Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

29.3.2006

Viðskiptasendinefnd til Færeyja 5.-7. apríl nk.

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra fer í heimsókn til Færeyja dagana 5.-7. apríl nk. í boði þarlendra stjórnvalda. Útflutningsráð skipuleggur viðskiptasendinefnd til Færeyja af þessu tilefni, en í september sl. var undirritaður fríverslunarsamningur milli Íslands og Færeyja. Þá skipuleggur Útflutningsráð einnig viðskiptasendinefndir til Bretlands dagana 24.-28. maí og til San Francisco dagana 7.-10. júní. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.

27.3.2006

Varað við verndarstefnu innan ESB

Ernest-Antoine Seillière forseti UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins, ávarpaði leiðtogafund ESB á dögunum. Í erindi sínu varaði Seillière við tilhneigingu til einhvers konar verndarstefnu sem orðið hefur vart innan sambandsins nýverið, þar sem tilteknar ríkisstjórnir hafa beitt sér gegn samruna fyrirtækja yfir landamæri, einkum á sviði orkumála. Seillière fjallaði m.a. um mikilvægi frjálsra þjónustuviðskipta, aukins sveigjanleika á vinnumarkaði og minni reglubyrði fyrirtækja. Mikla athygli vakti að Jacques Chirac forseti Frakklands yfirgaf salinn þegar Seillière hóf að flytja ræðu sína á ensku, en Seillière er fyrrverandi formaður frönsku samtaka atvinnulífsins. SA og SI eru meðal aðildarsamtaka UNICE.

21.3.2006

Aukið hagræði hins opinbera af einkarekstri

Stjórn SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu telur að endurskilgreina þurfi þjónustuhlutverk ríkisins og færa fleiri verkefni til einkaaðila. Þetta kom fram á aðalfundi samtakanna, en þar var kynnt ný skýrsla sem Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík vann fyrir SVÞ, Mikilvægi þjónustugeirans fyrir íslenskan þjóðarbúskap. Í skýrslunni kemur fram að með útvistun verkefna væri hægt að draga úr útgjöldum hins opinbera, bæta gæði verkefna og efla einkageirann í sömu andrá.

20.3.2006

Könnun á horfum í atvinnulífi ber vott um þenslu

Niðurstöður úr nýrri könnun IMG Gallup á stöðu og framtíðarhorfum í atvinnulífinu bera vitni um þá miklu þenslu sem ríkir í efnahagslífinu um þessar mundir. Stjórnendur meta stöðu fyrirtækjanna góða og almenn tilhneiging er til þess að hagnaður og framlegð fyrirtækja fari vaxandi. Mikill skortur er á starfsfólki og víða eru áform um fjölgun þess. Fjárfestingarstig helst hátt. Að jafnaði telja stjórnendur að verðbólgan verði yfir þolmörkum Seðlabankans, launaskrið verði töluvert, gengi krónunnar muni síga og vextir Seðlabankans hækki verulega á árinu. Svör stjórnenda í sjávarútvegi skera sig nokkuð úr þar sem mat á stöðu og framtíðahorfum markast mjög af því hve hágengi krónunnar hefur kreppt að afkomu greinarinnar.

17.3.2006

Hátækni og stóriðja ekki andstæður

Mistök í sameiginlegri hagstjórn ríkis, sveitarfélaga og Seðlabanka eiga stærstan þátt í þeim vanda sem samkeppnis- og útflutningsgreinarnar eiga við að etja. Því er rangt að stilla hátækni og stóriðju upp sem andstæðum eins og borið hefur á undanfarið, segir í ályktun Iðnþings Samtaka iðnaðarins. Í ályktuninni er m.a. fjallað um kosti einkarekstrar, stofnun sameinaðs atvinnuvegaráðuneytis og nauðsyn endurskoðunar á stoðkerfi atvinnulífsins. Þá segir að halda beri áfram að efla Nýsköpunarsjóð og auka sjálfstæði hans undir stjórn atvinnulífsins, en lagst er gegn öllum hugmyndum um að leggja sjóðinn undir nýja ríkisstofnun. Sjá ályktunina á vef SI.

16.3.2006

Viðskiptasendinefndir til Bretlands og San Francisco

Útflutningsráð skipuleggur viðskiptaráðstefnu og viðskiptasendinefnd til Bretlands dagana 24. til 28. maí nk. og mun forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, setja ráðstefnuna og flytja ávarp. Þá hefur Útflutningsráð ákveðið að hefja undirbúning viðskiptasendinefndar til San Francisco um miðjan maí eða í byrjun júní 2006. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.

14.3.2006

Umhverfisviðurkenning - beiðni um tilnefningar

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki til að hljóta „Kuðunginn“ - umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins - fyrir árið 2005. Tilnefningar berist eigi síðar en 25. mars, með stuttri greinargerð.

13.3.2006

Ísland í fyrsta sæti yfir hlutfall starfa við rannsóknir

Hlutfall þeirra sem starfa við rannsóknir af heildarfjölda á vinnumarkaði er hæst á Íslandi þegar borin eru saman löndin innan EES og fleiri lönd. Hér starfa 2,24% við rannsóknir en hlutfallið er næst hæst í Finnlandi, 2,09%. Meðaltalið innan EES er 0,86%. Ef einungis er horft til einkageirans er Ísland í þriðja sæti með 0,81% en Finnland í efsta sæti með 1,13%. EES-meðaltalið fyrir einkageirann er 0,35%. Þetta er meðal niðurstaðna rannsóknar Eurostat, tölfræðistofnunar ESB.

13.3.2006

1,6% atvinnuleysi í febrúar

Í febrúar sl. voru skráðir 46.704 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.338 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá, eða 1,6% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið einnig 1,6% í janúar sl. en 2,8% í febrúar 2005. Að mati Vinnumálastofnunar er líklegt að atvinnuleysið breytist lítið í mars og verði á bilinu 1,4-1,7%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

10.3.2006

Vel heppnaðri fundaröð SA með framhaldsskólanemum lokið

Fundaröð SA með útskriftarnemum framhaldsskóla er nú lokið. Yfirskrift hennar var Ætlar þú að vinna úti? en að þessu sinni sóttu fulltrúar SA heim fimm skóla og ræddu við alls um 400 nemendur um framtíð lands og þjóðar og hvaða leiðir þau ætluðu sér að fara í framtíðinni, hvaða menntun  þau hygðust sækja sér, við hvað þau vildu helst starfa, hvar þau vildu helst búa, og hvernig Ísland gæti nýtt sér þau tækifæri sem eru fyrir hendi til að sækja fram á tímum aukinnar alþjóðlegrar samkeppni. Það sem upp úr stendur eftir heimsóknir SA er jákvætt viðhorf nemendanna til framtíðarinnar og þeirra áskorana sem Ísland stendur frammi fyrir.

8.3.2006

Ísland og markmið Kyoto-bókunarinnar

Allt bendir til þess að Íslensk stjórnvöld muni standa við skuldbindingar sínar samkvæmt Kyoto-bókuninni við loftslagssamning Sameinuðu þjóðanna. Mikilvægt er samt að kannað verði hvaða möguleikar eru til öflunar útstreymisheimilda erlendis frá og eins hvort hagkvæmt geti verið að auka kolefnisbindingu innan lands.

6.3.2006

Um vinnutíma á Íslandi

Samanburður á vinnutíma milli landa er flókinn og nokkrir þættir valda mikilli bjögun upp á við í niðurstöðum mælinga á vinnutíma á Íslandi, að því er fram kemur í athugasemd frá SA sem birt er í Morgunblaðinu. Þessar bjaganir valda því að flestir standa í þeirri trú að vinnutími hér á landi sé almennt mun lengri en í nálægum löndum. Það er ekki rétt, þótt vissulega séu dæmi um langan vínnutíma í vissum atvinnugreinum og starfsstéttum. Þá hefur vinnutími fólks í fullu starfi verið að styttast hér á landi.

2.3.2006

Frjálsa för EES-borgara til Íslands frá 1. maí

Líklega býr ekkert ríki á EES-svæðinu við meiri þenslu á vinnumarkaði en Íslendingar og þar af leiðandi eru hvergi sterkari rök fyrir afnámi takmarkana á frjálsri för nýrra EES-borgara en hér á landi, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann minnir á að SA hafi í nóvember gengið frá samkomulagi um áframhald kjarasamninga í þeirri trú að þessum takmörkunum yrði aflétt í vor og segir samtökin treysta því að svo verði.

2.3.2006

Fyrirtæki krafin um fjölda vottorða að óþörfu

Undanfarið hefur verið gengið hart eftir því við þá aðila sem sækja um veitingaleyfi, að þeir skili inn til lögreglu fjölda vottorða um persónulega hagi stjórnenda, eigenda og stjórnarmanna fyrirtækisins sem sækir um leyfið. Þetta hefur verið flókið ferli og íþyngjandi en krafan um vottorðin hefur átt jafnt við ný fyrirtæki og útibú frá starfandi fyrirtækjum eða endurnýjun fyrri leyfa þeirra. Athugun SA leiddi hins vegar í ljós að krafan átti sér ekki beina stoð í lögum og hefur lögreglustjóraembættið í Reykjavík í reynd fallist á sjónarmið SA. Aðalheiður Héðinsdóttir, forstjóri Kaffitárs, fagnar breytingunni og segist fullviss um að hún hafi fordæmisgildi. Hin nýja framkvæmd sé í samræmi við yfirlýst markmið um „einfaldara Ísland".

2.3.2006

Varað við íþyngjandi ákvæðum í frumvörpum til hlutafélagalaga

Samtök atvinnulífsins hafa í umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis varað eindregið við því að á Íslandi verði lögfestar strangari reglur um starfsemi hlutafélaga og einkahlutafélaga en gerist í öðrum löndum. Eðlilegt er að löggjafinn gefi viðskiptalífinu svigrúm til að sýna fram á því sé treystandi til að setja sjálft reglur er varða stjórnarhætti fyrirtækja. Það væri ennfremur í anda áherslu á „einfaldara Ísland“.

2.3.2006

Frelsi í þjónustuviðskiptum?

Markmiðið með þjónustutilskipun ESB er að gera að veruleika frjálst flæði þjónustu í samræmi við ákvæði stofnsamnings ESB, og ryðja úr vegi hindrunum sem koma í veg fyrir að fyrirtæki og einstaklingar geti selt þjónustu sína á grundvelli sömu skilyrða alls staðar á innri markaðnum. Vonir hafa staðið til þess að með samþykkt tilskipunarinnar myndi samkeppnishæfni Evrópu aukast allverulega, og m.a. skapast 600.000 ný störf. Í kjölfar mikilla breytinga Evrópuþingsins er hins vegar efast um að sú niðurstaða geti stuðlað að raunverulegu frelsi í þjónustuviðskiptum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í Morgunblaðsgrein Evu Margrétar Ævarsdóttur, forstöðumanns skrifstofu SA í Brussel.

1.3.2006

Ráðuneyti endurskoðar verkefni tengd atvinnulífi

Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti vinnur nú að endurskipulagningu allra stofnana á þess vegum sem sinna þjónustu og stuðningi við atvinnulífið. Stefnt er að því að samræma starfsemi þeirra með það að leiðarljósi að hafa áhrif á þróun atvinnulífs og að auka lífsgæði í samfélaginu. Mikilvægt er að haft verði samráð við atvinnulífið um þessar breytingar og að ferli við styrkveitingar verði einfalt og gagnsætt og miðist við gæði verkefna.

RSS-efnisveita SA

Atvinna fyrir alla - smelltu til að sækja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english