Fréttir
30.3.2007
Góðu gengi í ferðaþjónustu fagnað
Í ályktun aðalfundar Samtaka ferðaþjónustunnar er góðu gengi í íslenskri ferðaþjónustu á síðasta ári fagnað. Aukning gjaldeyristekna um 18%, fjölgun erlendra ferðamanna um 13% og aukning gistinátta á hótelum og gistiheimilum um 10% sé árangur sem hafi m.a. skapast af hagstæðri gengisþróun og auknu sætaframboði til landsins. Miklar breytingar hafi orðið á markaðsstarfi og því sé mikilvægt að horfa til framtíðar við skipulag landkynningar og markaðsmála í síaukinni samkeppni á alþjóðamarkaði. Í ályktuninni er ítrekuð sú skoðun ferðaþjónustunnar að skilja eigi á milli markaðsstarfsemi og annarrar stjórnsýslustarfsemi Ferðmálastofu. Sjá nánar á vef SAF
28.3.2007
Faggiltar skoðunarstofur sjái um vinnueftirlit
Í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Vinnueftirliti ríkisins koma fram margar athyglisverðar ábendingar. Ríkisendurskoðun leggur til að stór hluti þess eftirlits með atvinnurekstri sem Vinnueftirlitið sinnir í dag verði færður til faggiltra skoðunarstofa. Eins er lagt til að eftirlit Vinnueftirlitsins beinist að því fyrst og fremst að aðgæta hvort innra starf fyrirtækjanna sé eins og ætlast er til samkvæmt lögum og reglugerðum. Hvort gert hafi verið áhættumat og hvort öryggistrúnaðarmenn og verðir séu að störfum hjá fyrirtækjunum enda liggur meginábyrgð á því að skapa gott vinnuumhverfi hjá atvinnurekendum. Ríkisendurskoðun leggur áherslu á að eftirlitið verði að vera hlutlægt, gegnsætt og fyrirsjáanlegt. SA taka undir með Ríkisendurskoðun í veigamiklum atriðum en benda á að hafa verði náið samráð við atvinnulífið við innleiðingu tillagna stofnunarinnar.
27.3.2007
SA vilja stuðla að upplýstri umræðu
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir í viðtali við Fréttablaðið að SA vilji fyrst og fremst stuðla að upplýstri umræðu um stækkun álversins í Straumsvík og að málið sé rætt út frá staðreyndum sem lagðar séu á borðið. Talsmaður Sólar í Straumi, Kristín Pétursdóttir, gagnrýnir SA fyrir aðkomu að umræðu um stækkun álversins en Hannes bendir á að kosning Hafnfirðinga um stækkun álversins sé einstök. Að öllum líkindum sé þetta í fyrsta skipti í sögunni sem íbúar í sveitarfélagi greiði atkvæði um stækkun fyrirtækis. Þar með sé fyrirtækinu komið í aðstæður sem það hafi ekki lent í áður, þ.e. kosningabaráttu um framtíðaráform sín sem það geti ekki annað en tekið þátt í.
26.3.2007
Tveir á móti einum
Árið 2050 stefnir í að það verði tveir Íslendingar á vinnumarkaði fyrir hvern ellilífeyrisþega. Íslenska þjóðin er að eldast en í dag eru fimm Íslendingar á vinnumarkaði fyrir hvern ellilífeyrisþega. Þessi þjóðfélagsbreyting sem nú er hafin er í raun ávísun á miklar breytingar á fjölmörgum sviðum. Fjallað verður um þær í opinni dagskrá aðalfundar SA á Hótel Nordica 17. apríl kl. 14:00-16:30. Þar verður m.a. kynnt ný könnun Capacent Gallup á viðhorfum íslensku þjóðarinnar til framtíðarinnar. Þá mun Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, rýna í framtíðina ásamt völdum álitsgjöfum. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA.
23.3.2007
Ný tækifæri til atvinnuþátttöku
Finna þarf form á frjálsum samningum á milli fyrirtækja og þeirra aðila sem fara með málefni þeirra sem búa við skerta starfsorku. Sníða þarf ráðningarsamninga að þörfum þessa hóps með sveigjanlegum vinnutíma og afkastakröfum og láta kostnað vegna greiðslu launa í veikindum falla á sameiginlegan sjóð. Þetta sagði
23.3.2007
Útvistun þjónustuverkefna ríkisins verði hraðað
SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hvetja stjórnvöld til að hraða framgangi útvistunarstefnu ríkisins um þjónustukaup með því að ráðuneyti og fyrirtæki á þeirra vegum setji sér sem fyrst mælanleg markmið um útvistun þjónustuverkefna. Í ályktun aðalfundar SVÞ segir að samtökin telji óásættanlegt að einungis sé endurgreiddur virðisaukaskattur af kaupum ríkisfyrirtækja af þjónustu einnar atvinnugreinar þótt það sé í sjálfu sér gott skref. Stjórnvöld verði að gæta jafnræðis þjónustufyrirtækja á almennum markaði í viðskiptum við ríkið með því að sami háttur verði hafður á um öll þjónustukaup hins opinbera. Ekki megi dragast að skipa málum með þeim hætti. SVÞ skora jafnframt á stjórnvöld um að leggja niður úrelt vörugjöld á heimilistæki og sætindi. Sjá nánar um aðalfund SVÞ á vef samtakanna.
21.3.2007
Samdrætti spáð í íbúðafjárfestingu næstu misserin
Samkvæmt nýju spálíkani um íbúðafjárfestingar, munu íbúðafjárfestingar dragast saman næstu misserin. Ekki er búist við því að fjárfestingin taki við sér fyrr en raunverð fasteigna taki að hækka á nýjan leik, eða um það bil 2-4%. Gunnar Haraldsson og Magnús Árni Skúlason hjá Reykjavík Economics unnu spálíkanið með stuðningi SA og fjármálaráðuneytis. Ein meginforsendan fyrir verkefninu var að kanna hvort íbúðafjárfestingar væru þensluhvetjandi og hvort umframframboð væri að myndast á markaðinum. Í niðurstöðum þeirra segir að í kjölfar mikils nýbyggingaframboðs á undanförnum misserum muni íbúðafjárfesting dragast verulega saman á fyrri hluta árs 2007. Jafnvægi framboðs og eftirspurnar á íbúðamarkaði muni að öllum líkindum nást á árunum 2008 og 2009.
20.3.2007
Villandi skýrsla Hagfræðistofnunar um stækkun álvers
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vanmetur stórlega tekjur Hafnarfjarðarbæjar vegna fyrirhugaðrar stækkunar álvers Alcan í Straumsvík. Í nýrri skýrslu áætlar stofnunin að tekjuauki Hafnarfjarðar vegna stækkunar álversins verði að hámarki 4,7 milljarðar á 50 ára tímabili. Útreikningar Hagfræðistofnunar eru hins vegar mjög takmarkaðir og horft er fram hjá veigamiklum atriðum. Litið er fram hjá afleiddum áhrifum af starfsemi álversins á störf hjá fyrirtækjum í Hafnarfirði og útsvarstekjursem þeim fylgja. Þá byggir stofnunin á þeirri vafasömu forsendu að stækkunin sé ekki hrein viðbót við atvinnulífið í Hafnarfirði heldur því að stækkað álver komi í stað annarrar atvinnustarfsemi. Ef tekið er mið af framangreindu þá verða árlegar tekjur Hafnarfjarðarbæjar af álveri Alcan í íslensku skattumhverfi eftir stækkun rúmlega 1.400 milljónir króna samkvæmt áætlun SA, sem þýðir aukningu um tæpan milljarð króna á ári.
19.3.2007
Mikilvægi menntunar og nýting náttúruauðlinda
Hagvöxtur á Íslandi verður í framtíðinni drifinn áfram af fyrirtækjum sem reiða sig á vel menntað starfsfólk, ekki síst á í iðn- og tæknigreinum. Efla verður raungreinakennslu á öllum skólastigum og bæta árangur nemenda, segir í ályktun Iðnþings Samtaka iðnaðarins. Ennfremur segir að mannauð fyrirtækja þurfi að efla með öllum ráðum, ekki síst gegnum menntakerfið sem sé meginuppspretta þess auðs. Auka verði þátt atvinnulífsins í stjórnun skóla sem sinni þörfum þess fyrir menntaða starfsmenn. Í því felist sameiginlegur ávinningur stjórnvalda, atvinnulífs, skóla og nemenda. Í ályktuninni er einnig rætt um nýtingu náttúruauðlinda og segir m.a. að skapa verði sátt um skynsamlega nýtingu þeirra. Sjá ályktunina í heild á vef SI
15.3.2007
Verslunarstörf henta eftirlaunaþegum vel
Í viðhorfskönnun sem Rannsóknasetur verslunarinnar lét gera meðal eldri borgara í lok febrúar kemur í ljós að um 66% þeirra sem eru á eftirlaunaaldri, eða eru að komast á þann aldur, telja að verslunarstörf henti eftirlaunaþegum mjög vel eða frekar vel. Könnunin er liður í stærri rannsókn sem Rannsóknasetur verslunarinnar vinnur að varðandi starfsmannamál í verslunum og aukna atvinnuþátttöku eldri borgara og öryrkja. Könnunin náði til 800 manna hóps fólks á aldrinum 65 – 71 árs og byggði á 400 manna tilviljanaúrtaki úr þjóðskrá og sambærilegu úrtaki úr félagaskrá Landssambands eldri borgara.
13.3.2007
Samtök atvinnurekenda í sjávarútvegi stofnuð
Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök fiskvinnslustöðva hafa stofnað Samtök atvinnurekenda í sjávarútvegi. Um er að ræða samstarfsvettvang samtaka atvinnurekenda í sjávarútvegi, sem starfa innan Samtaka atvinnulífsins. Meginhlutverk samstarfsins felst í nánara samstarfi og samþættingu verkefna er varða kynningar- og ímyndarmál sjávarútvegsins, auk umhverfismála og annarra verkefna er varða sameiginlega hagsmuni. Sjá nánar á vef LÍÚ.
12.3.2007
Atvinnuleysi 1,3% í febrúar
Í febrúarmánuði síðastliðnum voru skráðir 40.682 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.037 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,3% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Atvinnuleysi er töluvert minna en á sama tíma fyrir ári þegar það mældist 1,6%, en ef litið er til febrúar 2006 hefur fækkað um 301 í hópi atvinnulausra, eða um 13%. Atvinnuleysi mældist 1,3% í janúar. Að sögn Vinnumálastofnunar breytist atvinnuástand yfirleitt lítið frá febrúar til mars. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
12.3.2007
Hnattræn hugsun nauðsynleg í loftslagsmálum
12.3.2007
Reglugerð um merkingu erfðabreyttra matvæla mótmælt
9.3.2007
Fordæmalaus gjaldtaka Umferðarstofu
Samtök atvinnulífsins mótmæla harðlega nýjum tillögum um víðtækar og hömlulausar heimildir til Umferðarstofu til að innheimta gjald fyrir veitta þjónustu. Að mati samtakanna jafngildir tillagan því að stofnuninni verði heimilt að leggja skatt á greiðendur skráningargjalda bifreiða og annarar þjónustu sem stofnunin veitir. Gjaldtakan er bundin í lögum og einokar Umferðarstofa þessa þjónustu. Hvergi er að finna neitt sem veitt getur stofnuninni aðhald í að takmarka gjaldtökuna. Tillagan sem fyrir Alþingi liggur er fordæmalaus og felur í sér nýja og útvíkkaða skilgreiningu á gjaldi fyrir veitta þjónustu sem
8.3.2007
Erlendar eignir: 300 - 400 milljarða vanmat Seðlabanka
Samkvæmt nýútkomnum tölum Seðlabankans virðast íslenskir fjárfestar hafa orðið fyrir meiri háttar hremmingum ár eftir ár í fjárfestingum sínum erlendis en haldið samt ótrauðir áfram fjárfesta og tapa fjármunum. Skuldir þjóðarinnar umfram eignir eru samkvæmt bankanum um 1354 milljarðar króna eða 119,5% af vergri landsframleiðslu. Slík skuldastaða er ógnvænleg og því er það merkilegt að í atvinnulífi landsmanna skuli lítið heyrast um varnaðarorð. Ástæðan er eflaust sú að það umhverfi sem birtist í hagtölum Seðlabankans er afar framandi flestum sem starfa í atvinnulífinu og fylgjast með gangi þess. Miðað við eðlilega áxöxtun vanmetur Seðlabankinn eignir Íslendinga erlendis um allt að 400 milljarða króna. Það er því nauðsynlegt að fram fari gagnger bragarbót á talnagrunni Seðlabankans áður en það verður almenn skoðun út um heim að Ísland sé að fara á hausinn á meðan efnahagslífið stendur í raun sterkari fótum en nokkru sinni fyrr.
7.3.2007
Ný tækifæri til atvinnuþátttöku
Öryrkjabandalag Íslands og Vinnumálastofnun efna til ráðstefnu um ný tækifæri til atvinnuþátttöku í samstarfi við Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins. Ráðstefnan fer fram í Gullhömrum fimmtudaginn 22. mars frá kl. 9-16. Fjölbreytt erindi eru á dagskrá auk pallborðsumræðna en Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, mun m.a. fjalla um aðkomu atvinnurekenda að starfsendurþjálfun í ljósi nýrrar skýrslu örorkumatsnefndar. Nánari upplýsingar um dagskrá og skráning á vef Öryrkjabandalags Íslands.
6.3.2007
Endurskoðun örorkumats og efling starfsendurhæfingar
Bæta á hag þeirra einstaklinga sem búa við skerta starfsorku vegna örorku og auka atvinnuþátttöku þeirra. Þetta er einróma niðurstaða nefndar forsætisráðherra sem falið var að koma með tillögur um hvernig endurskoða mætti örorkumat og efla starfsendurhæfingu ásamt því að einfalda og bæta þjónustu. Í nefndinni sátu fulltrúar stjórnvalda, ASÍ, SA, lífeyrissjóða og Öryrkjabandalagsins. Nefndin telur að huga þurfi sérstaklega að þeim sem horfið hafi af vinnumarkaði af ýmsum ástæðum og að brýn þörf sé á að breyta núverandi fyrirkomulagi örorkumats. Óbreytt ástand og áframhaldandi fjölgun lífeyrisþega hafi í för með sér vaxandi útgjöld vegna aukinna bótagreiðslna ríkis og lífeyrissjóða.
5.3.2007
Ráðstefna um samskipti fjárfesta og frumkvöðla
Samtök iðnaðarins efna til ráðstefnu um samskipti fjárfesta og frumkvöðla föstudaginn 9. mars frá 8:30 til 12:00 í Salnum í Kópavogi. Þar munu fjárfestar og frumkvöðlar m.a. ræða hvort bætt samskipti þeirra geti aukið vaxtarhraða og þroska sprotafyrirtækja ásamt því að leiða til betri arðsemi þegar á markað er komið. Meðal þátttakenda er Jon S. Von Tetzchner, framkvæmdastjóri Opera Software. Nánari upplýsingar og skráning á vef SI
1.3.2007
Afleikur
„Félagsmálaráðherra lék mikinn afleik með því að hækka á ný lánshlutfall og fjárhæðamörk hjá Íbúðalánasjóði” segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi, og bendir á að við gerð kjarasamninga síðasta sumar hafi SA lagt mikla áherslu á lækkun lánshlutfallsins til að stemma stigu við síhækkandi íbúðaverði og til að tryggja lækkun verðbólgunnar. „Hækkun lánshlutfalls í 90% og hámarksláns í 18 milljónir gengur þvert á ákvörðun ríkisstjórnarinnar í kjölfar kjarasamninganna og á eftir að virka sem verðbólgufóður engum til gagns,” segir Vilhjálmur ennfremur og segir einstakt tækifæri til að festa efnahagslegan stöðugleika í sessi á árinu vera í hættu. Hækkun íbúðalána sé afleikur.
1.3.2007
Uppboð á tollkvótum halda uppi vöruverði
Alþingi hefur samþykkt breytingar á tollalögum, í kjölfar samninga við ESB, sem fela í sér auknar heimildir til innflutnings á tollfrjálsum landbúnaðarafurðum. Þessi breyting er jákvætt skref og ætti að geta stuðlað að aukinni samkeppni og lægra vöruverði ef vel tekst til. Sú framkvæmd sem hingað til hefur verið viðhöfð við úthlutun þessara tollfrjálsu innflutningsheimilda, uppboð á tollkvótum, hefur hins vegar unnið gegn markmiðum stjórnvalda um aukna samkeppni á innanlandsmarkaði og lækkað vöruverð. Samkvæmt frumvarpinu er áfram gert ráð fyrir að innflytjendur landbúnaðarafurða bjóði í tollkvóta á uppboði en
1.3.2007
Alvarlegar athugasemdir við breytingar á samkeppnislögum
Samtök atvinnulífsins gera alvarlegar athugasemdir við frumvarp til breytinga á samkeppnislögum þótt ýmislegt í því sé til bóta. SA telja að refisheimildir séu hertar um of og benda á að í frumvarpinu sé gengið lengra en í nágrannaríkjum Íslands. Það er mat SA að fyrningarfrestur vegna brota á samkeppnislögum eigi að vera 5 ár eins og í nágrannalöndunum, bæði fyrir lögaðila og einstaklinga, og að viðurlög við brotum á samkeppnislögum eigi að meginstefnu til að vera í formi sekta. SA taka undir sjónarmið forstjóra Samkeppniseftirlitsins um mikilvægi þess að samtök fyrirtækja séu ekki skjól eða vettvangur samkeppnislagabrota.
1.3.2007
Framtíðarviðhorf Íslendinga kortlögð
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins verður haldinn þann 17. apríl næstkomandi á Hótel Nordica. Þar verður leitað svara við því hvert Íslendingar stefni. Á fundinum verður lögð fram viðamikil könnun Capacent Gallup fyrir SA um viðhorf þjóðarinnar til framtíðarinnar – auk þess sem fundargestir fá ritið Ísland 2050 - Hvert stefnum við? Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur. Venjuleg aðalfundarstörf hefjast klukkan 13:00 en opin dagskrá hefst stundvíslega klukkan 14:00 og stendur til 16:30. Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA.
1.3.2007
Innleiðingu á þjónustutilskipun ESB verði hraðað
Fyrir árslok 2009 eiga ríkin á Evrópska efnahagssvæðinu að hafa innleitt nýja þjónustutilskipun ESB. Markmið hennar er að auðvelda viðskipti með þjónustu á milli landa. Afnema á hindranir og sérstakar reglur sem hafa þann tilgang að takmarka getu fyrirtækja til að veita þjónustu innan EES. Kveðið er á um að öll samskipti við hið opinbera fari um einn tengilið og verði rafræn.
1.3.2007
Evrópskur vinnumarkaður að braggast
Niðurstöður nýrrar efnahagsspár evrópusamtaka atvinnulífsins, BUSINESSEUROPE, benda til þess að efnahagslíf í Evrópu muni halda áfram að styrkjast á árinu en verði í jafnvægi árið 2008. Jákvæð teikn eru á lofti á evrópskum vinnumarkaði. Áætlað er að rúmlega 8 milljón ný störf verði til á þremur árum og að hlutfall vinnandi fólks í álfunni fari hækkandi. Evrópusamtökin segja þó vonbrigði að ekki hafi tekist að auka framleiðni sem skyldi og þörf sé á frekari umbótum. Hagvöxtur á evrusvæðinu er til að mynda aðeins áætlaður 2% á árinu 2008 og 2,4% í ESB. Búist er við að verðbólga fari lækkandi og verði um 2% árið 2008 og atvinnuleysi er áætlað um 7%. Samtökin gefa spá sína út tvisvar á ári. Sjá nánar á vef BUSINESSEUROPE












