Fréttir
29.9.2006
Búlgarar og Rúmenar fái fullan aðgang að íslenskum vinnumarkaði
SA sjá enga ástæðu til þess að takmarka aðgang rúmenskra og búlgarskra ríkisborgara að íslenskum vinnumarkaði í kjölfar þess að umrædd ríki gerast aðilar að ESB og EES um næstu áramót. Þvert á móti ber okkur að taka vel á móti þessum nýju aðildarríkjum EES með öllum þeim réttindum og skyldum sem aðild hefur í för með sér. Þenslan á íslenskum vinnumarkaði er líklega sú mesta í allri álfunni og greiður aðgangur erlends starfsfólks hefur verið grundvallarforsenda þess hagvaxtar og þeirra lífskjarabóta sem Íslendingar hafa notið undanfarin ár. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Ragnars Árnasonar, forstöðumanns vinnumarkaðssviðs SA, á ráðstefnu EES vinnumiðlunar um íslenskan vinnumarkað í kjölfar stækkunar ESB.
28.9.2006
Umfang flutninga minnst hérlendis, útstreymi eykst lítið
Umhverfisstofnun Evrópu lýsir í skýrslu nokkrum áhyggjum vegna sífellt aukinna flutninga á vörum sem hafi í för með sér aukið útstreymi koltvísýrings og dragi úr þeim ávinningi sem annars hafi náðst við að draga úr almennri umhverfismengun. Athyglisvert er að þegar borið er saman umfang flutninga í EES-ríkjunum með hliðsjón af landsframleiðslu er það minnst hér á landi. Þá jókst útstreymi gróðurhúsalofttegunda vegna flutninga í nær öllum ríkjunum milli áranna 1990 og 2003, en þó mun minna hérlendis en að meðaltali í „eldri“ aðildarríkjum ESB, eða um 15% í stað 24%.
27.9.2006
Er hægt að sætta sjónarmið um nýtingu og verndun?
Samtök iðnaðarins efna til morgunfundar um náttúruvernd og nýtingu náttúruauðlinda á Hótel Nordica fimmtudaginn 5. október frá kl. 8:00 til 10:00. Þar verður m.a. rætt um stefnu stjórnvalda og hvort hægt sé að sætta sjónarmið um nýtingu og verndun. Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Andri Snær Magnason rithöfundur og Illugi Gunnarsson hagfræðingur fjalla um þetta viðkvæma deilumál. Fundarstjóri verður formaður Samtaka iðnaðarins, Helgi Magnússon. Að loknum inngangserindum munu ræðumenn sitja á rökstólum undir stjórn Svanhildar Hólm Valsdóttur og skiptast á skoðunum um þessi efni. Fundurinn er öllum opinn. Sjá nánar á vef SI.
25.9.2006
Verslunin tapar þremur milljörðum á ári vegna þjófnaða
Verslanir á Íslandi tapa yfir 3.000 milljónum króna á ári vegna þjófnaða starfsmanna og viðskiptavina, að því er fram kemur í fréttabréfi SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu, en vegna þjófnaða þurfa verslunareigendur að hækka vöruverð til að mæta kostnaði sem hlýst af þeim. Þá kemur fram að áhrif þjófnaða á neysluvísitölu hækkar vísitölutryggð lán um u.þ.þ 150 milljónir á ári. Það sé því ekki aðeins verslunin sem tapar á þjófnuðum, heldur þjóðfélagið allt. Sjá nánar á vef SVÞ.
25.9.2006
Vika símenntunar
Vika símenntunar verður haldin dagana 24. - 30. september. Menntamálaráðuneytið stendur fyrir Vikunni en Mennt sér um skipulagningu og framkvæmd verkefnisins í samstarfi við símenntunarmiðstöðvar. Símenntunarstöðvarnar á landsbyggðinni og Mímir á höfuðborgarsvæðinu munu skipuleggja dagskrá í Vikunni þar sem boðið verður upp á ókeypis námskeið og ráðgjöf. Þá verður símenntunardagur í fyrirtækjum og stofnunum miðvikudagurinn 27. september, en þann dag eru fyrirtæki og stofnanir hvött til að tileinka fræðslumálum starfsmanna til dæmis með því að kynna starfsmönnum fræðslustefnu eða halda námskeið. Sjá nánar á vef Menntar.
19.9.2006
Ráðstefna um íslenskan vinnumarkað í kjölfar stækkunar ESB
Föstudaginn 29. september verður í Sunnusal Hótel Sögu haldin ráðstefna EES vinnumiðlunar um íslenskan vinnumarkað í kjölfar stækkunar Evrópusambandsins. Ráðstefnan er hluti af evrópsku verkefni þar sem áhersla er lögð á hreyfanleika á vinnumarkaði á árinu 2006 - European Year of Workers Mobility 2006. Ráðstefnan fer fram á ensku og er öllum opin. Í tengslum við ráðstefnuna verður kynning á atvinnu- og námstækifærum í Evrópu, þar sem erlendir sérfræðingar kynna atvinnutækifæri í sínum löndum auk þess sem kynning verður á ýmsum þáttum sem tengjast námi erlendis. Sjá nánari dagskrá ráðstefnunnar á vef Vinnumálastofnunar.
19.9.2006
Dönsk sveitarfélög geta sparað milljarða með auknum útboðum
Forsvarsmenn danskra sveitarfélaga hafa að undanförnu gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir að þeim sé skapaður þröngur fjárhagsrammi og takist því ekki að ná jafnvægi í fjárhagsáætlunum fyrir næsta ár. Nýir útreikningar dönsku samtaka iðnaðarins (DI) sýna á hinn bóginn að sveitarfélögin þurfa ekki nauðsynlega að skera niður þjónustu til þess að geta náð jöfnuði í fjárhag sínum á næstu árum. Með því einu að auka útboð á verkefnum til einkaaðila gætu sveitarfélög lækkað verulega útgjöld og brúað bilið í fjárhag sínum. Ríkisstjórnin hefur sömuleiðis svarað gagnrýninni með því að benda á að sveitarfélög geti bætt árangur með auknum útboðum.
18.9.2006
Jafnréttisviðurkenning 2006 - tilnefninga óskað
Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2006. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilgangurinn er að verðlauna fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis kvenna og karla og hvetja um leið til frekari dáða. Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 25. september n.k. Sjá nánar á vef Jafnréttisráðs.
15.9.2006
Ákvörðun Seðlabankans veldur vonbrigðum
14.9.2006
Ánægðara starfsfólk á einkareknum heilsugæslustöðvum
Starfsfólk einkarekinna heilsugæslustöðva er ánægðara í starfi en starfsfólk á ríkisreknum heilsugæslustöðvum og jafnframt stoltara af starfi sínu. Þetta sýnir ný sænsk viðhorfsrannsókn sem gerð var af Ipsos-Eureka fyrir sænsku samtök atvinnulífsins (SN) en þau segja fjölmörg tækifæri til umbóta innan heilsugæslu í Svíþjóð. Heilbrigð samkeppni leiði til betri heilbrigðisþjónustu.
13.9.2006
Ísland með lang hæsta hlutfall fólks á vinnumarkaði
Nýjar tölur frá Eurostat sýna að hlutfall starfandi fólks á vinnumarkaði er mun hærra hér á landi en í flestum samanburðarlöndunum, eða tæp 84% á aldrinum 15 til 64 ára, en meðaltalið innan ESB eru tæp 64%. Árið 2001 settu leiðtogar aðildarríkja ESB sér markmið um að árið 2005 yrði hlutfall fólks á vinnumarkaði a.m.k. 67%, til að hægt væri að fjármagna hækkandi eftirlaunakostnað og rekstur kostnaðarsamra velferðarkerfa. Ljóst er að a.m.k. mörg aðildarríkja ESB eiga þar nokkuð langt í land.
13.9.2006
Seðlabanka ber að lækka vexti
„Við teljum mjög mikilvægt að Seðlabankinn hækki ekki vexti á fimmtudag og að full ástæða sé til að hefja vaxtalækkunarferli í ljósi þess samdráttar í efnahagslífinu sem er framundan,” segir
12.9.2006
Tillögum skilað um „Einfaldara Ísland“
Starfshópur stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins sem forsætisráðherra skipaði til að undirbúa aðgerðaáætlunina „Einfaldara Ísland“ hefur skilað tillögum sínum. Meginmarkmið áætlunarinnar verður einföldun laga og reglna, ekki síst til þess að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Starfshópurinn leggur m.a. til að tekin verði upp samræmd vinnubrögð hjá ráðuneytunum um samráð við hagsmunaaðila og aðra sem löggjöf snertir áður en frumvörp eru lögð fram á Alþingi. Þá er hvatt til þess að betur verði hugað að áhrifum löggjafar áður en reglur eru settar, m.a. kostnað fyrirtækja af nýrri löggjöf.
12.9.2006
1,2% atvinnuleysi í ágúst
Í ágústmánuði síðastliðnum voru skráðir 44.848 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 1.948 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,2% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,4% í júlí sl. og 1,8% í ágúst 2005. Vinnumálastofnun reiknar með að vegna mikilla umsvifa og eftirspurnar á vinnumarkaði auk árstíðasveiflu þegar skólafólk fer af vinnumarkaði megi gera ráð fyrir því að atvinnuleysi muni enn minnka og verða á bilinu 0,9% til 1,3% í september. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
11.9.2006
Háir skattar á laun auka atvinnuleysi
Það hefur verið viðtekin skoðun áhrifamikilla sænskra hagfræðinga að launatengdir skattar hafi þegar til lengdar lætur lítil áhrif á atvinnustig. Lækkun skatta dragi því ekki úr atvinnuleysi. Skýringin væri sú að lækkun skatta leiði aðeins til aukinna launakrafna og hærri launa en hafi til lengdar engin áhrif á launakostnað fyrirtækja. Í nýrri rannsóknarskýrslu fyrir samtök atvinnulífsins í Svíþjóð, Svenskt Näringsliv, er hins vegar komist að gagnstæðri niðurstöðu. Háir skattar dragi úr atvinnu og auki atvinnuleysi.
7.9.2006
Gagnrýni á Seðlabankann réttmæt
Hætta er á að Seðlabankinn sé að segja sig frá hagstjórninni í næstu uppsveiflu með því að lækka ekki vexti nú þegar niðursveifla er hafin, segir
7.9.2006
Rekstur LSH á gjörgæslu?
Bráðnauðsynlegt er að rekstur Landspítala Háskólasjúkrahúss (LSH) verði tekinn til rækilegrar endurskoðunar og að hagkvæmustu lausna verði leitað til að bregðast við vanda LSH. Methalli varð á rekstri spítalans á fyrstu sex mánuðum ársins, nærri hálfur milljarður króna og virðist ekkert lát á taprekstrinum. Læknafélag Íslands kallar eftir nýjum lausnum og aukinni samkeppni um veitingu heilbrigðisþjónustu og vilja
7.9.2006
Ný lög um starfskjarastefnu
Þann 1. október nk. taka gildi breytingar á hlutafélaga- og einkahlutafélagalögum sem snerta mörg fyrirtæki. Í lögunum er kveðið á um að félög sem uppfylla tvö af eftirfarandi skilyrðum: eiga eignir er nema 120 milljónum, hafa rekstrartekjur er nema 240 milljónum eða hafa 50 ársverk á reikningsári tvö ár í röð, svo og öll félög sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði eða leggja ekki hömlur á viðskipti með eignarhluta beri skylda til að setja árlega fram starfskjarastefnu. Í starfskjarastefnunni skulu koma fram grundvallaratriði stefnu félagsins varðandi samninga við stjórnendur og stjórnarmenn hvað varðar ákvæði um umbun í formi hlutabréfa, kaupréttar, söluréttar, forkaupsréttar eða annars konar greiðslna sem byggjast á verði hlutabréfa í félaginu.
6.9.2006
Lækkun matvælaverðs - fundur 7. september
Fimmtudaginn 7. september nk. standa SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu fyrir morgunverðarfundi á Hótel Nordica um lækkun matvælaverðs á Íslandi. Erindi flytja þeir Hallgrímur Snorrason Hagstofustjóri og formaður matvælaverðsnefndar forsætisráðherra sem nýlega lauk störfum, Thomas Svaton framkvæmdastjóri Svensk dagligvaruhandel, og Ágúst Einarsson prófessor, auk Sigurðar Jónssonar framkvæmdastjóra SVÞ. Sjá nánar á vef SVÞ.
5.9.2006
Vika símenntunar
Vika símenntunar verður haldin dagana 24. - 30. september næstkomandi.
4.9.2006
Fyrirtækjafundir með viðskiptafulltrúum VUR frá Peking
Petur Yang Li og Isis Cai, viðskiptafulltrúar í sendiráði Íslands í Peking, verða til viðtals við fyrirtæki sem óska eftir aðstoð sendiráðsins vegna viðskipta í umdæmislöndum þess; í Reykjavík 6. og 7. sept. og á Akureyri 8. sept. nk. Þeir sem óska eftir einkafundum með viðskiptafulltrúunum geta bókað fund hjá Útflutningsráði í síma 511 4000 eða með tölvupósti á netfangið utflutningsrad@utflutningsrad.is.
1.9.2006
Allar kýr í heimsreisu á fyrsta farrými!
Landbúnaðarstefna OECD-ríkjanna kostar samtals 360 milljarða dollara ár hvert, eða um 25 þúsund milljarða íslenskra króna. Fyrir þessa upphæð væri hægt að fljúga með hverja kú hringinn í kringum hnöttinn á fyrsta farrými og rúmlega það, á hverju ári. Þetta er einn athyglisverðra fróðleiksmola um hnattvæðinguna sem sænsku samtök atvinnulífsins (SN) vekja athygli á. Meðal annarra má nefna að síðustu 40 ár hefur meðalævilengd fólks í þróunarríkjum vaxið úr 46 árum í 64. Fleiri slíka fróðleiksmola má finna undir Fakta om globalisering (neðarlega til hægri) á hnattvæðingarsíðunni á vef SN.










