Fréttir
30.5.2007
Inn við beinið erum við öll eins
29.5.2007
Frestur til að sækja um losunarheimildir að renna út
Orku- og iðnfyrirtæki sem losa meira en 30 þúsund tonn af koldíoxíði árlega þurfa að sækja um sérstakar losunarheimildir til Umhverfisstofnunar ekki síðar en 1. júní næstkomandi vegna áætlaðrar losunar koldíoxíðs á tímabilinu 1. janúar 2008 til 31. desember 2012. Umsóknargjald er 250.000 kr. sem skal greiða við afhendingu umsóknar.
23.5.2007
Ríkisaðstoð við atvinnulíf með minnsta móti á Íslandi
Í nýrri skýrslu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) kemur fram að ríkisaðstoð við atvinnulíf er með minnsta móti á Íslandi. Stofnunin kannaði ríkisaðstoð í EFTA löndunum á árunum 2004 og 2005 og bar saman við ESB-ríkin. Þetta er fyrsta skýrslan sem ESA sendir frá sér um þetta efni en í henni kemur m.a. fram að heildarfjárhæð veittra styrkja í EFTA ríkjunum nam um 1,6 milljörðum evra árið 2005 eða sem nemur um 138 milljörðum íslenskra króna. Heildarfjárhæð styrkja er langhæst í Noregi og var hlutfall styrkja af vergri landsframleiðslu á árinu 2005 ríflega fjórfalt miðað við samsvarandi hlutfall hér á landi og sautjánfalt miðað við Liechtenstein. Þegar horft er til hlutfalls af landsframleiðslu var ríkisaðstoð tæplega þrefalt hærri í ESB-ríkjunum en á Íslandi og ríflega þrefalt hærri í EFTA-ríkjunum.
21.5.2007
Viðtalstímar viðskiptafulltrúa sendiráðsins í Kaupmannahöfn
Ragna Sara Jónsdóttir viðskiptafulltrúi í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn verður með viðtalstíma á Íslandi dagana 25. og 29. maí næstkomandi. Viðtölin eru einkum ætluð fyrirtækjum sem óska eftir aðstoð sendiráðsins í starfi sínu í umdæmislöndum þess sem eru auk Danmerkur; Ísrael, Rúmenía, Slóvenía og Tyrkland. Viðtölin fara fram hjá Útflutningsráði í Borgartúni 35 og eru forsvarsmenn fyrirtækja hvattir til að bóka fundi sem fyrst í síma 511 4000 eða með tölvupósti á utflutningsrad@utflutningsrad.is.
16.5.2007
Málþing um starfsmenntun og fræðslu í atvinnulífinu
Landsmennt efnir til málþings um starfsmenntun og fræðslu í atvinnulífinu í lok maí. Landsmennt er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni en á þinginu verður einnig fjallað um starfsemi Landsmenntar. Í fyrra veitti sjóðurinn fræðslustyrki til 79 fyrirtækja fyrir um 17 milljónir króna. Þá voru veittir 1866 styrkir samtals að upphæð 46 milljónum króna. Málþingið verður í Skíðaskálanum í Hveradölum 30. maí kl. 11.30 – 15.30.
14.5.2007
Lýðræðið styrkt með rafrænum hætti?
Um 85% áhrifavalda í íslensku þjóðfélagi telja líklegt að rafrænar kosningar til þings og sveitastjórna og um stærri mál verði innleiddar á næstu áratugum í því skyni að styrkja lýðræðið. Í aðdraganda aðalfundar SA 2007 sem fram fór í apríl gerði Capacent Gallup könnun meðal þjóðarinnar þar sem þetta kom m.a. fram. Gangi þetta eftir gæti ferðum á kjörstað því fækkað en músarsmellir fólks heima í stofu öðlast aukið vægi.
11.5.2007
Ólöglegar eftirlíkingar frá Kína
Sífellt fleiri fyrirtæki þurfa að kljást við ólöglegar eftirlíkingar á vörum þeirra sem ættaðar eru frá Kína. Eftirlíkingarnar skjóta nú víða upp kollinum og er vandamálið vaxandi, m.a. í Danmörku. Leikfangaframleiðandinn LEGO reynir t.a.m. að hafa upp á fyrirtækjum í Kína sem framleiða nákvæmar eftirlíkingar af vörum LEGO. Gæði eftirlíkinganna frá Kína fara vaxandi og oft þarf sérfræðinga til að greina í sundur upprunalega vöru og ólöglegar eftirlíkingar. Talið er að 60% af ólöglegum varningi af ýmsu tagi í Evrópusambandinu komi frá Kína.
9.5.2007
Hár launakostnaður á Íslandi
Heildarlaunakostnaður á Íslandi er hærri en meðaltal heildarlaunakostnaðar innan Evrópusambandsins þegar horft er til helstu atvinnugreina á almennum vinnumarkaði. Ný rannsókn á launakostnaði fyrirtækja í Evrópu sýnir að á Íslandi er heildarlaunakostnaður á almennum vinnumarkaði mestur í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 29 evrur á vinnustund en minnstur í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu, 22,5 evrur. Hlutfall annars launakostnaðar en launagreiðslna af heildarlaunakostnaði er hæst í samgöngum og flutningum, 17% en lægst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 14,7%. Frá þessu er greint á vef Hagstofunnar.
7.5.2007
Frumvarp til jafnréttislaga verði endurskoðað
Endurskoða þarf frumvarp til jafnréttislaga sem nú liggur fyrir og er í opnu umsagnarferli. Þetta er mat Hrafnhildar Stefánsdóttur, yfirlögfræðings SA, en hún fjallaði um álitaefni varðandi frumvarpið á vinnuréttardegi Háskólans á Bifröst. Endurskoðunarnefnd jafnréttislaga samdi frumvarpið en Hrafnhildur fjallaði aðallega um jafnrétti og jöfn laun og hvaða áhrif jafnréttisreglur hafi á stjórnunarrétt atvinnurekenda samkvæmt frumvarpinu samanborið við skilgreiningar Evrópuréttar og dómaframkvæmd.
3.5.2007
Er hægt að efna kosningaloforðin?
„Hagvöxtur hefur tiltölulega lítið verið til umræðu í yfirstandandi kosningabaráttu og það er eins og væntingar standi almennt til þess að landsframleiðslan, kaupmátturinn og lífskjör landsmanna haldi áfram að batna á næstu árum í sama takti og verið hefur undanfarin ár," segir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann spyr hvort stjórnmálaflokkarnir geti efnt þau loforð sem gefin eru í aðdraganda kosninga til Alþingis. „Í kosningabaráttunni eru vaktar væntingar um áframhaldandi uppbyggingu velferðarkerfisins, samgöngumannvirkja og annarra innviða samfélagsins samhliða því að skattar eiga að lækka. Reyndar heyrist líka að stöðva eigi einstök framfaramál í atvinnulífinu s.s. fjárfestingar í áliðnaði og orkuverum, hagstjórnin er gagnrýnd og jafnvægi lofað í efnahagslífinu."
3.5.2007
Óstjórn í efnahagsmálum hefur fækkað Íslendingum
Ef horft er á mannfjöldaþróun Íslendinga síðustu áratugi kemur í ljós að almennt efnahagsástand hefur mótað allt þjóðlífið og haft bein áhrif á mannfjölda. Óstjórn í efnahagsmálum og óhagstætt árferði hafa í gegnum tíðina tvímælalaust haft áhrif til skamms tíma, en einnig má lesa afleiðingarnar langt aftur í tímann eins og árhringi í trjám. Í kjölfar síldarbrests og efnahagskreppu undir lok sjöunda áratugs síðustu aldar fækkaði barnsfæðingum t.a.m. verulega og á tímum óðaverðbólgu á áttunda og níunda áratugnum áttu önnur viðfangsefni en barneignir hug Íslendinga.
3.5.2007
Ný lög um losun gróðurhúsalofttegunda
Frá næstu áramótum verður orkufrekum iðnaði óheimilt að starfa án heimilda til losunar koldíoxíðs í andrúmsloftið. Starfandi fyrirtæki eiga að sækja um heimildir fyrir 1. júní næstkomandi en önnur fyrirtæki að minnsta kosti 9 mánuðum áður en starfræksla hefst. Birt verður áætlun um úthlutaðar losunarheimildir fyrir lok september um tímabilið 2008 - 2012.
3.5.2007
Samstarf SA við NUSUKA á Grænlandi
Samtök atvinnulífsins hafa tekið upp samstarf við Samtök grænlenskra atvinnurekenda – NUSUKA. Framkvæmdastjóri NUSUKA, Ole Aggo Markussen, segir samstarfið mikilvægt skref fyrir grænlenskt atvinnulíf og það muni tengja Ísland og Grænland betur saman. Samstarf landanna á sviði atvinnulífs verður aukið og munu SA meðal annars miðla félagsmönnum NUSUKA af reynslu sinni varðandi samskipti við ESB. Vefur NUSUKA
3.5.2007
SA og SVÞ á Akureyri 3. maí
Samtök atvinnulífsins og SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu verða á Akureyri fimmtudaginn 3. maí til að kynna starfsemi samtakanna og til að kynnast atvinnulífi norðan heiða. Opin kynning fer fram á Hótel KEA klukkan 17 og eru fulltrúar fyrirtækja á Akureyri og í nágrenni hvattir til að mæta.
3.5.2007
Skattlagning söluhagnaðar milli fyrirtækja verði afnumin
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir það rangt að ríkið hafi orðið af 50 milljarða skatttekjum á 5 ára tímabili vegna frestunar fyrirtækja á söluhagnaði. Í samtali við fréttastofu Sjónvarps segir hann áríðandi að ganga lengra í að lækka skatta á fyrirtæki svo þau stofni ekki eignarhaldsfélög erlendis til að komast hjá skattgreiðslum.












