Fréttir
31.8.2007
Jafnvægi á vinnumarkaði
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í ítarlegu viðtali við helgarblað Viðskiptablaðsins að mjög mikilvægt sé að vinnumarkaðurinn sé í eðlilegu jafnvægi. „Þar tökum við eftir því að þær takmarkanir sem eru á aðflutningi sérhæfðs starfsfólks frá löndum utan Evrópusambandsins setur óþarfa hömlur á fyrirtækin. Við teljum að það sé mjög brýnt að
30.8.2007
Áhrif loftslagssamninga á atvinnulíf
Fundaröð Samtaka atvinnulífsins um atvinnulíf og umhverfi hefst á nýjan leik með morgunverðarfundi á Grand Hótel, mánudaginn 3. september næstkomandi. Þar mun Halldór Þorgeirsson, forstöðumaður hjá Loftslagsstofnun Sameinuðu þjóðanna, ræða um stöðuna í loftslagsmálum og áhrif alþjóðaskuldbindinga á atvinnulíf. Hvert stefnir? Hvernig má nýta verkefni í þróunarríkjum til að draga úr útstreymi heima fyrir? Hvernig starfa alþjóðlegir kolefnissjóðir? Hver verða áhrif á orkunýtingu og orkuvinnslu Íslendinga? Þátttökugjald er kr. 1.500 með morgunverði. Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA.
29.8.2007
Efnahagslegur stöðugleiki og lítil verðbólga
Meginmarkmið Samtaka atvinnulífsins í komandi kjaraviðræðum er að næstu kjarasamningar samræmist lítilli verðbólgu, efnahagslegum stöðugleika og þeir raski ekki samkeppnishæfni atvinnulífsins segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í viðtali við Morgunblaðið. „Flestir samningar sem við gerum renna út um áramótin en þar er um að ræða vel á annað hundrað samninga, stóra og smáa. Við lítum svo á við samningsgerðina að skoða verði alla þessa samninga í samhengi. Við þurfum því að horfa yfir allt sviðið og velta því fyrir okkur hvaða áhrif útkoman úr samningunum mun hafa á efnahagsþróunina, á samkeppnisstöðu atvinnulífsins, verðbólguna og þróunina almennt á vinnumarkaðinum,“ segir Vilhjálmur.
29.8.2007
Erlendir sérfræðingar á Íslandi - morgunverðarfundur
Fjárfestingarstofan og Útflutningsráð halda morgunverðarfund um málefni erlendra sérfræðinga á Íslandi þriðjudaginn 4. september á Grand Hótel kl. 08:15-10:00. Yfirskrift fundarins er Erlendir sérfræðingar á Íslandi: viðhorf, þörf og tækifæri. Alþjóðavæðing íslensks atvinnulífs og fjárfestingar erlendra fyrirtækja á Íslandi hafa aukið eftirspurn og þörf fyrir erlent starfsfólk með sérfræðiþekkingu. Hvaða þýðingu hefur þessi þróun fyrir íslenskt atvinnulíf? Hvernig gengur að fá þetta fólk til starfa og hvernig móttökur fær það hér á landi? Á fundinum verða kynntar niðurstöður rannsóknar um viðhorf sérfræðinga af erlendum uppruna, til búsetu og starfa á Íslandi. Nánari upplýsingar og skráning á vef Útflutningsráðs
22.8.2007
Strangar kröfur gerðar til starfsemi olíuhreinsistöðvar
Verði olíuhreinsistöð byggð á Íslandi mun hún þurfa að uppfylla ákvæði mjög umfangsmikilla lagabálka. Gerðar eru kröfur um að ný fyrirtæki beiti því sem kallað er besta fáanlega tækni við framleiðslu sína. Líkur eru á að tilskipun ESB um útstreymi gróðurhúsalofttegunda verði innleidd hér á landi. Starfsemi olíuhreinsistöðvarinnar myndi falla undir tilskipunina en í henni er gert ráð fyrir því að unnt sé að stofna ný fyrirtæki og að þau fái úthlutað útstreymiskvóta í samræmi við sínar þarfir. ESB bannar ekki fjárfestingar í nýjum fyrirtækjum og ljóst að íslensk stjórnvöld munu eiga óhægt um vik við að koma slíku banni fram í andstöðu við ákvæði sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu.
20.8.2007
Áhrif efnahagslegs frelsis á stöðu gjaldmiðla í heiminum
Ráðstefna um áhrif aukins efnahagslegs frelsis á stöðu gjaldmiðla í heiminum verður haldin á Hótel Nordica fimmtudaginn 23. ágúst. Það er Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál (RSE) sem stendur fyrir ráðstefnunni undir yfirskriftinni Gjaldmiðlar og alþjóðavæðing. Framsögumenn verða Benn Steil, forstöðumaður alþjóðahagfræðisviðs hjá Council on Foreign Relations, Gabriel Stein, aðalhagfræðingur alþjóðahagfræðisviðs hjá Lombard Street Research, Manuel Hinds, fyrrum fjármálaráðherra El Salvador og Ársæll Valfells, lektor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Ráðstefnan er milli kl. 16:10 og 18:30. Fundarstjóri er Illugi Gunnarsson, alþingismaður.
17.8.2007
Íslenskt feðraorlof vekur athygli FT
Fjallað er um góða stöðu jafnréttismála á Íslandi í stórblaðinu Financial Times í vikunni. Einkum vekur það athygli að 90% feðra á Íslandi taki feðraorlof og að fæðingartíðni á Íslandi sé á uppleið. Blaðamaður FT í Þýskalandi kallar Ísland barnaparadís og segir Þjóðverja geta tekið sér Íslendinga til fyrirmyndar. Meðal annars er rætt við Hrafnhildi Stefánsdóttur, yfirlögfræðing Samtaka atvinnulífsins.
16.8.2007
SA ítreka áhyggjur af afleiðingum peningamálastefnu Seðlabankans
Samtök atvinnulífsins telja nauðsynlegt að endurskoða verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands eins og það var upphaflega sett fram með samkomulagi bankans og ríkisstjórnarinnar 27. mars 2001. Við þessa endurskoðun þarf að taka tillit til þess að stjórntæki bankans, stýrivextirnir, hafa takmörkuð samdráttaráhrif á eftirspurn og verðbólgu, en leiða til verulegra sveiflna á gengi íslensku krónunnar. Viðvarandi hátt gengi krónunnar hefur átt drjúgan þátt í miklum halla á vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd og gert útflutnings- og samkeppnisatvinnuvegunum mjög erfitt fyrir. Í bréfi SA til forsætisráðherra ítreka samtökin áhyggjur sínar af afleiðingum peningamálastefnu Seðlabankans og þeim óstöðugleika sem hún veldur. Bréfið er sent í framhaldi af bréfi SA til forsætisráðherra 4. júní sl. Í því segir m.a. að sveiflur á gengi krónunnar frá þeim tíma gefi enn brýnt tilefni til þess að hefja nú þegar vinnu við að undirbúa stefnubreytingar.
15.8.2007
Nauðsynlegt að rýmka atvinnuleyfisheimildir
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við fréttastofu Útvarps að íslensk þekkingarfyrirtæki þurfi á sérhæfðu og háskólamenntuðu starfsfólki að halda - frá Bandaríkjunum, Kanada, Kína, Indlandi og fleiri ríkjum sem eru utan Evrópska efnahagssvæðisins. Rýmka þurfi heimildir til þess að þetta fólk geti unnið hér.
14.8.2007
Samstarf opinberra aðila og einkageirans í þróunarríkjum
Utanríkisráðuneytið hefur óskað eftir hugmyndum þeirra sem eru í viðskiptum eða með starfsemi í þróunarlöndum um verkefni sem skulu miða að uppbyggingu á raunhæfu samstarfi opinberra aðila og einkageirans í þróunarríkjum. Verkefnið kallast Nordic Business Outreach og hefur þegar verið hleypt af stokkunum á Norðurlöndum og gefur góða raun. Tilgangur verkefnisins er m.a. að sameina markmið Sameinuðu þjóðanna um aukna þátttöku einkageirans í þróunarsamvinnu og vinna jafnframt að framgangi stefnumiða Íslands í þróunarmálum.










