Fréttir
28.2.2007
Ráðstefna um útvistun verkefna og opinber innkaup
Samtök upplýsingatæknifyrirtækja og Samtök iðnaðarins efna til ráðstefnu um ávinning af útvistun verkefna og þróun opinberra innkaupa. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við Ríkiskaup og ráðuneyti fjármála, iðnaðar og viðskipta og fer fram í nýju Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal fimmtudaginn 1. mars frá 13:00 til 15:00. Ráðstefnan er opin og aðgangur ókeypis. Sætaframboð er takmarkað og er nauðsynlegt að skrá þátttöku á vef SI.
27.2.2007
Íslenskir bankar og sparisjóðir verðlaunaðir
ICEPRO verðlaunin í ár komu í hlut Glitnis, Kaupþings, Landsbanka og sparisjóðanna en verðlaunin voru veitt í 11. sinn á aðalfundi ICEPRO. Verðlaunin eru veitt þeim skarað hafa fram úr á sviði rafrænna samskipta. Í máli Jóns Sigurðssonar, viðskiptaráðherra, sem veitti verðlaunin kom fram að ákveðið hefði verið að þessu sinni að verðlaunahafar yrðu fleiri en einn og væri það í fyrsta skipti sem slíkt væri gert.
26.2.2007
Störfum fjölgar í Hafnarfirði
Störfum í Hafnarfirði mun fjölga verulega komi til stækkunar álvers Alcan í Straumsvík. Starfsmönnum Alcan mun fjölga um rúmlega þrjú hundruð en fyrir hvert eitt starf sem skapast í álverinu verða til 2,4 afleidd störf annars staðar. Bein afleidd störf í Hafnarfirði verða eftir stækkun um fimm hundruð og áhrif á fyrirtæki í Hafnarfirði sem skipta við álverið munu verða mikil. Áætlað er að viðskipti Alcan við birgja í Hafnarfirði muni rúmlega tvöfaldast og nema um þremur og hálfum milljarði króna á ári eftir stækkun álversins.
23.2.2007
Kastljós Dana beinist enn á ný að Íslandi
Áhugi frænda vorra Dana á íslensku efnahagslífi virðist síður en svo fara dvínandi en fjallað er um Ísland og þróun íslenskra efnahagsmála í nýju fréttabréfi dönsku samtaka iðnaðarins, DI Business. Þar velta menn því fyrir sér hvort Íslendingar geti haldið sínu striki eða hvort vindurinn leki brátt úr þeim. Meðal annars er rætt við
21.2.2007
Auknar kröfur til fyrirtækja innan EES
Ný efnalöggjöf Evrópusambandsins tekur gildi þann 1. júní 2007 og skömmu síðar á Evrópska efnahagssvæðinu. Ástæða er til að hvetja íslensk fyrirtæki til að undirbúa sig vel fyrir gildistöku hennar en framleiðendum og innflytjendum efna verður gert skylt að veita upplýsingar um eiginleika þeirra og einnig verða gerðar kröfur til dreifingaraðila. Óheimilt verður að framleiða eða markaðssetja óskráð efni í Evrópu. Markmið með hinni nýju löggjöf ESB eru að vernda heilsu fólks og umhverfi en með henni er gengið mun lengra en þekkist annars staðar í heiminum. Iðnrekendur í Bandaríkjunum, Kína og á Indlandi munu til dæmis ekki lúta sambærilegum reglum nema þegar þeir flytja efni eða vörur til EES.
19.2.2007
Stefnumót atvinnulífsins í Evrópu
Stefnumót atvinnulífsins í Evrópu fram fer í Brussel 15.-16. mars næstkomandi þar sem umræður um stöðu og framtíð Evrópu á 50 ára afmæli Rómarsáttmálans verða áberandi. Forsætisráðherrar, stjórnendur stórfyrirtækja og leiðtogar Evrópusambandsins munu stinga saman nefjum og ræða samkeppnishæfni Evrópu ofan í kjölinn ásamt hundruðum blaðamanna en búist er við að þátttakendur verði á þriðja þúsund.
19.2.2007
Bleikt er ekki málið
Lisa Johnson, annar tveggja höfunda bókarinnar Don´t think pink , fjallar um rannsóknir sínar á kauphegðun kvenna á fundi SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu og FKA – Félags kvenna í atvinnurekstri í Salnum í Kópavogi þriðjudaginn 20. febrúar. Talið er að konur taki ákvarðanir um allt að 80% þeirra útgjalda sem fara til neyslu í vestrænum samfélögum í dag. Þar af eru konur á aldrinum 18 ára til 40 atkvæðamestar. Lisa mun meðal annars fjalla um hvernig fyrirtæki nái til þessa hóps og hvort framleiðendur og seljendur séu að senda frá sér réttu skilaboðin. Sjá nánar á vef SVÞ.
19.2.2007
Ný efnalöggjöf ESB rædd á fundi SA 21. febrúar
Miðvikudaginn 21. febrúar efna
16.2.2007
Fleiri þurfa að leggja atvinnulífinu lið í loftslagsmálum
15.2.2007
Fyrirtæki geri áhættumat á vinnustað
Samkvæmt nýrri reglugerð ber öllum fyrirtækjum að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði starfsmanna sinna, óháð stærð, starfsgrein eða starfsmannafjölda. Reglugerðin felur í sér að kerfisbundnu vinnuverndarstarfi verði komið á innan fyrirtækja til að draga úr hættu á heilsutjóni, draga úr veikindafjarvistum og stuðla að andlegri og líkamlegri vellíðan starfsmanna á vinnustað. Almennt eiga atvinnurekendur að geta útbúið sjálfir skriflegt áhættumat sem felur í sér áætlun um öryggi og heilbrigði starfsmanna.
13.2.2007
Harðari viðurlög en í nágrannalöndunum
Alþingi hefur nú til meðferðar frumvörp til laga um breytingu á samkeppnislögum annars vegar og um viðurlög við brotum á fjármálamarkaði hins vegar. Í frumvörpunum er gengið lengra en í nágrannalöndum Íslands og lagðar til strangari refsiheimildir en þar tíðkast gagnvart einstaklingum, fyrirtækjum og samtökum fyrirtækja.
13.2.2007
Ný tækifæri í íslenskri þjónustustarfsemi
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu efna til morgunverðarfundar um útvistunarstefnu ríkisins og þá möguleika sem hún felur í sér fyrir þjónustufyrirtæki á almennum markaði. Fundurinn fer fram þann 15. febrúar kl. 8:30 – 10:00 á Hótel Nordica. Fyrirlesarar eru Stefán Jón Friðriksson viðskiptafræðingur í fjármálaráðuneytinu sem talar um ríkið sem upplýstan kaupanda þjónustu og Sigfús Jónsson framkvæmdastjóri Nýsis sem fjallar um ónýtta möguleika íslenskra þjónustufyrirtækja. Sjá nánar á vef SVÞ.
11.2.2007
Viðurlög við efnahagsbrotum
Samtök atvinnulífsins og Samtök fjármálafyrirtækja efna til morgunverðarfundar á Grand Hótel Reykjavík, þriðjudaginn 13. febrúar kl. 8:00 - 10:00. Á fundinum verður rætt um fyrirhugaða breytingu á samkeppnislögum og frumvarp til laga um viðurlög við brotum á fjármálamarkaði. Fulltrúar iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis munu kynna fyrirhugaðar lagabreytingar og fulltrúar atvinnulífsins munu lýsa viðhorfum sínum til þeirra.
7.2.2007
Námskeiðaröð SA um starfsmannamál - skráning stendur yfir
SA halda á næstunni námskeið um starfsmannamál fyrir félagsmenn sína, bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni. Boðið verður upp á almenn námskeið um túlkun og framkvæmd kjarasamninga og námskeið um nýjungar í kjarasamningum og lögum og sérhæfða þætti starfsmannamála. Námskeiðin hefjast þriðjudaginn 13. febrúar í Húsi atvinnulífsins en fullbókað er á fyrsta námskeiðið.
5.2.2007
Sérstaða Íslands í loftslagsmálum
Enginn vafi er á að bæði einstaklingar og atvinnulíf munu finna fyrir auknum kröfum um að dregið verði úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda á næstu árum og áratugum. Atvinnulíf á Íslandi stendur hins vegar almennt vel að vígi á þessu sviði m.a. vegna þess að raforkuframleiðsla á Íslandi veldur ekki útstreymi gróðurhúsalofttegunda. Vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur bent á að loftslagsbreytingar megi fyrst og fremst rekja til brennslu jarðefnaeldsneytis, landbúnaðar og breytinga á landnotkun. Alþjóðasamfélagið hefur jafnframt viðurkennt sérstöðu Íslands sem felst í nýtingu á endurnýjanlegum orkulindum, t.d. við framleiðslu á áli sem feli í sér minni áhrif á verðurfarskerfi heldur en almennt gerist með álframleiðslu annars staðar í heiminum.
2.2.2007
Tekjur Hafnarfjarðar stóraukast vegna stækkunar Alcan
Tekjur Hafnarfjarðarbæjar sem tengjast starfsemi Alcan munu stóraukast komi til stækkunar álversins í Straumsvík og nema um 1.400 milljónum króna á ári. Mikil fjölgun starfa og auknar útsvarstekjur vega þungt, en bærinn mun einnig fá auknar tekjur vegna hafnargjalda og fasteignagjalda. Þetta kom fram í erindi Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, á stefnumóti fyrirtækja í Hafnarfirði sem fram fór í Hafnarborg. Ríkið mun einnig fá sitt því eftir að Alcan færir sig yfir í íslenskt skattkerfi og greiðir 18% tekjuskatt, munu árlegar tekjur ríkisins sem tengjast starfsemi Alcan nema fjórum til fimm milljörðum króna á ári.
2.2.2007
Framlög til fræðslu hækka
Framlög til Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins hækka um rúmlega hundrað milljónir á ári samkvæmt þjónustusamningi menntamálaráðuneytis annars vegar og Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins hins vegar. Greiðslur til fræðsluaðila um land allt verða því um 215 milljónir á ári. Áhersla er lögð á að veita fólki á vinnumarkaði með litla formlega grunnmenntun tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína á vinnumarkaði.
1.2.2007
Samkeppnislög gegn málfrelsi og skoðanafrelsi?
Nú liggur fyrir frumvarp til breytinga á samkeppnislögum þar sem gert er ráð fyrir nýjum og að verulegu leyti mjög hertum refsiheimildum. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi að sá þáttur frumvarpsins sem snúi að starfsemi samtaka fyrirtækja sé um margt mjög sérstakur og ef það yrði að lögum yrði það mjög heftandi fyrir starfsemi samtaka í atvinnulífinu, þ.á.m. Samtaka atvinnulífsins. Sérstaklega er varað við því nýmæli sem felst í frumvarpinu að heimilt verði að beita samtök fyrirtækja sektum sem nemi allt að 10% af veltu þeirra fyrirtækja sem forsvarsmenn samtakanna tengjast. Vilhjálmur segir gengið lengra í frumvarpinu en við nýlegar breytingar á samkeppnislögum í Danmörku og bendir á að
1.2.2007
Markmið um hjöðnun verðbólgu hafa reynst raunhæf
Meginmarkmið samkomulags á almennum vinnumarkaði um mitt síðasta ár var hjöðnun verðbólgu. Í verðbólguspá frá því í júli taldi Seðlabankinn hins vegar að samkomulagið myndi auka á verðbólguþrýsting og að 2,5% verðbólgumarkmið næðist ekki á næstu tveim árum. Staðreyndir um verðlagsþróun undanfarna sjö mánuði sýna að þessi verðbólguspá Seðlabankans hefur sem betur ekki gengið eftir. Árangurinn hefur orðið framar vonum og er útlit fyrir að verðbólgumarkmiðinu verði náð um mitt þetta ár. Með samstilltu átaki aðila á vinnumarkaði og stjórnvalda hafa verðbólguvæntingar minnkað og óvænt launaskrið hefur ekki komið fram. Smám saman hefur dregið úr þenslu í hagkerfinu og fasteignamarkaðurinn kólnað.
1.2.2007
Þungatakmarkanir skapa óvissu og auka kostnað
Nú eru þungatakmarkanir á flestum vegum landsins. Þær hafa í för með sér að afhending vöru tefst, vöruverð er hærra en ella og skapa alls kyns óvissu og óþægindi. Ætla má að takmarkanir geti staðið í 50 til 60 daga á ári eftir því hvaða vegi er um að ræða. Reglulega má heyra af umkvörtunum flutningafyrirtækja vegna þessara mála og eins umfjöllun einstakra bæjar- og sveitarstjórna auk þess sem þessi hluti vegamála er reglulega til umfjöllunar á Alþingi. Mikilvægt er að á þessu verði ráðin bót og taka SA undir hvatningu SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu um 10 ára stórátak í vegamálum.
1.2.2007
Rafræn kosning formanns SA
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins verður haldinn þann 17. apríl næstkomandi á Hótel Nordica. Stjórn Samtaka atvinnulífsins hefur ákveðið að taka upp rafræna kosningu við val formanns samtakanna og fer slík kosning í fyrsta sinn fram í vor.
1.2.2007
Um brotthlaup starfsmanna
Að undanförnu hefur nokkur fjöldi fyrirtækja haft samband við
1.2.2007
Evrópusamtök atvinnulífsins vilja auka snerpu ESB
BUSINESSEUROPE, Evrópusamtök atvinnulífsins, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem bent er á nauðsyn þess að ESB og aðildarríki þess takist á við þær áskoranir sem þau standa frammi fyrir á tímum hnattvæðingar og aukinnar alþjóðlegrar samkeppni. Evrópa verði að auka snerpu sína og samkeppnishæfni eigi álfan ekki að sitja eftir á tímum þar sem allt breytist á ógnarhraða. Hleypa verði nýju lífi í ESB svo hægt sé að blása til sóknar.












