Fréttir
29.6.2007
Norðurvegur fari í umhverfismat
Kynntar hafa verið athuganir á gerð svokallaðs Norðurvegar. Veginum er ætlað að liggja frá Gullfossi um Kjöl milli Hofsjökuls og Langjökuls og tengjast hringveginum við Silfrastaði í Skagafirði. Þessar athuganir hafa verið gerðar af frumkvæði einstaklinga og fyrirtækja sem stofnað hafa sérstakt félag til að hafa forystu um framkvæmdina. Æskilegt er að hafist verði handa við gerð umhverfismats þannig að í ljós komi hvort vegurinn muni skila jákvæðri niðurstöðu þegar litið er til áhrifa á samfélag, efnahag og umhverfi og um leið fyrir sjálfbæra þróun íslensks samfélags. Niðurstaða matsins verði svo látin ráða því hvort í framkvæmdina verði ráðist.
22.6.2007
Óskýrður launamunur mælist 10-12%
Niðurstöður nýrrar rannsóknar Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á launagreiðslum íslenskra fyrirtækja árið 2006 eru þær að munur á föstum mánaðarlaunum karla og kvenna sem ekki verði skýrður með öðru en kyni mælist 10-12%. Rannsóknin var unnin í samvinnu við ParX viðskiptaráðgjöf IBM og
20.6.2007
Lítil breyting á aðstæðum í atvinnulífi
Nýjasta ársfjórðungslega könnun Capacent Gallup á stöðu og framtíðarhorfum hjá 400 stærstu fyrirtækjum landsins sýnir litlar breytingar frá hliðstæðum könnunum undanfarin misseri. Aðstæður í efnahagslífinu eru frekar eða mjög góðar að mati forsvarsmanna um 84% þátttökufyrirtækja. Horfur þegar litið er hálft ár fram í tímann eru að vísu mun óvissari en var á árunum 2003-2004 en þó svipaðar og í síðustu þremur könnunum. Skortur á vinnuafli er meiri en fyrr á þessu ári en svipaður og á sama tíma í fyrra. Áfram ríkir að flestu leyti bjartsýni um þróun eftirspurnar á innlendum og erlendum mörkuðum næstu sex mánuði. EBITDA-framlegð hefur vaxið hjá um helmingi fyrirtækjanna en horfur um þróun framlegðar næstu sex mánuði eru þó breytilegar eftir atvinnugreinum. Athygli er vakin á að könnunin var gerð í maímánuði, en eftir það hafa birst nýjar opinberar upplýsinga um versnandi ástand nytjastofna á Íslandsmiðum og minni vöxt í þjóðarbúskapnum en áður var spáð.
18.6.2007
Aðgangur að háskólum verði takmarkaður
Stýra þarf námsframboði í íslenskum háskólum og takmarka frekar aðgang að þeim til að nýta betur fé. Efla þarf kennslu í raunvísindum, verk- og tæknifræði. Þetta er meðal þess sem lesa má út úr ályktunum Ríkisendurskoðunar í nýlegri skýrslu um kostnað, skilvirkni og gæði háskólakennslu.
15.6.2007
Forseti Evrópusamtaka atvinnulífsins endurkjörinn
14.6.2007
Vel sóttur fundur um efnahagsbrot
Húsfyllir var á morgunverðarfundi SA og saksóknara efnahagsbrota sem fram fór á Grand Hótel Reykjavík en þar var rætt um efnahagsbrot, þolendur þeirra og afleiðingar. Sarah Jane Hughes, prófessor í lögum við
13.6.2007
Þolendur og afleiðingar efnahagsbrota
12.6.2007
SA og ASÍ semja um starfstengda streitu
Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa undirritað samkomulag um starfstengda streitu. Markmið samkomulagsins er að auka vitund og skilning atvinnurekenda og starfsmanna á starfstengdri streitu. Ætlunin er að brugðist verði við vandamálum vegna starfstengdrar streitu sem er áhættuþáttur varðandi öryggi og heilbrigði á vinnustað. Samkomulag þetta fylgir í kjölfar rammasamnings Evrópusamtaka atvinnulífsins (BUSINESSEUROPE) og Evrópusamtaka verkalýðsfélaga (ETUC) en aðildarsamtökin hafa fengið það hlutverk að innleiða samninginn í samræmi við reglur og venjur.
11.6.2007
Loftslagsbreytingar og orkumál á fundi 8 helstu iðnríkja heims í Þýskalandi
Yfirlýsing leiðtogafundarins í Heiligendamm gefur til kynna að meiri samhljómur sé í sjónarmiðum ríkjanna í loftslagsmálum en hingað til. Bandaríkin virðast viðurkenna mikilvægi þess að ná frekari samningum um að draga úr útstreymi. Lykilatriði sé að samningar og markmið sem sett eru nái einnig til ríkja í örri þróun (Indland, Kína). Evrópusambandið virðist einnig viðurkenna að sambandið hafi lítil sem engin áhrif við að sporna gegn loftslagsbreytingum eitt og sér. Mikilvægara sé að ná samstöðu um raunverulegan samdrátt útstreymis en að setja óljós markmið um tilteknar hitabreytingar á jörðunni. Ríkin eru sammála um að ljúka samningum um langtímamarkmið á skömmum tíma, þ.e. fyrir árslok 2009 og að ríkjaráðstefnur Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna séu réttur vettvangur til að fjalla um þessi mál.
8.6.2007
Stefnuyfirlýsing G8 fundarins: Hagvöxtur og ábyrgð
Í stefnuyfirlýingu leiðtoga helstu iðnríkja heims sem samþykkt var í Heiligendamm í gær er hvatt til samstarfs um að viðhalda hagvexti og tryggja efnalega velferð og félagslegt öryggi í heiminum. Lögð er áhersla á nýsköpun og vernd hugverka, ábyrga nýtingu auðlinda, baráttu gegn spillingu og aukna fjárfestingu í þróunarrríkjum.
8.6.2007
Mikil áhrif álvers í Helguvík á atvinnulíf og sveitarfélög á Reykjanesi
Ætla má að störfum á Reykjanesi fjölgi um rúmlega 1.000 verði 250 þúsund tonna álver reist í Helguvík. Atvinnutekjur á Reykjanesi munu aukast um rúma þrjá milljarða króna og íbúum fjölga um allt að 2.000 manns. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Samtaka atvinnulífsins en þar segir að skatttekjur Reykjanesbæjar muni aukast um fimmtung og verða rúmlega 600 milljónum króna hærri en ella frá árinu 2015 ef áform um álver í Helguvík nái fram að ganga. Áætlað er að skatttekjur annarra sveitarfélaga á Suðurnesjum muni aukast um tæplega 200 milljónir króna á ári og skatttekjur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu aukast um 100 milljónir króna. Áhrif á skatttekjur ríkisins verða einnig umtalsverð. Ætla má að tekjuskattur til ríkisins vegna aukinna launatekna muni nema um einum milljarði króna árlega, tryggingagjald skili um 270 milljónum og tekjuskattgreiðslur fyrirtækisins gætu numið 1-2 milljörðum króna árlega
7.6.2007
Tillögur ESB um útstreymi frá flugi eru óhóflega dýrar og brengla samkeppni
Evrópusamband flugfélaga hefur kynnt óháð mat á tillögum framkvæmdastjórnar ESB um að fella flug undir útstreymistilskipun ESB. Niðurstöður matsins eru m.a að kostnaður flugfélaga vegna tillagnanna sé stórlega vanmetinn og að þær muni hafa áhrif á getu félaganna til fjárfestinga og um leið dragi stórlega úr þeim ávinningi sem þær geti haft fyrir umhverfið. Tillögur ESB geta haft veruleg áhrif á íslensk flugfélög og samkeppnisstöðu þeirra auk þess sem fargjöld og gjöld fyrir vöruflutninga munu hækka.
7.6.2007
Frjálst flæði matvöru til og frá Íslandi í undirbúningi
Verið er að undirbúa innleiðingu matvælalöggjafar Evrópusambandsins hér á landi. Miðað er við að löggjöfin geti tekið gildi í ársbyrjun 2010 og að eftir það falli niður bann við innflutningi á ýmsum matvælum frá Evrópska efnahagssvæðinu svo sem kjötvörum, eggjum og mjólkurvörum. Sama gildir um útflutning íslenskra afurða.
5.6.2007
Þjónustuviðskipti innan EES – nýjar kröfur til erlendra fyrirtækja og íslenskra notendafyrirtækja
Erlendum fyrirtækjum sem senda starfsmenn til Íslands ber að tilkynna Vinnumálastofnun um starfsemi sína hér á landi, greiða laun samkvæmt íslenskum kjarasamningum, slysatryggja starfsmenn og í vissum tilvikum hafa fulltrúa hér á landi. Notendafyrirtæki hér á landi skal óska eftir staðfestingu þess að erlenda fyrirtækið hafi sinnt upplýsingaskyldu sinni og ber að afhenda Vinnumálastofnun gögn, sé þess óskað.
4.6.2007
Stjórn peningamála í ógöngum
Í morgun átti framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins fund með forsætisráðherra og utanríkisráðherra til að leggja áherslu á að ríkisstjórnin taki þegar á þeim vanda sem stjórn peningamála og hagstjórnin hefur ratað í. Aðgerðir Seðlabankans skaði atvinnulíf án þess að skila árangri á móti og að bankinn muni ekki að óbreyttu um fyrirsjáanlega framtíð eiga möguleika á því að lækka vexti. Fyrstu aðgerðir verða að beinast að því að skapa forsendur fyrir lækkandi verðbólgu. Hafa verður hemil á aukningu samneyslu og tilfærsluútgjalda. Lækka verður lánshlutföll íbúðalánasjóðs og lánsfjárhæðir. Ríkisstjórnin þarf að gefa Seðlabankanum skýr skilaboð um að hún ætlist til þess að bankinn vinni ekki gegn trúverðugleika efnahagsstefnunnar og gegn væntingum um lægri verðbólgu. Það gefur Seðlabankanum tækifæri til þess að komast úr sjálfheldu hárra vaxta en það vekur von um að gengi krónunnar verði stöðugra og lægra en nú og þannig meira í takt við getu atvinnulífsins og stöðuna í viðskiptum við útlönd. Framkvæmdastjórnin afhenti forsætisráðherra bréf þar sem þessum sjónarmiðum er lýst.
4.6.2007
Furðulegur tekjustofn Neytendastofu
Í nýlegum lögum frá Alþingi nr. 91/2006 um mælingar o.fl. er ráðherra veitt heimild til að gefa út gjaldskrá fyrir löggildingargjald þar sem þjónustuaðili við löggildingu tækja þarf að greiða til Neytendastofu 15% - 25% af þeim tekjum sem hann aflar við löggildinguna. Heimild þessi virðist jafngilda skattheimtu og er gjaldtökuheimildin án nokkurar tengingar við kostnað Neytendastofu af því að veita umræddum aðilum þjónustu.
1.6.2007
Ólöglegar eftirlíkingar af framleiðsluvörum á Íslandi
Á síðustu árum hafa ýmis konar eftirlíkingar af framleiðsluvörum, flestar upprunnar í Kína, flætt yfir Vesturlönd. Ísland er þar ekki undanskilið en bæði er um að ræða dreifingu á eftirlíkingum af þekktum húsgögnum og einnig öðrum vörum sem eru merktar með vörumerkjum annarra aðila. Erfitt getur verið fyrir fyrirtæki að verjast þessari meinsemd en í íslenskum tollalögum er að finna heimild fyrir tollyfirvöld að uppfylltum tilteknum skilyrðum að fresta tollafgreiðslu ef sýnt þykir að innflutningur vöru brjóti gegn hugverkaréttindum. Nýleg lög veita einnig heimild fyrir rétthafa sem telja brotin á sér hugverkaréttindi að óska þess að sýslumaður framkvæmi leit í húsakynnum þess sem talinn er brotlegur. Lögunum hefur þegar verið beitt á Íslandi og á þessu ári og síðasta ári gengu dómar í tveim málum hér á landi þar sem niðurstaðan var sú að banna dreifingu eftirlíkinga af þekktum stólum.










