saman áhersluatriði um brýn úrlausnarefni. Þau má nálgast hér á vef SA en þau snúa m.a. að gjaldeyrisviðskiptum, samskiptum við erlenda lánadrottna, lækkun vaxta, uppstokkun atvinnulífsins, nýsköpun og skapandi hugsun, kjarasamningum og skilyrðum fyrir fjárfestingar. Einnig um ársreikninga í erlendri mynt, fjárfestingasjóði, fasteignagjöld, refsiákvæði, opinberar framkvæmdir og ráðdeild í ríkisrekstri.

21.11.2008

Ferđaţjónusta mikilvćg íslensku efnahagslífi

Stórstígar framfarir hafa orðið í íslenskri ferðaþjónustu þrátt fyrir erfið rekstarskilyrði sem greinin hefur þurft að búa við um langa hríð en nú eru tækifæri til að blása til sóknar. Þetta kom fram í máli Þórs Sigfússonar, formanns SA, á Ferðamálaþingi. Þar sagði hann SA vilja taka þátt í því að efla bæði stór og lítil fyrirtæki og hvetja til nýsköpunar innan þeirra. Fjölmargir möguleikar væru til að efla rekstur ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi sem gætu skilað góðri afkomu en ferðaþjónustan væri mikilvægur þáttur í þeirri uppbyggingu atvinnulífsins sem framundan er. Erlendir ferðamenn hafi t.d. flutt inn gjaldeyri fyrir um 85 milljarða króna á síðasta ári og greinin hafi aflað um 19% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar.

21.11.2008

Lán frá IMF mikilvćgt fyrsta skref

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, fagnar því í viðtali við fréttastofu RÚV, að samkomulag við IMF sé í höfn. Lán frá sjóðnum sé nauðsynlegt fyrsta skref til að koma gjaldeyrismarkaðnum aftur af stað en fleira þurfi að koma til. Stíga þurfi næsta skref og ná samkomulagi við erlenda lánadrottna íslensku bankanna. Það sé mjög brýnt að fá þá að bönkunum sem eignaraðila og ríkið eigi helst að halda sig sem lengst frá bankarekstri.

20.11.2008

IMF samţykkir efnahagsáćtlun og lán til Íslands

Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) samþykkti á fundi sínum í gærkvöld áætlun um að koma á efnahagsstöðugleika á Íslandi, sem samin var af íslenskum sérfræðingum í samstarfi við sendinefnd IMF í síðasta mánuði. Samkvæmt áætluninni fær Ísland 2,1 milljarða Bandaríkjadala frá sjóðnum og viðbótarlán, allt að þremur milljörðum Bandaríkjadala, frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð, Rússlandi og Póllandi. Að auki hafa Færeyingar boðið Íslendingum lán sem nemur um 50 milljónum Bandaríkjadala.

19.11.2008

Ársfundur Frćđslumiđstöđvar atvinnulífsins á morgun

Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins fer fram 20. nóvember næstkomandi á Grand Hótel Reykjavík kl. 14:00 til 17:00. Ný leiðtogahugsun og ráðgjafasálfræði verður þar í fyrirrúmi. Tveir erlendir fyrirlesarar munu flytja erindi, Ingegerd Green, fyrirtækjaráðgjafi og David L. Blustein, sérfræðingur í ráðgjafasálfræði.

18.11.2008

Stýrivextir of háir

Fjallað er um aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að málefnum Íslands í Fréttablaðinu í dag. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fagnar því að málið sé í höfn en gerir athugasemd við að stýrivextir skuli vera átján prósent og auk þess sé opnað fyrir frekari hækkun þeirra. „Þetta er óþarfi en ég reikna ekki með frekari hækkunum enda tel ég þær ekki nauðsynlegar." Vilhjálmur segir hægt að beita öðrum aðferðum svo gengi krónunnar hækki. Auk aðgerða samkvæmt samkomulaginu við IMF þurfi erlendir kröfuhafar bankanna að eignast í þeim hluti.

17.11.2008

Mikilvćgar upplýsingar Seđlabanka um greiđslur til Íslands

Seðlabanki Íslands hefur uppfært leiðbeiningar um hvernig koma megi erlendum greiðslum til landsins í gegnum Seðlabankann. Þær er að finna á vef bankans en mikilvægt er að láta nafn og kennitölu viðtakanda á Íslandi fylgja með í skýringartexta þegar erlend greiðsla er send ásamt IBAN númeri innlends bankareiknings viðtakanda á Íslandi. Ef þetta er ekki gert skortir Seðlabankann upplýsingar til að koma greiðslunni til viðtakenda. Varast skal að nefna gömlu bankana á nafn í skýringartexta og notast eingöngu við IBAN númer innlendra bankareikninga á Íslandi.

17.11.2008

Samkomulag nćst viđ Evrópusambandiđ um Icesave

Íslensk stjórnvöld hafa náð mikilvægum áfanga í deilu um innstæðutryggingar vegna íslenskra bankaútibúa á Evrópska efnahagssvæðinu og stöðu sparifjáreigenda í þeim. Viðræður Íslands við nokkur Evrópusambandsríki, sem komust á fyrir tilstilli Frakklands sem nú fer með formennsku í Evrópusambandinu, leiddu til samkomulags um viðmið sem lögð verða til grundvallar frekari samningaviðræðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

16.11.2008

Risagjaldţrot án láns frá IMF og vinaţjóđum

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, tók þátt í umræðum um fyrirhugað lán frá Aljóðagjaldeyrissjóðnum og viðbótarfjármögnun í Silfri Egils í dag. Vilhjálmur sagði að það væri algjör forsenda fyrir því að hægt væri að koma gjaldeyrisviðskiptum á Íslandi í eðlilegt horf að taka lán hjá IMF og vinaþjóðum Íslands. Vilhjálmur undirstrikaði að það væri ábyrgðarlaust að halda því fram að hafna ætti lánveitingunum. Þá yrði hagkerfið keyrt niður í ekki neitt og það væri ávísun á risagjaldþrot hjá íslenskum heimilum og fyrirtækjum.

14.11.2008

Frestur veittur vegna stađgreiđslu og ađflutningsgjalda

Vegna truflana á bankastarfsemi hér á landi og áhrifa þess á atvinnulífið hefur fjármálaráðuneytið ákveðið að fella niður tímabundið álag vegna skila á staðgreiðslu sem er á eindaga 17. nóvember og gildi sú niðurfelling í eina viku eða til mánudagsins 24. nóvember. Þá hefur ráðuneytið einnig tilkynnt um tímabundinn gjaldfrest á aðflutningsgjöldum.

13.11.2008

Ljósiđ logar enn

Mikil vinna hefur farið fram innan Samtaka atvinnulífsins í tengslum við vandamál atvinnulífsins í kjölfar falls bankanna. Markmið þessa starfs hefur verið að finna lausnir á bráðavanda fyrirtækjanna og leita leiða til þess að íslenskt atvinnulíf komist aftur á rétta braut. Ljóst er að aðeins litrík lýsingarorð geta átt við um það ástand sem nú ríkir í atvinnulífinu og allir Íslendingar eiga mikið undir því að það nái góðri viðspyrnu til framtíðar. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs samtakanna, sem fjallar um meginatriði vinnu SA og framtíðarhorfur. Vilhjálmur segir að enn logi á ljósinu sem geti skapað okkur bjarta framtíð.

13.11.2008

Ţörf á breiđri samstöđu

Ná þarf breiðri samstöðu um aðgerðir sem horfa til framtíðar til að bregðast við núverandi ástandi. Aðilar vinnumarkaðarins hafa rétt út hönd og boðið ríkisstjórninni til víðtæks samstarfs um leiðir út úr krísunni. Þetta sagði Þór Sigfússon, formaður SA á opnum fundi samtakanna í morgun. „Við vorum boðin og búin í byrjun október þegar krísunni var aflýst í rúman sólarhring en nú erum við aftur reiðubúin að stíga fram." Þór sagði mikilvægt að leggja allt kapp á að undirbúa nýja tíma fyrir Ísland og lagði fram lista yfir sex lykilverkefni sem vinna þurfi að á næstu vikum.

13.11.2008

Sterkt atvinnulíf kemur í veg fyrir neyđarástand

Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, sagði í erindi sínu á fundi SA að aðrar þjóðir dæli nú fjármagni inn í hagkerfi sín til að halda atvinnulífinu gangandi og forðast neyðarástand. Hér á landi megi ekki til þess hugsa að tugir þúsunda einstaklinga verði atvinnulausir og stjórnvöld hljóti að gera allt til að forðast slíkt ástand og afleiðingarnar sem því fylgi. Það verði best gert með því að atvinnulífið haldist gangandi og hafi aðgang að nauðsynlegu fjármagni.

13.11.2008

Erindi Vilhjálms Egilssonar á opnum fundi SA

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, flutti efnismikið erindi á fundi SA í morgun þar sem hann fjallaði um þau brýnu verkefni sem snúa að Íslendingum um þessar mundir. Vilhjálmur leggur út af erindi sínu í leiðara fréttabréfs SA, en ítarlegar glærur Vilhjálms má nálgast hér á vef SA.

13.11.2008

Hlutastörf raunhćfur kostur

Alþingi hefur samþykkt frumvarp um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar. Er þar verulega komið til móts við þá launamenn sem semja um lækkun starfshlutfalls og þeim gefinn kostur á mun hærri greiðslum úr Atvinnuleysistryggingasjóði en núgildandi reglur gera ráð fyrir. Samtök atvinnulífsins hafa hvatt fyrirtækin til að skoða vandlega þann kost að bjóða starfsmönnum upp á lægra starfshlutfall, þar sem því verður við komið, og draga þannig úr fjölda uppsagna.

13.11.2008

Starfsmenntaverđlaunin til Samskipa

Samskip hlutu starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs í flokki fyrirtækja og félagasamtaka fyrir árið 2008 og fræðslusetrið Starfsmennt í flokki skóla og fræðsluaðila. Undanfarin ár hafa Samskip boðið uppá öflugt og fjölbreytt nám og sérsniðna fræðslu fyrir ákveðna starfsmannahópa. Þá hafa Samskip stofnað Flutningaskóla Samskipa en þar fer fram sérhæft einingametið nám fyrir starfsmenn sem eiga stutta formlega skólagöngu að baki.

13.11.2008

Forskráningu efna og efnablanda ađ ljúka

Fyrir nokkru tók gildi hér á landi ný löggjöf ESB um efni og efnablöndur (REACH). Einfaldari reglur en ella gilda um þau efni og efnablöndur sem eru forskráð fyrir 1. desember nk. og forskráningin því afar mikilvæg. Aðeins örfá íslensk fyrirtæki höfðu nýtt sér forskráningu þann 1. nóvember.

10.11.2008

Rödd atvinnulífsins - opinn fundur SA 13. nóvember

Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar vegna þeirrar alvarlegu stöðu og miklu áskorana sem íslensk fyrirtæki standa frammi fyrir. Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík, Gullteig, fimmtudaginn 13. nóvember kl. 8:30-10:00. Erindi flytja Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, Hermann Guðmundsson, forstjóri N1 og Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins. Rannveig Rist forstjóri Alcan á Íslandi stýrir fundi. SA hvetja félagsmenn eindregið til að mæta og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA.

10.11.2008

Ríkiđ ekki trúverđugur eigandi bankanna

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við Morgunblaðið 8. nóvember eitt brýnasta hagsmunamál atvinnulífs og heimila til lengri tíma litið að eðlilegur aðgangur fáist að erlendu lánsfé á fjármagnsmörkuðum og í bönkum. Það sé ófært ef ríkið verður áfram eigandi bankanna því það hafi misst trúverðugleika gagnvart erlendum kröfuhöfum. Lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og einstökum ríkjum sé mjög mikilvægt fyrsta skref til að leysa bráðavandann núna en tryggja þurfi til lengri tíma litið að Íslendingar eigi eðlilegan aðgang að erlendum fjármagnsmarkaði. Ríkisbankaleiðin sé alger ófæra.

7.11.2008

Viđskiptasetur opnađ til ađ efla atvinnulíf

Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur opnað viðskiptasetur í samvinnu við Landsbankann og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja. Viðskiptasetrið er kallað Torgið en opnun þess er liður í samningi sem Samtök atvinnulífsins undirrituðu ásamt Nýsköpunarmiðstöð og SSF í október. Á Torginu munu einstaklingar fá aðstöðu aðstöðu og umgjörð til að vinna að viðskiptahugmyndum. Torgið verður opnað mánudaginn 17. nóvember. Fólk með viðskiptahugmyndir á öllum sviðum er hvatt til að sækja um aðstöðu.

6.11.2008

Segjum atvinnuleysi stríđ á hendur

Formaður Samtaka atvinnulífsins, Þór Sigfússon, segir í grein í Fréttablaðinu í dag að alger einhugur ríki meðal atvinnurekenda og launþega um að varðveita það samfélag sem hér hafi byggst upp og standa saman að því að flestar vinnufærar hendur hafi eitthvað fyrir stafni. „Látum engan segja okkur að hér þurfi að koma til stórfellds atvinnuleysis þar sem tugir þúsunda manna ganga um atvinnulausir. Segjum atvinnuleysi stríð á hendur," segir Þór.

5.11.2008

Bréf framkvćmdastjóra SI í The Times

Vefútgáfa breska blaðsins The Times hefur birt bréf frá Jóni Steindóri Valdimarssyni, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Bréfið er ritað vegna greinar Bjarkar Guðmundsdóttur söngkonu sem birtist í blaðinu 28. október. Jón Steindór segir nokkurs misskilnings gæta í grein Bjarkar sem rétt sé að leiðrétta, t.d. upplýsingar um orkunýtingu, mat á umhverfisáhrifum og álframleiðslu. Jón Steindór er þó sammála Björk um að styðja eigi við íslenskt hugvit og umhverfisvæn nýsköpunar- og sprotafyrirtæki sem ekki hafi fengið nægilegan stuðning hingað til.

5.11.2008

Mikilvćgt ađ hugsa hlutina upp á nýtt

Kreppa er móðir tækifæra og nýsköpunar - því í kreppu gefst færi á að hugsa hlutina upp á nýtt og beita skapandi hugsun. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins og hvetur til þess að ríkisstjórn Íslands tileinki árið 2009 skapandi hugsun og nýsköpun. „Borgarstjórn Reykjavíkur er þegar búin að hugsa út fyrir rammann. Þar hefur ný kynslóð vikið leiðindakarpi til hliðar og tekið upp náið samstarf á erfiðum tímum þvert á flokkslínur. Hvað með að gera það að reglu í stað þeirrar þrætulistar sem stunduð var í borgarstjórn um áratugaskeið? Þingið þyrfti sannarlega á sömu hugarfarsbreytingu  að halda þannig að uppgjör þings í þinglok snúist ekki alltaf um hver talaði mest," segir Þór.

4.11.2008

Evrópusamtök atvinnulífsins hvetja til alţjóđlegra ađgerđa

Fjármálakrísan stingur nú víða niður fæti en þjóðir heims finna fyrir afleiðingum hennar í auknum mæli. Mun hagvöxtur í heiminum dragast umtalsvert saman sökum hennar. Aðkoma ríkisvaldsins að atvinnulífi hefur vaxið víða um heim og eru fjölmargir þættir í starfsumhverfi fyrirtækja til endurskoðunar. Evrópusamtök atvinnulífsins (BUSINESSEUROPE) hvöttu til þess í dag - í ljósi núverandi aðstæðna - að brugðist verði við yfirstandandi vanda á yfirvegaðan hátt með alþjóðlegri samvinnu svo endurvekja megi traust í viðskiptum, auka hagvöxt og fjölga störfum.

4.11.2008

Óskir um blíđan byr frá Fćreyjum

Samtökum atvinnulífsins hafa borist hlýjar frændkveðjur frá Føroya Arbeiðsgevarafelag - samtökum atvinnulífsins í Færeyjum. Í bréfi formanns samtakanna segir Jóhan Páll Joensen að Færeyingar viti að framundan sé mikið átak hjá Íslendingum sem fáir geti sett sig inn í og skilið en Færeyingar hafi verið í svipaðri stöðu og notið hlýlegs viðmóts og skilnings frá Íslendingum. Þor og dugur hafi alltaf verið aðalsmerki íslensku þjóðarinnar og segjast færeyskir atvinnurekendur vera sannfærðir um að Íslendingum muni takast að byggja upp blómlegt atvinnulíf að nýju.

3.11.2008

Adolf Guđmundsson nýr formađur LÍÚ

Adolf Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gullbergs ehf. á Seyðisfirði, var kjörinn formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna á 69. aðalfundi samtakanna. Adolf tekur við formennsku af Björgólfi Jóhannssyni sem verið hefur formaður LÍÚ síðastliðin fimm ár.
RSS-efnisveita SA

Atvinna fyrir alla - smelltu til ađ sćkja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english