Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

29.6.2005

Nýr forseti UNICE

Frá og með 1. júlí tekur Ernst-Antoine Seillère við af Dr. Jürgen Strube, stjórnarformanni BASF, sem forseti UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins. Seillère er forstjóri Wendel Investissement og formaður MEDEF, frönsku samtaka atvinnulífsins. Hann segir m.a. að meginskilaboð UNICE verði á mikilvægi hagvaxtar og atvinnusköpunar, og að halda verði á lofti mikilvægi samkeppnishæfni atvinnulífsins.

29.6.2005

Varað við svikastarfsemi

SVÞ minna nú á að á sumrin lifnar yfir svikastarfsemi sem beinist að því að svíkja út fé af fyrirtækjum, þar sem reynt er að villa um fyrir sumarafleysingafólki. Einkum vara SVÞ við skráningarfyrirtækinu European City Guide í þessu sambandi. SA vöruðu nýlega við sambærilegri starfsemi sem kennd er við Nordisk Industri.

28.6.2005

Sveigjanleiki í starfi eykur hagkvæmni og starfsánægju

Með endurskoðun hefðbundinna vaktakerfa geta fyrirtæki og stofnanir sparað sér fjármuni og skapað svigrúm fyrir hærri launum starfsmanna, en jafnframt aukið starfsánægju og bætt vinnuanda. Með aðstoð hugbúnaðar er vinnutími skipulagður á nýjan hátt, og í stað þess að starfsmenn aðlagi einkalíf að vinnu þá ráða þeir vinnutíma sínum að miklu leyti sjálfir og aðlaga vinnutíma sinn að einkalífinu. Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel hjá Neyðarlínunni, en þar var hefðbundið vaktakerfi lagt niður árið 2003. Neyðarlínan sinnir neyðarsímaþjónustu fyrir landið allt og starfar allan sólarhringinn.

27.6.2005

Dagur samkeppnishæfni 20. október í Brussel

Fimmtudaginn 20. október munu UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, standa fyrir degi samkeppnishæfni í Brussel. Meðal þátttakenda í dagskránni má nefna stjórnendur og stjórnarmenn frá fyrirtækjum á borð við Microsoft, Siemens, Fiat og Tesco, forseta framkvæmdastjórnar ESB, forseta Evrópuþingsins o.fl. Fyrirtækjastjórnendur alls staðar að úr Evrópu eru hvattir til að mæta.

23.6.2005

Svíþjóð: Enginn kynbundinn launamunur

Ekkert styður fullyrðingar um að konum sé mismunað í launum, samkvæmt rannsókn sem sænsku samtök atvinnu-lífsins, hafa unnið úr gögnum um launagreiðslur aðildar-fyrirtækja sinna. Munur á reglulegum launum karla og kvenna skýrist að mestu af menntun, starfsvali, aldri og tegund fyrirtækis.

22.6.2005

Hagstjórn þarf gegn þenslu

Nær allir sem tjá sig um efnahagsmál hvetja til þess að fjármálum hins opinbera verði beitt með virkari hætti gegn þenslu. Fjárfestingaráform hins opinbera eru mjög mikil fyrir árið í ár og næsta ár og mikilvægt að dregið verði úr þeim. Hlutfallslega vex samneyslan mun hraðar hjá sveitarfélögum en hjá ríkisvaldinu, en stór verkefni hafa á undanförnum árum verið færð frá ríki til sveitarfélaga. Það er slæmt frá sjónarhorni hagstjórnar því sveitarfélögin axla enga hagstjórnarábyrgð.

21.6.2005

Störfum fjölgar á ný

Fjöldi starfandi manna var 157.520 árið 2004, samkvæmt staðgreiðsluskrá Hagstofu Íslands, og fjölgaði um 1.840 frá árinu áður, eða sem nam 1,2%. Þetta er töluverður viðsnúningur frá síðustu árum en störfum fækkaði bæði árin 2002 og 2003, eða um 0,2% hvort árið. Störfum fjölgaði mest í byggingariðnaði, um 960 störf, en þar á eftir kom opinber stjórnsýsla þar sem fjölgaði um 380 störf og heilbrigðis- og félagsþjónusta þar sem fjölgaði um 300 störf.

20.6.2005

Verðbólgan næst minnst hérlendis innan EES

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum hækkaði um 0,2% frá apríl til maí sl. Á sama tíma lækkaði vísitalan fyrir Ísland um 0,3% frá fyrra mánuði. Frá maí 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 1,9% að meðaltali í ríkjum EES en 0,5%, eða næst lægst, á Íslandi. Minnst var verðbólgan í Svíþjóð, 0,2%, en mest í Lettlandi, 6,5%. Sjá nánar á vef Hagstofunnar.

20.6.2005

ESB-tilskipun um leysiefni: Ísland fær viðbótar frest

Ísland hefur fengið samþykktan þriggja ára viðbótar aðlögunarfrest til að uppfylla tiltekin ákvæði tilskipunar ESB um takmörkun á lífrænum leysiefnum í málningu, lakki o.fl., líkt og SA og SI fóru fram á í athugasemdum sínum til utanríkis-ráðuneytisins. Ráðuneytið hefur komið á fót samráðshóp með SA o.fl. til að greina hagsmuni íslensks atvinnulífs við upptöku gerða í EES-samninginn. Sjá nánar í Stiklum, vefriti viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins (18. tbl. 2005).

16.6.2005

Dagur samkeppnishæfni 20. október í Brussel

Fimmtudaginn 20. október munu UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, standa fyrir degi samkeppnishæfni í Brussel. Meðal þátttakenda í dagskránni má nefna stjórnendur og stjórnarmenn frá fyrirtækjum á borð við Microsoft, Siemens, Fiat og Tesco, forseta framkvæmdastjórnar ESB, forseta Evrópuþingsins o.fl. Fyrirtækjastjórnendur alls staðar að úr Evrópu eru hvattir til að mæta.

15.6.2005

Breyta verður Íbúðalánasjóði sem fyrst

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins telur mikilvægt að starfsemi Íbúðalánasjóðs verði breytt sem fyrst til að tryggja fjármálastöðugleika og að bönkunum verði gert kleift að starfa áfram á húsnæðislánamarkaði. Jafnframt verði stjórnvöld að beita auknu aðhaldi í ríkisfjármálunum til að bregðast við hagsveiflum. Nefndin hefur kynnt sér stöðu efnahagsmála hér á landi og rætt bæði við stjórnvöld og fulltrúa atvinnulífsins.

14.6.2005

2,2% atvinnuleysi í maí

Í maí sl. voru skráðir rúmlega 73.300 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.332 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,2% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,3% í apríl sl. en 3,3% í maí 2004. Atvinnuleysi í maímánuði hefur ekki mælst jafn lítið síðan í maí 2001 en þá mældist það 1,6%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

13.6.2005

ESB-ríkin þurfa aukinn hagvöxt og fleiri störf

Formannafundur aðildarsamtaka UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins, leggur á það áherslu í yfirlýsingu sinni að það sem ESB-ríkin skorti umfram allt sé aukinn hagvöxtur og fleiri störf. Hagvöxtur sé ófullnægjandi í flestum aðildarríkjunum og atvinnuleysi mikið og brýnustu verkefnin snúi því ekki að stjórnarskrársáttmála heldur að auknum hagvexti, auknum sveigjanleika á vinnumarkaði, frelsi í þjónustuviðskiptum o.fl.

10.6.2005

Viðskiptasendinefnd til Japans í september

Davíð Oddsson utanríkisráðherra fer fyrir viðskiptasendinefnd til Japans sem nú er í undirbúningi og er ráðgerð dagana 12.-19. september. M.a. verða skipulögð viðskiptaráðstefna, sýning og fyrirtækjastefnumót. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem allra fyrst. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.

2.6.2005

Markaðurinn er kynblindur

Það væri óneitanlega gaman ef jafnréttissinnar krefðust einkavæðingar á þeirri þjónustustarfsemi sem stórar „kvennastéttir“ koma að hjá hinu opinbera og hvettu konur til að stofna fyrirtæki til að taka að sér þessa þjónustu og til að leita jafnréttis á eigin forsendum eftir farvegum markaðarins, segir Ari Edwald framkvæmdastjóri SA m.a. í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.

2.6.2005

Ekkert eftirlit með gjaldskrám sveitarfélaga

Mjög mismunandi er milli sveitarfélaga hversu há gjöld eru innheimt af fyrirtækjum vegna eftirlits með starfsemi þeirra. Almennt er mörg hundruð prósenta munur á hæsta og lægsta gjaldi og dæmi er um að mismunurinn hlaupi á hundruðum þúsunda. Stórlega er dregið í efa að hæstu gjöldin séu í samræmi við kostnað af eftirliti og geta sveitarfélög þanið eftirlitið út að eigin geðþótta – án eftirlits – og sent atvinnulífinu í landinu reikninginn. Sveitarfélög stunda jafnframt mörg hver umfangsmikinn atvinnurekstur og sjá um að hafa eftirlit með eigin starfsemi, sem er ólíðandi.

2.6.2005

Ekki erfiðara fyrir eldra fólk að fá vinnu

Ívið meiri líkur eru á því að fólk á aldrinum 50-59 ára fái vinnu í kjölfar atvinnuviðtals, en fólk á aldrinum 25-49 ára, skv. rannsókn dönsku vinnumálastofnunarinnar. Eldra fólkið er sagt búa yfir sveigjanleika, hreyfanleika og stöðugleika í starfi. Þessar niðurstöður koma vel heim og saman við tæp-lega árs gamla könnun SA.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english