Fréttir
31.10.2005
Áhersla á aðgerðir gegn þenslu
Mikilvægt er að ákvörðun verði tekin nú þegar um aukin kaup á gjaldeyri og söluandvirði Símans nýtt til þess m.a. Einnig er brýnt að breyta strax reglum Íbúðalánasjóðs varðandi vexti og lánshlutföll. Slíkar aðgerðir munu draga úr þenslu. Þetta kemur fram í efnahagsályktun 66. aðalfundar LÍÚ. Aðalfundurinn samþykkti einnig ályktanir um greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins, hvalveiðar, loðnurannsóknir, eftirlit vegna skipaskoðunar og ráðgefandi stjórn Fiskistofu. Sjá nánar á vef LÍÚ.
27.10.2005
Rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja óviðunandi
Á aðalfundi LÍU, sagði Björgólfur Jóhannsson, formaður samtakanna, að staðan í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja í dag væri óviðunandi, sem rekja mætti fyrst og fremst til styrkingar íslensku krónunnar. „Ég hef mikið velt því fyrir mér á undanförnum mánuðum hvað sé eiginlega að gerast á gjaldeyrismarkaði. Mér finnst málin liggja þannig að Seðlabanki Íslands hækkar vexti, eina ráðið að sagt er, til að halda aftur af verðbólgu, verðbólgu sem hefur verið drifin áfram af annars vegar utanaðkomandi aðstæðum og hins vegar heimatilbúnum,” sagði Björgólfur. „Heimatilbúnar aðstæður kalla ég hækkun á verði fasteigna sem fyrst og fremst má rekja til ákvarðana um hækkun lánshlutfalls og lækkun vaxta hjá Íbúðalánasjóði. Erlendir aðilar koma svo með fé og nýta sér háa vexti með tilheyrandi afleiðingum.” Sjá nánar ræðu Björgólfs á vef LÍÚ.
27.10.2005
Starfsmenntaverðlaunin 2005 - lokafrestur á föstudag!
Starfsmenntaverðlaunin verða veitt þann 4. nóvember næstkomandi. Verðlaunin verða veitt í þremur flokkum: flokki fyrirtækja, flokki fræðsluaðila og í opnum flokki sem nær meðal annars til einstaklinga og verkefna. Tilnefningar sendist Mennt fyrir 28. október á þar til gerðum eyðublöðum. Sjá nánar á vef Menntar.
26.10.2005
Vel sóttur fundur um áhættugreiningu og áhættumat
Það var fjölmenni sem mætti á fund SA um áhættugreiningu og áhættumat í fyrirtækjum, en í sífellt fleiri lögum og reglugerðum eru gerðar kröfur um að fyrirtæki geri sérstakt áhættumat, sem varðar bæði ytra umhverfi og innri starfsemi. Fyrirlesarar voru Dr. Björn Karlsson, brunamálastjóri, Gestur Pétursson, Inpro, Helgi Jensson, Umhverfisstofnun og Inghildur Einarsdóttir, Vinnueftirlitinu. Gáfu þau bæði greinargóðar og gagnlegar upplýsingar en fram kom m.a. að áhættu er unnt að meta með ýmsu móti og í mörgum tilvikum er unnt að beita einföldum og handhægum aðferðum við matið.
24.10.2005
Gæðavottun á launajöfnuð kynja?
Í Fréttablaðinu, á 30 ára afmæli kvennafrídagsins, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, að það feli í sér sóun að mismuna konum og körlum með launagreiðslum og samtökin leggi áherslu á að fyrirtæki greiði laun á grundvelli frammistöðu og framlags. Félagsmálaráðherra, Árni Magnússon, hefur sett fram hugmyndir um að taka upp sérstaka gæðavottun sem fyrirtæki geti nýtt sér til að sýna fram á að þau greiði konum og körlum jöfn laun. Ari segist aðspurður að það geti vel komið til greina að fara þá leið. „… má vel vera að ganga megi lengra í að beita aðferðum gæðastjórnunar á þessu sviði.“ Sjá Fréttablaðið 24.október.
21.10.2005
Þensla á vinnumarkaði
Starfandi fólki hefur fjölgað um 5.900 frá árinu 2004. Fjölgunin er mest í elsta aldurshópnum, 55-74 ára, og nam hún 2.600 manns. Atvinnuþáttaka þessa hóps jókst úr 61,5% í 65,6%. Atvinnuþátttaka unga fólksins, 24 ára og yngri, hefur einnig aukist verulega og mikil aukning í atvinnuþátttöku þessara hópa stendur þannig að mestu leyti að baki fjölgunar starfandi fólks. Atvinnuleysi var 1,8% á 3. ársfjórðungi þessa árs samanborið við 2,6% á sama fjórðungi í fyrra. Þetta er minnsta atvinnuleysi sem mælst hefur í Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar, en einu sinni áður, í nóvember 1999, hefur það mælst jafn lítið.
19.10.2005
Hræðsla við erlent starfsfólk ástæðulaus
Í grein í nýjasta tölublaði Newsweek, er fjallað um hræðslu Evrópubúa við erlent starfsfólk. Greint er frá því hvernig frjáls för starfsfólks frá tíu þjóðum sem gerðust aðilar að ESB og EES 1. maí 2004 var takmörkuð af nær öllum ríkjum sem voru fyrir aðilar að EES. Þá er fjallað um að ein af þeim hindrunum sem standi í vegi fyrir aðild Tyrklands að ESB sé rótgróin ótti við að Tyrkir muni taka störf af Evrópubúum. Fram kemur hjá greinarhöfundi að ótti sem þessi er ástæðulaus og bent er á að þeim þjóðum hafi farnast best sem engar takmarkanir hafi gert, þar sem þær hafi notið krafta starfsfólks sem eftirspurn hafi verið eftir til að auka hagvöxt og velferð.
19.10.2005
Fjárfestingartækifæri í Austur-Evrópu og Mið-Asíu
Stjórnendur og sérfræðingar frá Endurreisnar- og Þróunarbanka Evrópu, EBRD, eru fyrirlesarar á morgunverðarfundi sem haldinn verður á Radisson SAS Hótel Sögu, 27. október næstkomandi. Fjallað verður um fjárfestingartækifæri í Austur- Evrópu og Mið-Asíu, hlutverk EBRD, nýjustu þróun á sviði fjármála og þjónustu bankans á þessu svæði. Fjallað verður á fundinum um nýja fjárfestingar- og orkustefnu EBRD, þjónustu EBRD og aukinn virðisauka fyrirtækja. Tækifæri gefst til viðræðna við fulltrúa bankans en að afloknum morgunverðarfundinum verða haldnir tveir vinnufundir, annars vegar um orkumál og hins vegar um fjármál atvinnulíf og hagþróun í EBDR löndum. Skráning og nánari upplýsingar á vef Útflutningsráðs.
17.10.2005
1,4% atvinnuleysi í september
Í september sl. voru skráðir 49.897 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.267 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,4% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Atvinnuleysi hefur ekki mælst minna í einstökum mánuði síðan í október 2001, en til samanburðar mældist það 1,8% í ágúst sl. og 2,6% í september 2004. Vegna árstíðasveiflu eykst atvinnuleysi yfirleitt frá september til október og reiknar Vinnumálastofnun með 1,4 – 1,7% atvinnuleyi í október. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
14.10.2005
Veldur afgangur af ríkisrekstri auknum ríkisútgjöldum?
Kenning um jákvætt samband milli afgangs af ríkisrekstri og gjaldaaukningar á sér enga stoð í reynslu Norðurlandanna undanfarinn áratug þar sem raunin hefur verið þveröfug. Opinber útgjöld hafa dregist saman á undanförnum árum á öllum Norðurlöndunum, að Íslandi frátöldu, í hlutfalli við landsframleiðslu þrátt fyrir að ríkissjóðir landanna hafi verið reknir með verulegum afgangi á sama tíma. Hérlendis hefur rekstrarafgangur ríkissjóðs verið mun minni en stefnt hefur verið að í fjárlögum á hverjum tíma.
14.10.2005
Fleiri konur í stjórnir og áhrifastöður
Svokölluð Tækifærisnefnd iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur skilað af sér skýrslu og tillögum um leiðir til að auka fjölbreytni í forystusveit íslensks viðskiptalífs. Helstu rökin fyrir því að fjölga eigi konum í stjórn fyrirtækja eru þau að ávinningur sé af fjölbreytileika, ákvarðanir stjórna taki meira mið af markaðinum og að það að virkja konur í yfirstjórnir fyrirtækja hagnýti hæfni og þekkingu sem fyrirtækin myndu ellegar fara á mis við. Sjá nánar á vef ráðuneytisins.
12.10.2005
Menntun og aftur menntun
Í vaxandi alþjóðlegri samkeppni verða samkeppnishæf almenn starfsskilyrði fyrir atvinnulífið stöðugt mikilvægari. Þá verður menntun og aftur menntun ásamt með ræktun frumkvöðlaanda lykilatriði í áframhaldandi árangri. Þetta kom fram í erindi Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA, á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga um hræringar á vinnumarkaði.
12.10.2005
Öll matvæli í sama skattþrep og vörugjöld felld niður
SA leggja til að öll matvæli verði sett í sama þrep virðisaukaskatts og felld af þeim vörugjöld, samtímis því sem ákvörðun yrði tekin um lækkun á lægra þrepi virðisaukaskatts í 12%. Þau matvæli sem bera vörugjöld og skattlögð eru í hærra þrepi virðisaukaskatts bera stjórnlyndri neyslustýringu vitni sem ekki verður réttlætt með skírskotun til manneldisstefnu. Með framangreindum breytingum yrðu alvarlegir agnúar sniðnir af skattkerfinu og það fært nær því sem tíðkast hjá þjóðum sem við berum okkur saman við.
11.10.2005
Útilokað að fiskvinnslan taki á sig aukinn launakostnað
„Útilokað er að fiskvinnslan taki á sig aukinn launakostnað um næstu áramót sem orsakast af þensluástandi undanfarinna mánaða, á sama tíma og þrengt er að rekstri fyrirtækjanna,” segir í ályktun aðalfundar Samtaka fiskvinnslustöðva sem haldinn var þann 7. október. Aðalfundur SF lýsti yfir furðu sinni á aðgerðum í efnahags- og peningamálum sem leitt hafi til gengishækkunar krónunnar og grafið um leið undan rekstri útflutningsfyrirtækja í landinu. Fundurinn benti á að á síðustu 12 mánuðum hafi gengi krónunnar hækkað um 15% gagnvart erlendum gjaldmiðlum og muni það að óbreyttu geta haft í för með sér 18 milljarða króna samdrátt í útflutningsverðmætum sjávarafurða á einu ári. Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja við þessar aðstæður sé óviðunandi. Sjá nánar vef SF.
10.10.2005
Flug og ESB. Samkeppnisstöðu Íslands ógnað?
ESB hefur kynnt áætlun um að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda frá flugsamgöngum og er ætlunin að fella flugsamgöngur undir tilskipun um kvóta á losun gróðurhúsalofttegunda þannig að þak verði sett á losunina. Verði þetta niðurstaðan mun kostnaður fara vaxandi fyrir farþega og farmflytjendur. Þá munu áhrifin verða mest á fjarlægari stöðum. Þetta gæti því bitnað á samkeppnisstöðu íslenskra flugrekenda. Þá vekur það spurningar hvers vegna skekkja á með þessum hætti samkeppnisstöðu flugsamgangna við aðra samgöngumáta.
9.10.2005
Barátta gegn búðaþjófnaði – fundur 11. október
Þriðjudaginn 11. október standa SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu fyrir morgunverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík þar sem kynntur verður samanburður á umfangi búðaþjófnaða á Íslandi og í 24 öðrum Evrópulöndum. Sjá nánar á vef SVÞ.
6.10.2005
Framhald kjarasamninga krefst samstarfs stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar
Stjórn Samtaka atvinnulífsins kallar eftir samstarfi við verkalýðshreyfinguna og aðkomu stjórnvalda að lausn sem geti komið í veg fyrir yfirvofandi uppsögn kjarasamninga. Stjórn SA segir í ályktun að stjórnvöld verði að horfast í augu við ábyrgð sína á vaxandi verðbólgu, metviðskiptahalla, útlánaþenslu og skuldaaukningu heimilanna í landinu. Það verði að taka á því jafnvægisleysi sem einkenni íslenskan þjóðarbúskap um þessar mundir og auka aðhald opinberra fjármála. Kaupmáttur launa landsmanna sé nú hærri en nokkru sinni fyrr og við blasi að frekari hækkanir launa en þegar hefur verið samið um að taki gildi um næstu áramót myndu valda tjóni sem íslenskt efnahagslíf þurfi síst á að halda.
6.10.2005
Útlendingaumræða á villigötum
Mikilvægt er að íslensk fyrirtæki skipti einungis við traustar starfsmannaleigur sem virði lög og kjarasamninga á Íslandi. Verkalýðshreyfingin verður hins vegar að gera sér grein fyrir því hver eru grunnatriði EES samningsins. Það er óþolandi fyrir fyrirtæki sem fara í einu og öllu að lögum og reglum að þurfa að sæta óvæginni og ósanngjarnri blaðaumfjöllunum eða jafnvel lögreglu-aðgerðum fyrir það eitt að þar starfi útlendingar.
6.10.2005
Óviðunandi metnaðarleysi stjórnvalda
Á hverju ári fá SA til umsagnar tugi lagafrumvarpa, reglugerða og tilskipana um nýjar kröfur sem atvinnulífinu ber að fara eftir. Það heyrir til algerra undantekninga ef frumvarpshöfundar, reglugerðasmiðir eða tilskipana-þýðendur reyna að meta kostnað og ávinning af hinum nýju eftirlitsreglum og kröfum sem verið er að leggja á fyrirtækin í landinu. Er það þó ótvíræð lagaskylda. Ítrekuðum athugasemdum þess efnis er yfirleitt ekkert sinnt. Metnaðarleysi stjórnvalda á þessu sviði er óviðunandi og óskandi að fyrirhuguðu átaki um „einfaldara Ísland” verði m.a. nýtt til að gera þarna nauðsynlega bragarbót.
6.10.2005
Atvinnuleyfi á 3 vikum
Miklar breytingar hafa verið gerðar á verklagi við afgreiðslu umsókna um atvinnuleyfi fyrir ríkisborgara átta nýrra aðildarríkja EES samningsins og eru nú umsóknir afgreiddar á 2–3 vikum frá því þær berast Útlendingastofnun í stað 3–4 mánaða áður. Með þessum breytingum er brugðist við gagnrýni SA en samtökin hafa ítrekað skorað á stjórnvöld að tryggja hraða og skilvirka afgreiðslu atvinnuleyfa.
6.10.2005
Starfshæfni einstaklinga á atvinnuleysisskrá
Allstór hópur fólks er skráður atvinnulaus og þiggur atvinnuleysisbætur á sama tíma og þensla er ríkjandi á vinnumarkaði og verulegur skortur á starfsfólki á mörgum sviðum. 17% þessa fólks eru foreldrar ungra barna. Nýtt úrræði vinnumiðlunarinnar er að bjóða því fólki dagvistunarpláss á góðum kjörum samhliða atvinnutilboði. Fróðlegt verður að sjá áhrif þessa úrræðis á næstu vikum og mánuðum á atvinnleysi þessa hóps.
4.10.2005
Leonardo verkefni undir stjórn Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur fengið styrk frá Leonardo Da Vinci starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins að upphæð 30 milljónir í tilraunverkefni sem ber titilinn “The Value of Work.” Verkefnið miðar að því að þróa aðferðir til að meta raunverulega færni einstaklinga í atvinnulífinu.










