Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

31.5.2005

Ísland í fremstu röð á sviði jafnréttismála

Í nýjasta hefti vikuritsins Economist er birt fróðlegt yfirlit yfir árangur þjóða á sviði jafnréttismála. Yfirlitið byggir á úttekt Alþjóða efnahagsstofnunarinnar (World Economic Forum - WEF) en samkvæmt henni er Ísland í þriðja sæti af 58 löndum sem skoðuð voru, þar sem jafnrétti kynjanna er mest.

31.5.2005

UNICE harma höfnun Frakka

UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, harma höfnun Frakka á nýrri stjórnarskrá Evrópusambandsins og telja að hið franska nei muni hafa neikvæð áhrif í álfunni. UNICE  eru fylgjandi gildistöku hinnar nýju stjórnarskrár og telja hana vera nytsamlegt plagg, þar sem hún sé nauðsynlegur grunnur fyrir gegnsæja, lýðræðislega og skilvirka stjórnsýslu – eitthvað sem Evrópusambandið vanti sárlega.

30.5.2005

Myndskeið af aðalfundi á vef SA

Á aðalfundi SA 3. maí sl. voru sýnd myndskeið um árangur atvinnulífsins, árangur stjórnvalda og framtíðarsýnina, undir yfirskriftinni Áfram í úrvalsdeild? Góður rómur var gerður að efni myndskeiðanna þar sem m.a. er rætt við 20 manns, stjórnendur og athafnafólk um stöðu og horfur. Athygli er vakin á því að hægt er að nálgast þessi myndskeið á vef SA.

27.5.2005

Basel II: hærri vextir og aukinn kostnaður fyrirtækja?

Skiptar skoðanir voru um áhrif gildistöku Basel II reglu-verksins á ráðstefnu sem haldin var um fyrirbærið á vegum Sambands íslenskra sparisjóða og SA, en það  tekur gildi árið 2007. Fjármálafyrirtæki munu þurfa að meta viðskiptavini sína mun betur og  fyrirtæki þurfi að gefa þeim mun ítarlegri upplýsingar. Kostnaður af innleiðingu Basel II er ekki ljós en kjör sumra fyrirtækja gætu batnað á meðan kjör annarra gætu versnað. Þolinmæði fjármálafyrirtækja gagnvart vanskilum mun minnka og innheimta verður hert.

25.5.2005

Endurskoðun niðurgreiðslu vaxta

OECD hvetur ríkisstjórnina til þess að stefna að meiri afgangi af fjárlögum en nú sé stefnt að. Bæta þurfi hagstjórnar-blönduna og draga úr þörf fyrir vaxtahækkanir. Sérstaklega er nefnt að lækka ætti vaxtabætur til að slá á þensluna á fasteignamarkaðnum. Í ljósi lægri vaxta, lengri lánstíma og lægri greiðslubyrði lántakenda, auk þess jafnvægisleysis og verðbólgu sem spennan á fasteignamarkaðnum hefur skapað, er fullt tilefni til að endurskoða vaxtabótakerfið.

23.5.2005

Viðskiptasendinefnd til Japans í september

Davíð Oddsson utanríkisráðherra fer fyrir viðskiptasendinefnd til Japans sem nú er í undirbúningi og er ráðgerð dagana 12.-19. september. M.a. verða skipulögð viðskiptaráðstefna, sýning og fyrirtækjastefnumót. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem allra fyrst. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.

23.5.2005

Ráðstefna um Basel II og áhrif á fyrirtækin 25. maí

Miðvikudaginn 25. maí stendur Samband íslenskra sparisjóða, í samstarfi við SA, fyrir ráðstefnu á Grand Hótel Reykjavík um nýjar eiginfjárreglur lánastofnana, sem munu hafa mikil áhrif á  samskipti lánastofnana við lítil og meðalstór fyrirtæki á EES. Markmið ráðstefnunnar er að búa stjórnendur íslenskra fyrirtækja undir þann veruleika sem skapast með gildistöku tilskipunarinnar árið 2006. Ráðstefnan er fjármögnuð af framkvæmdastjórn ESB. Sjá nánar

19.5.2005

Fimmtíu milljarðar í boði á fimm árum

Íslenskum fyrirtækjum stendur til boða, með samstarfi við aðila í þrettán löndum á EES svæðinu, að fjármagna verkefni í þessum löndum með fé úr nýjum þróunarsjóði EFTA. Um sex hundruð milljónum evra verður úthlutað úr sjóðnum á næstu fimm árum, eða um 50 milljörðum íslenskra króna. Sjóðurinn tók til starfa í kjölfar stækkunar ESB og EES og eiga verkefni í nýju aðildarríkjum ESB auk Spánar, Portúgals og Grikklands rétt á styrkjum úr sjóðnum.

17.5.2005

Þróunarsjóður EFTA - kynning miðvikudag

Utanríksráðuneytið, Útflutningsráð og Euro Info skrifstofan boða til morgunverðarfundar kl. 8:15 miðvikudaginn 18. maí á Grand Hótel Reykjavík til að kynna tækifæri til þátttöku í verkefnum styrktum af þróunarsjóði EFTA. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.

17.5.2005

2.3% atvinnuleysi í apríl

Í apríl sl. voru skráðir rúmlega 74.200 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.542 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,3% atvinnuleysi af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,6% í mars sl. og 3,5% í apríl 2004. Atvinnuleysi í apríl hefur ekki mælst jafn lítið síðan í apríl 2001 en þá mældist það 1,6%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

12.5.2005

Vilji forsætisráðherra að lágmarka opinbert eftirlit

Í ræðu sinni á aðalfundi SA tók forsætisráðherra undir sjónar-mið SA um eftirlit með atvinnustarfsemi og tillögur til úrbóta. Þetta er fagnaðarefni, enda er aukin hagkvæmni á þessu sviði gríðarlegt hagsmunamál fyrir atvinnulífið, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann nefnir sem dæmi að í dag þarf gjarnan fimm leyfi til að reka eitt veitingahús og segir blasa við að eitt leyfi hljóti að nægja.

12.5.2005

Ríki og sveitarfélög borgi reikningana sína!

Ríki og sveitarfélög á Íslandi greiða ekki reikninga á tilsettum tíma og neita að borga dráttarvexti. Forstjóri Tæknivals, Sigrún Guðjónsdóttir, sagði þetta landi og þjóð til skammar á aðalfundi SA. Könnun SA frá 2003 sýndi fram á verulega greiðslutregðu opinberra aðila en vandamálið virðist enn vera til staðar.

12.5.2005

Vinnutími á Íslandi hefur styst

Vinnutími hérlendis hefur styst verulega undanfarin ár samkvæmt gögnum Hagstofunnar. Á almennum vinnumarkaði hefur meðalvinnutími karla styst um rúmar tvær klst frá 1998 en meðalvinnutími kvenna um rúma klukkustund. Litlu munar nú á vinnutíma fullvinnandi karla og kvenna á almennum vinnumarkaði.

12.5.2005

Laun kvenna hækkað meira en karla

Samkvæmt launakönnun Hagstofunnar hafa laun kvenna hækkað jafnt og þétt umfram laun karla frá árinu 1997, alls um 58% á móti 48% hækkun hjá körlum. Þessa þróun má að hluta rekja til áherslna í kjarasamningum, svo sem sérstakra hækkana almennra launataxta.

12.5.2005

Tekjumunur kynjanna hefur minnkað

Launakönnun Hagstofunnar sýnir að tekjumunur kynjanna hefur minnkað á undanförnum árum. Hlutfall heildarlauna kvenna af heildarlaunum karla jókst úr 74% árið 1998 í 76% árið 2004. Hjá skrifstofufólki hækkaði hlutfallið hins vegar úr 70% í 77%. Þar gætir eflaust áhrifa aukinnar menntunar og aukins hlutar kvenna í stjórnunarstöðum. Almennt er hlutur karla hins vegar enn stærri í stjórnunarstöðum og yfirvinna meiri.

12.5.2005

Mikil frumkvöðlastarfsemi á Íslandi

Frumkvöðlastarfsemi á Íslandi er með því hæsta sem gerist meðal hátekjulandanna í heiminum. Nýsköpunarfyrirtæki búa hins vegar við mikinn fjármagnsskort og athygli vekur að hlutfall háskólamenntaðra er lægra í frumkvöðlastarfsemi hér en í öðrum hátekjulöndum. Þetta er meðal niðurstaðna GEM frumkvöðlarannsóknarinnar sem HR vinnur fyrir Íslands hönd með stuðningi frá SA, Nýsköpunarsjóði og forsætisráðuneyti. Sjá nánar á vef HR.

10.5.2005

Ársskýrsla SA 2004 - 2005

Ársskýrslu Samtaka atvinnulífsins fyrir starfsárið 2004-2005, sem dreift var á aðalfundi samtakanna 3. maí, má nálgast hér á vef samtakanna. Í skýrslunni er að finna ítarlega umfjöllun um starfsemi SA, efnahagsmál, kjaramál o.fl. Sjá ársskýrslu SA (pdf-skjal).

9.5.2005

Slysatrygging sjómanna, morgunfundur 10. maí

Hið íslenska sjóréttarfélag boðar til fræðafundar um slysa-tryggingu sjómanna þriðjudaginn 10. maí nk. Frummælandi verður Guðmundur Sigurðsson, dr. juris., dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 08:00 í fundarsal Logos, Efstaleiti 5.

4.5.2005

Lækkun félagsgjalda SA

Á aðalfundi SA var samþykkt að lækka iðgjald til vinnudeilu-sjóðs samtakanna úr 0,04% í 0,02% af iðgjaldsstofni næstliðins árs. Jafnframt var samþykkt að veita stigvaxandi afslátt af árgjöldum til samtakanna umfram eina milljón króna. Félagsjöld SA voru síðast lækkuð árið 2001 en lækkunin nú er enn meiri.

3.5.2005

Umsvif erlendis þýða sérfræðistörf á Íslandi

Aukin umsvif íslenskra fyrirtækja erlendis hafa m.a. haft í för með sér fjölgun sérfræðistarfa fyrir hámenntað fólk hér á landi. Íslendingar hafa sýnt að þeir geta keypt stór fyrirtæki erlendis en verða dæmdir af því hvernig þeim gengur að reka þau. Öflugt menntakerfi og öflugt umhverfi nýsköpunar eru lykilatriði fyrir framtíðar velgengni Íslendinga. Þetta er meðal þess sem fram kom í umræðum á aðalfundi SA.

3.5.2005

Halda ber áfram að laga skattaumhverfið

Í ræðu sinni á aðalfundi SA sagði Halldór Ásgrímsson forsætis-ráðherra m.a. að halda bæri áfram að laga skattaumhverfið til að styrkja samkeppnisstöðu atvinnulífsins og bæta lífskjörin. Hann tók undir stefnumörkun SA á sviði eftirlits með atvinnu-starfsemi, sagði áframhaldandi uppbyggingu stóriðju til alvarlegrar skoðunar, sagði nauðsynlegt að skoða hvernig örorkuréttur stofnast og auglýsti eftir meira trausti í samfélaginu.

3.5.2005

Hagsmunir atvinnulífsins eru almannahagsmunir

Í ræðu sinni á aðalfundi SA fjallaði Ingimundur Sigurpálsson, formaður samtakanna, m.a. um mikilvægi samkeppnishæfs starfsumhverfis og lagði hann áherslu á að hagsmunir atvinnulífsins væru almannahagsmunir. Gjöld og álögur á fyrirtæki væru á endanum borin af neytendum. Þá sagði hann einungis fjórðung hækkunar verðlags stafa af hækkun á verði vöru og þjónustu. Einsýnt væri að ekki yrði litið framhjá þessu við mat á verðlagsþróun og eðlilegum viðbrögðum hennar vegna.

3.5.2005

Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins

Lýst hefur verið kjöri stjórnar SA fyrir starfsárið 2005 til 2006. Ný koma inn í stjórnina þau Guðmundur Ásgeirsson Nesskipum, Gunnar Sverrisson Íslenskum aðalverktökum, Hrund Rudolfsdóttir Lyfjum og heilsu, Loftur Árnason Ístaki, Óskar Magnússon Tryggingamiðstöðinni og Ragnhildur Geirsdóttir FL Group.

3.5.2005

Ingimundur Sigurpálsson endurkjörinn formaður SA

Á aðalfundi SA var tilkynnt um niðurstöðu úr beinni póst-kosningu formanns samtakanna. Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts og sitjandi formaður SA, hlaut 99,4% greiddra atkvæða og er hann því réttkjörinn formaður SA starfsárið 2005 til 2006. Kosningaþátttaka var 55,3%.

3.5.2005

Áherslur atvinnulífsins í ellefu málaflokkum

Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram áherslur sínar í ellefu málaflokkum sem varða starfsskilyrði íslenskra fyrirtækja. Um er að ræða niðurstöður víðtæks og kraftmikils málefnastarfs þar sem fjöldi fólks frá aðildarfélögum samtakanna, einstökum fyrirtækjum og fleiri aðilum lögðu drög að stefnu SA, sem vilja tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði, landsmönnum öllum til hagsbóta. Sjá nánar

3.5.2005

Áfram í úrvalsdeild? - Aðalfundur SA í dag

Opin dagskrá aðalfundar SA hefst kl. 15:00 í dag á Nordica. Yfirskriftin er Áfram í úrvalsdeild? Frumsýnd verður ný sjónvarpsmynd þar sem um 20 álitsgjafar fjalla um árangur atvinnulífs, stjórnvalda og framtíðarsýnina. Nýkjörinn formaður SA flytur ræðu sem og Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Loks mun fríður flokkur stjórnenda fjalla um áherslur atvinnulífsins og framtíðarsýnina. Sjá nánar um aðalfund SA.

2.5.2005

Nýr forstöðumaður ráðinn til Starfsafls

Kolbrún Stefánsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Starfs-afls, starfsmenntasjóðs SA og Flóabandalagsins. Kolbrún hefur m.a. starfað við kennslu, verslun og ferðaþjónustu, en undanfarna tvo áratugi hefur hún verið útibússtjóri hjá Landsbanka Íslands.

RSS-efnisveita SA

Atvinna fyrir alla - smelltu til að sækja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english