Fréttir
31.12.2005
Nýtum tækifærin
Undanfarin ár hafa Íslendingar verið að ná glæstum árangri í efnalegu tilliti, segir Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, m.a. í áramótaviðtali við Morgunblaðið. Hann segir vonir standa til að framhald verði á þessari þróun, en til að svo megi verða þurfi að halda vel um efnahagsstjórnina. Ingimundur fjallar um leiðir til þess að bæta lífskjör þjóðarinnar sem ekki síst séu í því fólgnar að skapa skilyrði til aukinnar hagræðingar, og nefnir m.a. aukið viðskiptafrelsi með landbúnaðarvörur í því sambandi með tilheyrandi verulegri lækkun á matvælaverði til neytenda. „Ekkert eitt atriði annað er nú líklegra til þess að stuðla að bættum lífskjörum hér á landi,“ segir Ingimundur.
31.12.2005
Fleiri verða að fylgja á eftir á sömu nótum
Laun embættismanna og þjóðkjörinna fulltrúa hækka um 2,5% og úrskurður Kjaradóms um u.þ.b. 8% hækkun sömu launa verður felldur úr gildi, nái frumvarp ríkisstjórnarinnar fram að ganga. Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, segist í samtali við Morgunblaðið fagna því að ríkisstjórnin skuli markvisst fylgja eftir þeirri afstöðu sinni að það verði að bregðast við þeirri keðjuverkun launahækkana sem hafi verið að byggjast upp undanfarnar vikur. „Fleiri verða að fylgja á eftir á sömu nótum og því verður fróðlegt að fylgjast með því hver framvindan verður á vettvangi sveitarfélaga í næsta mánuði,“ segir Ingimundur.
30.12.2005
Ari Edwald til 365 miðla
29.12.2005
Stjórnarhættir fyrirtækja, önnur útgáfa
Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Kauphöll Íslands hafa gefið út endurskoðaðar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja sem fyrst komu út árið 2004. Mikil og góð reynsla var af leiðbeiningunum og ákveðið var að gefa út nýjar og uppfærðar leiðbeiningar til að svara kalli atvinnulífsins. Það er vænleg leið til árangurs að atvinnulífið sjálft sýni frumkvæði og taki upp starfsreglur sem styrkja innviði fyrirtækja og auka traust milli almennings og fyrirtækja.
28.12.2005
Skýr skilaboð
Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, segir í samtali við Morgunblaðið, að SA séu sátt við viðbrögð forsætisráðherra við úrskurði Kjaradóms. „Í þessu felast skýr skilaboð um að stjórnvöld vilji sporna gegn þeirri keðjuverkun sem augljóslega var að byggjast upp að undanförnu í sambandi við launabreytingar. Ég vona að þetta verði skýr skilaboð inn í þá umræðu sem verður á vettvangi sveitarfélaganna um miðjan næsta mánuð," segir Ingimundur ennfremur.
23.12.2005
Alþjóðleg samkeppni - ódýrari jólagjafir
Áætlað er að jólaverslunin í Danmörku velti um 9 milljörðum danskra króna í ár, rúmlega 90 milljörðum íslenskra króna. Um það bil fimmta hver króna Dana sem þeir eyða fyrir jólin fer í kaup á hlutum sem eru búnir til í löndum utan OECD, t.d. Kína og Tælandi. Í fréttabréfi dönsku samtaka iðnaðarins kemur fram, að væri þessi varningur keyptur innan landa OECD er áætlað að verðmiðinn yrði 210 milljónum danskra króna hærri, rúmum tveimur milljörðum íslenskra króna. Danskir neytendur njóta því ávaxtanna af alþjóðlegri samkeppni þessi jólin og það gera dönsk fyrirtæki einnig, en 2/3 iðnframleiðslu Dana fara á erlenda markaði.
22.12.2005
Fjarvistarsönnun fyrir hvaða ábyrgðarleysi sem er
Samtök atvinnulífsins lýsa furðu sinni á ákvörðun Kjaradóms um launahækkanir til æðstu embættismanna. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið að ekkert það hafi gerst á almennum vinnumarkaði sem skapi forsendur fyrir þessari prósentuhækkun. „Við teljum að þetta sé um tvöföld hækkun á við það sem þar hefur verið að gerast,“ segir Ari og segir að þessi dómur verði ein allsherjar fjarvistarsönnun fyrir hvaða ábyrgðarleysi sem er í launaákvörðunum hjá hinu opinbera. Þá geti Kjaradómur geti ekki vikið sér undan ábyrgð á því að hann sé segja að hér eigi að vera 10% verðbólga.
22.12.2005
Tortryggni skattyfirvalda
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið að einhverrar tortryggni gæti í garð íslenskra alþjóðafyrirtækja af hálfu skattyfirvalda, en ríkisskattstjóri telur æskilegt að setja á laggirnar sérstaka einingu hjá skattyfirvöldum til að fylgjast með skattskilum stórra fyrirtækja sem hafa flókin eignatengsl og bein eða óbein tengsl við útlönd. Hannes bendir á að þau íslensku fyrirtæki sem hafa haslað sér völl erlendis eru oft á tíðum skráð á hlutabréfamarkað og rekstur þeirra mjög gegnsær. Vandi tengdur skattsvikum eigi því alls ekki við um þessi fyrirtæki. Hannes segir að forðast beri íþyngjandi eftirlit, án þess þó að slaka á kröfum um skilvirka skattframkvæmd.
21.12.2005
Gjald fyrir heilbrigðiseftirlit nær nýjum hæðum
Heilbrigðiseftirlit Austurlands hefur gefið út nýja gjaldskrá þar sem tímagjald fyrir eftirlitsstörf eru hækkuð um 10% frá fyrri gjaldskrá sem gefin var út í janúar 2004. Fyrir „tímabundna starfsemi tengda stóriðju og virkjunum“ er gjaldið hins vegar 30% hærra en hjá þeim sem stunda það sem eftirlitið kallar hefðbundna starfsemi. Þessi sérstaka gjaldtaka er fordæmalaus og svarar gjaldið til þess að kostnaður við dagvinnu eins heilbrigðisfulltrúa séu tæplega 1,5 milljónir króna á mánuði.
20.12.2005
Launahækkanir forstjóra
Launatekjur forstjóra og stjórnenda almennt hafa á undanförnum árum þróast í takt við laun almennt samkvæmt fyrirliggjandi heimildum, segir Hannes G. Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í grein í Morgunblaðinu. Hannes segir ekki boðlegt að vitna til tekjublaðs Frjálsrar verslunar til að sýna fram á launaþróun stjórnenda, enda sé tekjublaðið hvorki vísindaleg né fagleg launakönnun. Hann telur það nýmæli að niðurstaða nýlegra kjarasamninga Reykjavíkurborgar sé réttlætt af hálfu launagreiðanda með tilvísun í tekjublaðið.
19.12.2005
Pennastriksaðferð borgarstjóra
Innistæðulítil pennastrik stjórnmálamanna bæta ekki lífskjör almennings, segir í grein Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA, í Morgunblaðinu. Þar fjallar hann m.a. um þá þróun að sveitarfélögin í landinu geri kostnaðarsamari kjarasamninga en bæði ríkið og almenni markaðurinn á meðan sveitarfélögin í heild séu rekin með tapi. Ari segir um viðbrögð borgarstjórans í Reykjavík við gagnrýni SA á þessa þróun að það sé dapurlegt að borgarstjóri treysti sér ekki í málefnalegar umræður um kjaraþróun og efnahagsmál, en haldi sig þess í stað við gamalkunnar lýðskrumsaðferðir.
19.12.2005
Er 30% launahækkun í lagi?
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir í grein í Fréttablaðinu að meginástæður verðbólgunnar um þessar mundir séu miklar launahækkanir. Hann spyr því hvort 30% launahækkun, eins og Reykjavíkurborg samdi um í byrjun mánaðarins, sé í lagi. Hannes bendir á að ekki séu mörg dæmi um slíkar hækkanir í þróuðum ríkjum og segir að hörmungar verðbólguáranna á Íslandi virðist því miður vera gleymdar.
16.12.2005
Nauðsynlegt að auka viðskiptafrelsi með landbúnaðarvörur
Samtök atvinnulífsins hafa ítrekað lýst vonbrigðum sínum með að Ísland skipar sér í hóp þeirra ríkja sem skemmst vilja ganga í átt til aukins viðskiptafrelsis með landbúnaðarvörur. Samtökin telja nauðsynlegt að auka viðskiptafrelsi með landbúnaðarvörur og auka þannig fjölbreytni í vöruframboði, samkeppni og aðhald markaðarins. Með þessu yrði stuðlað að lækkun á matvælaverði til neytenda sem er alltof hátt hér á landi. Þá þarf að draga úr opinberum stuðningi við landbúnað, gera hann gagnsærri og draga úr markaðstruflandi áhrifum hans. Ennfremur vilja SA að felld verði niður vörugjöld af matvælum og þau öll sett í sama þrep virðisaukaskatts, samtímis því sem lægra þrep hans yrði lækkað í 12%.
15.12.2005
Könnun Útflutningsráðs vegna verkefna á árinu 2006
Útflutningsráð kannar nú hvar áhugi íslenskra fyrirtækja liggur og hvert þau vilja stefna árið 2006. Um er að ræða skoðanakönnun með hugmyndum að verkefnum tengdum sýningum erlendis, viðskiptasendinefndum og námskeiðum á árinu 2006. Áhugasamir eru beðnir að taka þátt í könnuninni á vef Útflutningsráðs.
14.12.2005
Áherslur Evrópusamtaka atvinnulífsins
Efla þarf samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs á tímum vaxandi alþjóðlegrar samkeppni og tilskipun um frelsi í þjónustuviðskiptum gegnir þar lykilhlutverki. Þetta er meðal áhersluatriða af fundi formanna aðildarsamtaka UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins. Fundurinn lagði jafnframt áherslu á mikilvægi þess að árangur náist í WTO-viðræðunum í Hong Kong og hafnaði einhliða skuldbindingum Evrópuríkja á sviði loftslagsmála. Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, og Vilmundur Jósefsson, formaður SI, sóttu fundinn.
13.12.2005
1,5% atvinnuleysi í nóvember
Í nóvembermánuði síðastliðnum voru skráðir 49.348 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.247 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,5% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,4% í október sl., en 2,6% í nóvember 2004. Árstíðaleiðrétt er atvinnuleysið nú 1,6%. At mati Vinnumálastofnunar er líklegt að atvinnuleysið breytist lítið milli mánaða og verði á bilinu 1,4 – 1,7% í desember. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
13.12.2005
Lög um mengun hafs og stranda
Um áramótin taka að fullu gildi lög um mengun hafs og stranda. Fyrirtæki sem lögin ná til þurfa að tryggja sig sérstaklega vegna hugsanlegrar bráðamengunar en í fylgiskjali með lögunum geta fyrirtæki séð hvort þau þurfi að kaupa auka tryggingar og útbúa sérstaka viðbragðsáætlun vegna bráðamengunaróhapps eins og kveðið er á um í lögunum.
12.12.2005
Úrvinnslugjald lagt á umbúðir
10.12.2005
UT-dagurinn 24. janúar 2006
Stjórnvöld, í samvinnu við upplýsingatækniiðnaðinn, standa fyrir sérstökum upplýsingatæknidegi þann 24. janúar nk. undir nafninu UT-dagurinn þar sem haldin verður ráðstefna á Hótel Nordica. Er deginum ætlað að beina sjónum að þeim tækifærum og möguleikum sem við höfum á sviði upplýsingatækni. Markmið dagsins er m.a. að vekja athygli á upplýsingatækninni og upplýsingatækniiðnaðinum, umfangi hans og gildi fyrir samfélagið. Sjá nánar á vef forsætisráðuneytisins.
9.12.2005
Fleiri framhaldsskólanemar ætla í framhaldsnám
Í nýrri könnun sem Rannsóknir og greining gerði fyrir menntamálaráðuneytið meðal framhaldsskólanema á Íslandi haustið 2004, kemur fram að mun fleiri framhaldsskólanemar hyggja á framhaldsnám eftir stúdentspróf nú en árið 2000. Bæði á það við um framhaldsnám í háskólum og í skólum sem ekki eru á háskólastigi. Nemendur á höfuðborgarsvæðinu telja tekjumöguleika sína besta þar eða í útlöndum. Landsbyggðarnemendur telja tekjumöguleika sína einnig mesta á höfuðborgarsvæðinu en þeir vilja þó síst búa þar. Meira þarf til að freista framhaldsskólanema frá námi í dag með góðu atvinnutilboði en árið 2000.
5.12.2005
Vélstjórar í fullu starfi fá 26.000 króna eingreiðslu
Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök atvinnulífsins og Vélstjórafélag Íslands hafa gert með sér samkomulag um breytingar á kjarasamningum aðilanna. Samkvæmt samkomulaginu greiðist sérstök eingreiðsla kr. 26.000 til vélstjóra sem hafa verið í fullu starfi allt árið hjá sömu útgerð og eru í starfi síðustu viku í nóvember eða fyrstu viku desember. Vélstjórar sem ekki ná fullu starfsári fá greitt hlufallslega.
5.12.2005
Spá enn aukinni jólaverslun á Íslandi en samdrætti í Evrópu
Rannsóknasetur verslunarinnar spáir því að jólaverslunin hér á landi muni aukast um 10,8% frá því í fyrra. Stöðug aukning hefur verið í jólaverslun undanfarin ár. Í Skandinavíu er einnig gert ráð fyrir aukningu, þó minni en hér. Hins vegar er því spáð að jólaverslunin muni eitthvað dragast saman að meðaltali í Evrópu. Ástæðan er sögð lækkun kaupmáttar og aukið atvinnuleysi. Sjá nánar á vef SVÞ.
2.12.2005
Sjómenn í fullu starfi fá 26 þúsund króna eingreiðslu
Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök atvinnulífsins, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands og Alþýðusamband Vestfjarða hafa gert með sér samkomulag um breytingar á kjarasamningum aðilanna með vísan til endurskoðunarákvæða þeirra.Samkvæmt samkomulaginu greiðist sérstök eingreiðsla kr. 26.000 til sjómanna sem hafa verið í fullu starfi allt árið hjá sömu útgerð og eru í starfi síðustu viku í nóvember eða fyrstu viku desember. Sjómenn sem ekki ná fullu starfsári fá greitt hlutfallslega.
1.12.2005
Atvinnulífið græðir á jafnrétti
Í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, að jafnréttismál hafi lengi verið knýjandi umræðuefni í samfélaginu, en það sé þó ekki fyrr en á allra síðustu árum að sjónir hafi beinst meira að stöðu karla í þessu sambandi og að jafnrétti í ákvörðunum og skyldum á heimilunum sé jafn mikilvægt og þurfi að haldast í hendur við jafnrétti í stjórnarherbergjunum og atvinnulífinu almennt.
1.12.2005
Karlar um borð
Karlar fjölmenntu í dag í Salinn í Kópavogi til að ræða jafnréttismál út frá sjónarhóli karla á ráðstefnunni Karlar um borð. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins var meðal frummælenda, en í erindi sínu fjallaði hann um það hvernig atvinnulífið græðir á jafnrétti og mismunun feli í sér sóun. Nefndi Ari einnig að áhersla á jafnrétti og fjölbreytileiki innan fyrirtækja tengdist betri stjórnunarháttum og betri afkomu fyrirtækja. Ari benti m.a. á þá jákvæðu þróun að á síðustu fimm árum hefur konum í stöðu framkvæmdastjóra í skráðum hlutafélögum fjölgað umtalsvert - íslenskt þjóðfélag stefni því í rétta átt þó allt of hægt miði.
1.12.2005
Veldur verðbólga fólki litlum áhyggjum?
Verðbólguárin virðast gleymd hjá stórum hluta þjóðarinnar en 37% landsmanna hafa litlar áhyggjur af mikilli verðbólgu, skv. niðurstöðu úr spurningavagni IMG Gallup. Samtök atvinnulífsins fengu á dögunum IMG Gallup til að spyrja í spurningavagni sínum hvort mikil verðbólga ylli svarendum miklum eða litlum áhyggjum. 54% sögðu mikla verðbólgu valda þeim mjög eða frekar miklum áhyggum, 9% svöruðuð bæði og eða í meðallagi en sem fyrr segir sögðust 37% hafa frekar eða mjög litlar áhyggjur af mikilli verðbólgu. Áhyggjurnar eru áberandi minnstar meðal yngstu svarendanna, 16-24 ára, en 59% þess hóps hafa litlar áhyggjur af mikilli verðbólgu.
1.12.2005
Hægar breytingar í tekjuskiptingu á Íslandi
Því er ítrekað haldið fram í opinberri umræðu að ójöfnuður í launum fari sífellt vaxandi hér á landi og að Ísland sé að komast í hóp landa þar sem ójöfnuður er hvað mestur. Hvorug þessara staðhæfinga er á rökum reist. Það sem einkum veldur þessum misskilningi er að fjármagnstekjur einstaklinga hafa vaxið gríðarlega hér á landi undanfarinn áratug en ójöfnuður tekna, að fjármagnstekjum meðtöldum, hefur farið vaxandi af þeim sökum. Breytingar á tekjuskiptingunni, að fjármagnstekjum undanskildum, undanfarin ár eru hins vegar ekki miklar.
29.11.2005
Beinar greiðslur fyrirtækja í fræðslusjóði verkafólks
Í kjarasamningum vorið 2004 var samið um beinar greiðslur atvinnurekenda í fræðslusjóði verkafólks. Frá 1. janúar 2006 er gjaldið 0,05% af launum, en verður 0,15% frá 1. janúar 2007. Á samningssvæði Flóabandalagsins verður gjaldið innheimt af lífeyrissjóðum samhliða innheimtu annarra sjóðagjalda en á landsbyggðinni verður samið við lífeyrissjóði eða stéttarfélög um innheimtuna.
25.11.2005
Karlar um borð – karlaráðstefna um jafnréttismál 1. des.
Hafa karlar skoðun á jafnréttismálum? Vilja karlar sömu laun fyrir sömu vinnu? Eru jafnréttismál kvennabarátta? Þessar spurningar o.fl. verða til umfjöllunar á karlaráðstefnu um jafnréttismál, sem haldin verður í Salnum Kópavogi fimmtudaginn 1. desember nk. kl. 9 til 12. Ráðstefnan er eingöngu ætluð körlum, með þeirri undantekningu að Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, mun ávarpa ráðstefnuna og sitja hana sem verndari og heiðursgestur. Að ráðstefnunni standa SA, félagsmálaráðuneytið, Íslandsbanki, Morgunblaðið, VR og Viðskiptaháskólinn á Bifröst. Sjá nánar á vef félagsmálaráðuneytisins.
25.11.2005
Ný reglugerð um öryggis- og heilbrigðisstarf á vinnustöðum
Undanfarna rúma 20 mánuði hefur verið unnið að því á vegum Vinnueftirlits ríkisins að semja ný drög að reglugerð um öryggis- og heilbrigðisstarf á vinnustöðum. Reglugerð þessi sem sett verður samkvæmt lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum á að koma í stað reglna nr. 77/1982 um sama efni. Einnig er nú tekið mið af þeim breytingum sem urðu á lögunum með lögum nr. 68/2003 þar sem atvinnurekendur eru gerðir ábyrgir fyrir því að gerð sé skrifleg áætlun um heilbrigði og öryggi á vinnustað ásamt mati á áhættu, áætlun um heilsuvernd og að þetta sé gert í samráði við starfsmenn. Reglugerðinni er ætlað að ná til allra vinnustaða stórra og smárra.
23.11.2005
Mikilvægt skref í átt að frelsi í þjónustuviðskiptum
Evrópuþingið hefur færst nær niðurstöðu um raunverulegt frelsi í þjónustuviðskiptum, en tilskipunardrög þar að lútandi hafa nú verið afgreidd úr nefnd þingsins um innri markaðinn og neytendamál. UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, fagna niðurstöðunni sem mikilvægu skrefi í átt að raunverulegu frelsi í þjónustuviðskiptum. Forseti samtakanna segir frelsi í þjónustuviðskiptum nauðsynlegt til þess að efla hagvöxt, auka samkeppni og fjölga störfum.
22.11.2005
Samið um lægri tolla til Rússlands
Tollar á allar helstu útflutningsvörur frá Íslandi til Rússlands munu lækka verulega eftir að Rússland fær aðild að Alþjóðaviðskiptastofnuninni WTO, skv. samningi Íslands og Rússlands í tengslum við framtíðaraðild Rússlands að stofnuninni. Aðlögunartíminn er almennt tvö ár. Nýlega var undirritaður sambærilegur samningur við Úkraínu. Sjá nánar í Stiklum (27. tbl. 2005), vefriti viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
18.11.2005
Hagnaður fyrirtækja undirstaða betra umhverfis
16.11.2005
Fundur um úrvinnslugjald á umbúðir
Samtök iðnaðarins og SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu boða til morgunverðarfundar um álagningu úrvinnslugjalds á umbúðir úr pappa, pappír og plasti miðvikudaginn 23. nóvember frá 8:30 til 10:00 á Grand Hótel, en umrædd álagning hefst nú um áramót. Meðal annars verða kynntar reglur um undanþágu frá gjaldinu vegna útflutnings. Sjá nánar á vef SI.
15.11.2005
Samkomulag SA og ASÍ um framhald kjarasamninga
Undirritað hefur verið samkomulag í nefnd SA og ASÍ um forsendur frá vorinu 2004. Aðilar eru sammála um að forsendur hafi ekki staðist. Niðurstaða nefndarinnar kveður m.a. á um 0,65% hækkun launa í janúar 2007 til viðbótar við umsamdar hækkanir samninga og 26.000 króna eingreiðslu í desember nk. Þá gerðu aðilar samkomulag um breytingar á atvinnuleysisbótum þar sem m.a. er kveðið á um tekjutengingu bóta að hluta. Samhliða þessu gaf Ríkisstjórn Íslands út yfirlýsingu þar sem m.a. kemur fram að dregið skuli úr vaxandi örorkubyrði lífeyrissjóða, lögfestar breytingar á atvinnuleysisbótum, gert átak í starfsmenntamálum ófaglærðra og sett fram frumvarp til laga um starfsmannaleigur.
11.11.2005
1,4% atvinnuleysi í október
Í októbermánuði síðastliðnum voru skráðir 46.025 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.193 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,4% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,4% í september sl. en 2,7% í október 2004. Atvinnuleysi hefur ekki mælst minna í einstökum mánuði síðan í október 2001. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
11.11.2005
Kaupmáttur launa jókst um 1,4% á almennum vinnumarkaði
Regluleg laun hækkuðu að meðaltali um 5,4% á tímabilinu frá 3. ársfjórðungi 2004 til 3. ársfjórðungs 2005 í iðnaði, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, verslun og viðgerðarþjónustu. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 4,0%. Samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 1,4% í þessum atvinnugreinum, að því er fram kemur í frétt frá Hagstofu Íslands. Sjá nánar á vef Hagstofunnar
10.11.2005
Sveitarfélögin axla ekki hagstjórnarábyrgð
Sveitarfélögin hafa í heild ekki axlað hagstjórnarábyrgð með viðunandi hætti og að óbreyttu væri beinlínis óæskilegt frá sjónarhorni hagstjórnar að auka vægi sveitarfélaga í þjóðarbúskapnum, sagði
10.11.2005
Alcan á Íslandi hlýtur íslensku gæðaverðlaunin 2005
Íslensku gæðaverðlaunin í ár hlýtur fyrirtækið Alcan á Íslandi. Fyrirtækið rekur álver í Straumsvík þar sem framleiðslan nú er 20% meiri en verksmiðjan er hönnuð til að framleiða, en sá árangur skýrist af mikilli tækni- og verkþekkingu sem orðið hefur til innan fyrirtækisins auk markvissrar stjórnunar. Fyrirtækið hefur vottað gæðakerfi (ISO 9001), umhverfisstjórnunarkerfi (ISO 14001) og öryggisstjórnunarkerfi (OHSAS 18001) og hefur verið leiðandi á ýmsum sviðum. Að íslensku gæðaverðlaununum standa Samtök atvinnulífsins, forsætisráðuneytið, Verzlunarmannafélag Reykjavíkur, Háskóli Ísland og Stjórnvísi. Sjá nánar á vef Stjórnvísi.
9.11.2005
Umræður um launamun kynjanna
Í nýlegu fréttabréfi SN, sænsku samtaka atvinnulífsins, er því haldið fram að óútskýranlegur eða ómálefnalegur launamunur kynjanna sé goðsögn. Fjallað er um nýlega rannsókn Arbetsgiververket, vinnuveitendastofnunar ríkisins í Svíþjóð, þar sem 14,7% munur á heildarlaunum karla og kvenna er að mestu skýrður með þáttum á borð við vinnutíma, reynslu, eðli starfa og eðli verkefna. Eftir stendur 1,5% óútskýrður launamunur. Nýleg rannsókn SN skilaði svipuðum niðurstöðum, en þar voru rannsökuð gögn um launagreiðslur til 1,5 milljóna starfsmanna á almennum vinnumarkaði í Svíþjóð. Hér vakna hins vegar spurningar um ástæður t.d. þess að karlar séu oftar en konur í stjórnunarstöðum.
8.11.2005
Færri ár í framhaldsskóla
Fjöldi framhaldsskólakennara mótmælir um þessar mundir fyrirhugaðri fækkun ára í framhaldsskóla. Í grein í Morgunblaðinu spyr
7.11.2005
Áhersla á hagnýta menntun fyrir atvinnulífið
3.11.2005
Uppsögn kjarasamninga?
Yfirlýsing miðstjórnar ASÍ, þess efnis að einsýnt þyki að koma muni til uppsagnar kjarasamninga, hlýtur að teljast með miklum ólíkindum ef horft er til stöðu viðræðna milli aðila og þróunar kaupmáttar í landinu, segir
3.11.2005
Kaupmáttur launa aldrei verið hærri
Kaupmáttur launa hefur aldrei verið hærri en nú en hann hefur vaxið um 40% á tíu árum. Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur á sama tíma vaxið um 60%, m.a. vegna skattalækkana. Hærri greiðslur atvinnurekenda til lífeyrissjóða, sem áhersla hefur verið lögð á í síðustu kjarasamningum, teljast ekki með í þessum mælingum. Loks stafa þrír fjórðu hlutar verðbólgu undanfarna tólf mánuði af hækkun fasteignaverðs. Ekki er með nokkru móti hægt að halda því fram að hallað hafi á félagsmenn verkalýðsfélaganna það sem af er samningstímanum þar sem kaupmáttur launa er í sögulegu hámarki hvernig sem á hann er litið.
3.11.2005
Áfengis- og vímuefnapróf á vinnustað
Samkvæmt nýrri könnun styðjast 70 af 100 stærstu fyrirtækjum í Svíþjóð við próf til að sporna gegn vímuefnanotkun meðal starfsmanna sinna og í flestum atvinnugreinum eru fyrirtæki farin að gera kröfu um að starfsfólk sitt undirgangist vímuefnapróf, sem stuðla að auknu öryggi á vinnustað. Er þessi þróun í Svíþjóð í takt við þróunina í Evrópu í heild og hefur Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðað slík próf réttlætanleg. Íslensk fyrirtæki hafa áskilið sér rétt til að kalla starfsmenn í vímuefnapróf í starfsumsókn og ráðningarsamningi sem starfsmaður undirritar, þótt það sé ekki algengt enn sem komið er.
3.11.2005
Upplýsingar um umhverfismál - fyrirtæki gæti hagsmuna sinna
Umhverfisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um upplýsingarétt um umhverfismál. Meginreglan er sú að almenningur getur fengið allar upplýsingar um umhverfismál sem fyrir liggja hjá stjórnvöldum eða þeim sem starfa í umboði stjórnvalda. Mikilvægt er að fyrirtæki fari yfir það hvaða upplýsingar eru látnar í hendur stjórnvalda og taki það fram ef upplýsingarnar varða fjárhags- eða viðskiptahagsmuni sem skuli fara leynt.
3.11.2005
Viltu ráða háskólanema frá Austur-Evrópu?
Íslenskum fyrirtækjum stendur nú til boða að ráða til sín háskólastúdenta frá Austur-Evrópu. Það eru Aiesec, alþjóðleg samtök háskólastúdenta, sem hafa milligöngu um ráðningu þeirra undir merkjum verkefnisins EuroXperience en það hófst í upphafi ársins. Markmið Aiesec með verkefninu er að styðja við stækkun ESB frá 2004 með því að bæta tengslin milli austur og vesturhluta Evrópu. Ráðningartími er tveir til átján mánuðir og lágmarkslaun eru 130 þúsund krónur á mánuði.
2.11.2005
Nýr starfsmaður á Evrópuskrifstofu SA í Brussel
Eva Margrét Ævarsdóttir lögfræðingur hefur verið ráðin til starfa á Evrópuskrifstofu SA í Brussel. Eva Margrét útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands og er með LL.M. gráðu í Evrópurétti frá Katholieke Universiteit í Leuven í Belgíu. Áður hefur hún m.a. starfað sem lögmaður og rekið Lögmannsstofuna Síðumúla 9 (nú Lögborg) og unnið sem nefndaritari á nefndasviði skrifstofu Alþingis. Eva Margrét tekur við af Ástfríði M. Sigurðardóttur sem starfsmaður SA í Brussel, en Ástfríður lætur af störfum hjá SA í nóvemberlok. Eva Margrét hefur þegar hafið störf og mun starfa við hlið Ástfríðar fyrst um sinn. Sjá nánar um Evrópuskrifstofu SA í Brussel.
1.11.2005
Lækkun á greiðslum í starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks
Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks hefur tekið í notkun nýjan vef þar sem er að finna margvíslegar upplýsingar um skyldur fyrirtækja gagnvart sjóðnum ásamt upplýsingum um rétt þeirra. Almennt borga fyrirtæki 0,15% af launum verslunar- og skrifstofufólks í sjóðinn en geta sótt um lækkun á framlaginu í 0,05% ef þau standa sig vel í starfsmenntamálum. Að auki geta þau sótt um styrki til sjóðsins. Sjóðurinn er eign Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, Landssambands ísl. verzlunarmanna og Samtaka atvinnulífsins. Markmið sjóðsins er að auka hæfni og menntun verslunar- og skrifstofufólks, ásamt því að stuðla að auknu framboði af námi og námsefni sem svari þörfum atvinnulífsins á hverjum tíma. Sjá nánar: www.starfsmennt.is.
31.10.2005
Áhersla á aðgerðir gegn þenslu
Mikilvægt er að ákvörðun verði tekin nú þegar um aukin kaup á gjaldeyri og söluandvirði Símans nýtt til þess m.a. Einnig er brýnt að breyta strax reglum Íbúðalánasjóðs varðandi vexti og lánshlutföll. Slíkar aðgerðir munu draga úr þenslu. Þetta kemur fram í efnahagsályktun 66. aðalfundar LÍÚ. Aðalfundurinn samþykkti einnig ályktanir um greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins, hvalveiðar, loðnurannsóknir, eftirlit vegna skipaskoðunar og ráðgefandi stjórn Fiskistofu. Sjá nánar á vef LÍÚ.
27.10.2005
Rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja óviðunandi
Á aðalfundi LÍU, sagði Björgólfur Jóhannsson, formaður samtakanna, að staðan í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja í dag væri óviðunandi, sem rekja mætti fyrst og fremst til styrkingar íslensku krónunnar. „Ég hef mikið velt því fyrir mér á undanförnum mánuðum hvað sé eiginlega að gerast á gjaldeyrismarkaði. Mér finnst málin liggja þannig að Seðlabanki Íslands hækkar vexti, eina ráðið að sagt er, til að halda aftur af verðbólgu, verðbólgu sem hefur verið drifin áfram af annars vegar utanaðkomandi aðstæðum og hins vegar heimatilbúnum,” sagði Björgólfur. „Heimatilbúnar aðstæður kalla ég hækkun á verði fasteigna sem fyrst og fremst má rekja til ákvarðana um hækkun lánshlutfalls og lækkun vaxta hjá Íbúðalánasjóði. Erlendir aðilar koma svo með fé og nýta sér háa vexti með tilheyrandi afleiðingum.” Sjá nánar ræðu Björgólfs á vef LÍÚ.
27.10.2005
Starfsmenntaverðlaunin 2005 - lokafrestur á föstudag!
Starfsmenntaverðlaunin verða veitt þann 4. nóvember næstkomandi. Verðlaunin verða veitt í þremur flokkum: flokki fyrirtækja, flokki fræðsluaðila og í opnum flokki sem nær meðal annars til einstaklinga og verkefna. Tilnefningar sendist Mennt fyrir 28. október á þar til gerðum eyðublöðum. Sjá nánar á vef Menntar.
26.10.2005
Vel sóttur fundur um áhættugreiningu og áhættumat
Það var fjölmenni sem mætti á fund SA um áhættugreiningu og áhættumat í fyrirtækjum, en í sífellt fleiri lögum og reglugerðum eru gerðar kröfur um að fyrirtæki geri sérstakt áhættumat, sem varðar bæði ytra umhverfi og innri starfsemi. Fyrirlesarar voru Dr. Björn Karlsson, brunamálastjóri, Gestur Pétursson, Inpro, Helgi Jensson, Umhverfisstofnun og Inghildur Einarsdóttir, Vinnueftirlitinu. Gáfu þau bæði greinargóðar og gagnlegar upplýsingar en fram kom m.a. að áhættu er unnt að meta með ýmsu móti og í mörgum tilvikum er unnt að beita einföldum og handhægum aðferðum við matið.
24.10.2005
Gæðavottun á launajöfnuð kynja?
Í Fréttablaðinu, á 30 ára afmæli kvennafrídagsins, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, að það feli í sér sóun að mismuna konum og körlum með launagreiðslum og samtökin leggi áherslu á að fyrirtæki greiði laun á grundvelli frammistöðu og framlags. Félagsmálaráðherra, Árni Magnússon, hefur sett fram hugmyndir um að taka upp sérstaka gæðavottun sem fyrirtæki geti nýtt sér til að sýna fram á að þau greiði konum og körlum jöfn laun. Ari segist aðspurður að það geti vel komið til greina að fara þá leið. „… má vel vera að ganga megi lengra í að beita aðferðum gæðastjórnunar á þessu sviði.“ Sjá Fréttablaðið 24.október.
21.10.2005
Þensla á vinnumarkaði
Starfandi fólki hefur fjölgað um 5.900 frá árinu 2004. Fjölgunin er mest í elsta aldurshópnum, 55-74 ára, og nam hún 2.600 manns. Atvinnuþáttaka þessa hóps jókst úr 61,5% í 65,6%. Atvinnuþátttaka unga fólksins, 24 ára og yngri, hefur einnig aukist verulega og mikil aukning í atvinnuþátttöku þessara hópa stendur þannig að mestu leyti að baki fjölgunar starfandi fólks. Atvinnuleysi var 1,8% á 3. ársfjórðungi þessa árs samanborið við 2,6% á sama fjórðungi í fyrra. Þetta er minnsta atvinnuleysi sem mælst hefur í Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar, en einu sinni áður, í nóvember 1999, hefur það mælst jafn lítið.
19.10.2005
Hræðsla við erlent starfsfólk ástæðulaus
Í grein í nýjasta tölublaði Newsweek, er fjallað um hræðslu Evrópubúa við erlent starfsfólk. Greint er frá því hvernig frjáls för starfsfólks frá tíu þjóðum sem gerðust aðilar að ESB og EES 1. maí 2004 var takmörkuð af nær öllum ríkjum sem voru fyrir aðilar að EES. Þá er fjallað um að ein af þeim hindrunum sem standi í vegi fyrir aðild Tyrklands að ESB sé rótgróin ótti við að Tyrkir muni taka störf af Evrópubúum. Fram kemur hjá greinarhöfundi að ótti sem þessi er ástæðulaus og bent er á að þeim þjóðum hafi farnast best sem engar takmarkanir hafi gert, þar sem þær hafi notið krafta starfsfólks sem eftirspurn hafi verið eftir til að auka hagvöxt og velferð.
19.10.2005
Fjárfestingartækifæri í Austur-Evrópu og Mið-Asíu
Stjórnendur og sérfræðingar frá Endurreisnar- og Þróunarbanka Evrópu, EBRD, eru fyrirlesarar á morgunverðarfundi sem haldinn verður á Radisson SAS Hótel Sögu, 27. október næstkomandi. Fjallað verður um fjárfestingartækifæri í Austur- Evrópu og Mið-Asíu, hlutverk EBRD, nýjustu þróun á sviði fjármála og þjónustu bankans á þessu svæði. Fjallað verður á fundinum um nýja fjárfestingar- og orkustefnu EBRD, þjónustu EBRD og aukinn virðisauka fyrirtækja. Tækifæri gefst til viðræðna við fulltrúa bankans en að afloknum morgunverðarfundinum verða haldnir tveir vinnufundir, annars vegar um orkumál og hins vegar um fjármál atvinnulíf og hagþróun í EBDR löndum. Skráning og nánari upplýsingar á vef Útflutningsráðs.
17.10.2005
1,4% atvinnuleysi í september
Í september sl. voru skráðir 49.897 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.267 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,4% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Atvinnuleysi hefur ekki mælst minna í einstökum mánuði síðan í október 2001, en til samanburðar mældist það 1,8% í ágúst sl. og 2,6% í september 2004. Vegna árstíðasveiflu eykst atvinnuleysi yfirleitt frá september til október og reiknar Vinnumálastofnun með 1,4 – 1,7% atvinnuleyi í október. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
14.10.2005
Veldur afgangur af ríkisrekstri auknum ríkisútgjöldum?
Kenning um jákvætt samband milli afgangs af ríkisrekstri og gjaldaaukningar á sér enga stoð í reynslu Norðurlandanna undanfarinn áratug þar sem raunin hefur verið þveröfug. Opinber útgjöld hafa dregist saman á undanförnum árum á öllum Norðurlöndunum, að Íslandi frátöldu, í hlutfalli við landsframleiðslu þrátt fyrir að ríkissjóðir landanna hafi verið reknir með verulegum afgangi á sama tíma. Hérlendis hefur rekstrarafgangur ríkissjóðs verið mun minni en stefnt hefur verið að í fjárlögum á hverjum tíma.
14.10.2005
Fleiri konur í stjórnir og áhrifastöður
Svokölluð Tækifærisnefnd iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur skilað af sér skýrslu og tillögum um leiðir til að auka fjölbreytni í forystusveit íslensks viðskiptalífs. Helstu rökin fyrir því að fjölga eigi konum í stjórn fyrirtækja eru þau að ávinningur sé af fjölbreytileika, ákvarðanir stjórna taki meira mið af markaðinum og að það að virkja konur í yfirstjórnir fyrirtækja hagnýti hæfni og þekkingu sem fyrirtækin myndu ellegar fara á mis við. Sjá nánar á vef ráðuneytisins.
12.10.2005
Menntun og aftur menntun
Í vaxandi alþjóðlegri samkeppni verða samkeppnishæf almenn starfsskilyrði fyrir atvinnulífið stöðugt mikilvægari. Þá verður menntun og aftur menntun ásamt með ræktun frumkvöðlaanda lykilatriði í áframhaldandi árangri. Þetta kom fram í erindi Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA, á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga um hræringar á vinnumarkaði.
12.10.2005
Öll matvæli í sama skattþrep og vörugjöld felld niður
SA leggja til að öll matvæli verði sett í sama þrep virðisaukaskatts og felld af þeim vörugjöld, samtímis því sem ákvörðun yrði tekin um lækkun á lægra þrepi virðisaukaskatts í 12%. Þau matvæli sem bera vörugjöld og skattlögð eru í hærra þrepi virðisaukaskatts bera stjórnlyndri neyslustýringu vitni sem ekki verður réttlætt með skírskotun til manneldisstefnu. Með framangreindum breytingum yrðu alvarlegir agnúar sniðnir af skattkerfinu og það fært nær því sem tíðkast hjá þjóðum sem við berum okkur saman við.
11.10.2005
Útilokað að fiskvinnslan taki á sig aukinn launakostnað
„Útilokað er að fiskvinnslan taki á sig aukinn launakostnað um næstu áramót sem orsakast af þensluástandi undanfarinna mánaða, á sama tíma og þrengt er að rekstri fyrirtækjanna,” segir í ályktun aðalfundar Samtaka fiskvinnslustöðva sem haldinn var þann 7. október. Aðalfundur SF lýsti yfir furðu sinni á aðgerðum í efnahags- og peningamálum sem leitt hafi til gengishækkunar krónunnar og grafið um leið undan rekstri útflutningsfyrirtækja í landinu. Fundurinn benti á að á síðustu 12 mánuðum hafi gengi krónunnar hækkað um 15% gagnvart erlendum gjaldmiðlum og muni það að óbreyttu geta haft í för með sér 18 milljarða króna samdrátt í útflutningsverðmætum sjávarafurða á einu ári. Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja við þessar aðstæður sé óviðunandi. Sjá nánar vef SF.
10.10.2005
Flug og ESB. Samkeppnisstöðu Íslands ógnað?
ESB hefur kynnt áætlun um að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda frá flugsamgöngum og er ætlunin að fella flugsamgöngur undir tilskipun um kvóta á losun gróðurhúsalofttegunda þannig að þak verði sett á losunina. Verði þetta niðurstaðan mun kostnaður fara vaxandi fyrir farþega og farmflytjendur. Þá munu áhrifin verða mest á fjarlægari stöðum. Þetta gæti því bitnað á samkeppnisstöðu íslenskra flugrekenda. Þá vekur það spurningar hvers vegna skekkja á með þessum hætti samkeppnisstöðu flugsamgangna við aðra samgöngumáta.
9.10.2005
Barátta gegn búðaþjófnaði – fundur 11. október
Þriðjudaginn 11. október standa SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu fyrir morgunverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík þar sem kynntur verður samanburður á umfangi búðaþjófnaða á Íslandi og í 24 öðrum Evrópulöndum. Sjá nánar á vef SVÞ.
6.10.2005
Framhald kjarasamninga krefst samstarfs stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar
Stjórn Samtaka atvinnulífsins kallar eftir samstarfi við verkalýðshreyfinguna og aðkomu stjórnvalda að lausn sem geti komið í veg fyrir yfirvofandi uppsögn kjarasamninga. Stjórn SA segir í ályktun að stjórnvöld verði að horfast í augu við ábyrgð sína á vaxandi verðbólgu, metviðskiptahalla, útlánaþenslu og skuldaaukningu heimilanna í landinu. Það verði að taka á því jafnvægisleysi sem einkenni íslenskan þjóðarbúskap um þessar mundir og auka aðhald opinberra fjármála. Kaupmáttur launa landsmanna sé nú hærri en nokkru sinni fyrr og við blasi að frekari hækkanir launa en þegar hefur verið samið um að taki gildi um næstu áramót myndu valda tjóni sem íslenskt efnahagslíf þurfi síst á að halda.
6.10.2005
Útlendingaumræða á villigötum
Mikilvægt er að íslensk fyrirtæki skipti einungis við traustar starfsmannaleigur sem virði lög og kjarasamninga á Íslandi. Verkalýðshreyfingin verður hins vegar að gera sér grein fyrir því hver eru grunnatriði EES samningsins. Það er óþolandi fyrir fyrirtæki sem fara í einu og öllu að lögum og reglum að þurfa að sæta óvæginni og ósanngjarnri blaðaumfjöllunum eða jafnvel lögreglu-aðgerðum fyrir það eitt að þar starfi útlendingar.
6.10.2005
Óviðunandi metnaðarleysi stjórnvalda
Á hverju ári fá SA til umsagnar tugi lagafrumvarpa, reglugerða og tilskipana um nýjar kröfur sem atvinnulífinu ber að fara eftir. Það heyrir til algerra undantekninga ef frumvarpshöfundar, reglugerðasmiðir eða tilskipana-þýðendur reyna að meta kostnað og ávinning af hinum nýju eftirlitsreglum og kröfum sem verið er að leggja á fyrirtækin í landinu. Er það þó ótvíræð lagaskylda. Ítrekuðum athugasemdum þess efnis er yfirleitt ekkert sinnt. Metnaðarleysi stjórnvalda á þessu sviði er óviðunandi og óskandi að fyrirhuguðu átaki um „einfaldara Ísland” verði m.a. nýtt til að gera þarna nauðsynlega bragarbót.
6.10.2005
Atvinnuleyfi á 3 vikum
Miklar breytingar hafa verið gerðar á verklagi við afgreiðslu umsókna um atvinnuleyfi fyrir ríkisborgara átta nýrra aðildarríkja EES samningsins og eru nú umsóknir afgreiddar á 2–3 vikum frá því þær berast Útlendingastofnun í stað 3–4 mánaða áður. Með þessum breytingum er brugðist við gagnrýni SA en samtökin hafa ítrekað skorað á stjórnvöld að tryggja hraða og skilvirka afgreiðslu atvinnuleyfa.
6.10.2005
Starfshæfni einstaklinga á atvinnuleysisskrá
Allstór hópur fólks er skráður atvinnulaus og þiggur atvinnuleysisbætur á sama tíma og þensla er ríkjandi á vinnumarkaði og verulegur skortur á starfsfólki á mörgum sviðum. 17% þessa fólks eru foreldrar ungra barna. Nýtt úrræði vinnumiðlunarinnar er að bjóða því fólki dagvistunarpláss á góðum kjörum samhliða atvinnutilboði. Fróðlegt verður að sjá áhrif þessa úrræðis á næstu vikum og mánuðum á atvinnleysi þessa hóps.
4.10.2005
Leonardo verkefni undir stjórn Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur fengið styrk frá Leonardo Da Vinci starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins að upphæð 30 milljónir í tilraunverkefni sem ber titilinn “The Value of Work.” Verkefnið miðar að því að þróa aðferðir til að meta raunverulega færni einstaklinga í atvinnulífinu.
3.10.2005
”Meet the winners”: Ísland
30.9.2005
Stýrivaxtastefna Seðlabankans er í öngstræti
Seðlabankinn getur ekki brugðist við versnandi verðbólguhorfum og vaxandi verðbólguvæntingum með öðrum hætti en að hækka stýrivexti, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir ljóst að raungengi krónunnar sé í sögulegu hámarki og að stór hluti fyrirtækja hafi ekki rekstrargrundvöll við þessar aðstæður. Seðlabankinn sé afskaplega einn á báti í baráttunni gegn verðbólgu og stýrivaxtastefna bankans sé komin í öngstræti.
28.9.2005
Valkostir í umhverfisvottun á Íslandi
Hreinn ávinningur: Hvaða valkostir eru í boði í umhverfisvottun á Íslandi? er heitið á nýju kynningarriti þar sem er að finna yfirlit yfir þær umhverfisvottanir sem íslensk fyrirtæki hafa aðgang að og byggja á óháðri úttekt þriðja aðila. Ýmist er um að ræða vottun á vöru, þjónustu eða stjórnun, en yfirleitt eru þó ekki skörp skil þar á milli. Ritið er gefið út í tengslum við ráðstefnuna, „Hreinn ávinningur – Hvað er að græða á umhverfisstarfi fyrirtækja?” Útgefendur eru Samtök atvinnulífsins, Umhverfisfræðsluráð, Alþýðusamband Íslands og Samtök iðnaðarins. Sjá kynningarritið
28.9.2005
Endurskoða þarf eftirlitskerfið frá grunni
Það er tímabært og gríðarlega mikilvægt að endurskoða eftirlitskerfi hins opinbera og leyfisveitingar frá grunni. Í dag er þetta kerfi allt of flókið og íþyngjandi og of dýrt í framkvæmd. Þetta sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í setningarávarpi ráðstefnunnar Hreinn ávinningur, þar sem fjallað var um hvað fyrirtæki geta grætt af umhverfisstarfi. Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, sagði ráðuneytið vera markvisst að fara í gegnum eftirlitskerfi á þess vegum og að fljótlega yrðu kynntir áfangar í því starfi.
27.9.2005
Ráðstefna: Hvernig græða fyrirtæki á umhverfisstarfi?
Hreinn ávinningur – hvernig græða fyrirtæki á umhverfisstarfi? er yfirskrift ráðstefnu sem haldin verður á Grand Hótel miðvikudaginn 28. september nk., kl. 8:30-13:00. Þar munu m.a. fulltrúar fjölda fyrirtækja fjalla um umhverfisstjórnun, þýðingu umhverfisstarfs fyrir ímynd fyrirtækja, menningu og samkeppnishæfni og um fjárhagslegan ávinning fyrirtækja af umhverfisstarfi. Umhverfisráðherra flytur lokarorð. Að ráðstefnunni standa SA, SI, Umhverfisfræðsluráð og ASÍ.
26.9.2005
Leyfa á frjálsa för fólks nú þegar
Í samtali við Morgunblaðið segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins, að hann telji rétt að afnema þegar í stað takmarkanir á frjálsri för fólks frá tíu aðildarríkjum ESB. Ríkin gerðust aðilar að ESB og EES þann 1. maí 2004 og að óbreyttu rennur út frestun á frjálsri för fólks frá þessum ríkjum þann 1. maí 2006. „Í ljósi aðstæðna sem nú blasa við, að ekkert er í spilunum um að spennuástand í samfélaginu breytist fram til 1. maí 2006 þegar frestuninni lýkur, sé ég engin efnisleg rök sem mæla með því að frestuninni sé við haldið,“ segir Ari.
21.9.2005
Stækkun ESB: Lítil áhrif á norrænan vinnumarkað
Þegar tíu ný ríki gerðust aðilar að ESB og EES 1. maí 2004 tóku flest fyrri aðildarríki upp tímabundnar takmarkanir á frjálsri för fólks frá flestum nýju aðildarríkjanna. Hér á Íslandi hafa gilt mun strangari reglur en í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, sem setti engar takmarkanir. Ný skýrsla norrænu ráðherranefndarinnar sýnir að nýir EES-borgarar hafa komið til allra Norðurlandanna vegna atvinnu, langmest til Noregs, og alls staðar haft jákvæð áhrif á vinnumarkað og efnahagslíf. Strangar reglur hafa m.a. aukið eftirspurn eftir þjónustusamningum við fyrirtæki í nýju aðildarríkjunum.
19.9.2005
Verðbólgan minnst hérlendis innan EES
Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum hækkaði um 0,3% frá júlí til ágúst sl. Á sama tíma lækkaði vísitalan fyrir Ísland um 0,2% frá fyrra mánuði. Frá ágúst 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,2% að meðaltali í ríkjum EES. Lægst var hún á Íslandi, 0,4%, en 1,0% í Svíþjóð og Finnlandi. Mest mældist verðbólgan í Lettlandi, 6,3% og í Lúxemborg, 4,3%. Sjá nánar á vef Hagstofunnar.
19.9.2005
Jafnréttisviðurkenning 2005 - tilnefninga óskað
Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2005. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilgangurinn er að verðlauna fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis kvenna og karla og hvetja um leið til frekari dáða. Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 25. september nk. Sjá nánar á vefsíðu Jafnréttisráðs.
16.9.2005
Evrópsk vinnuverndarvika 24. til 28. október
Evrópsk vinnuverndarvika verður haldin dagana 24. til 28. október nk. og fjallar að þessu sinni um hávaða á vinnustöðum. Markmiðið er að vekja athygli á skaðlegum áhrifum hávaða á vinnustöðum í þeim tilgangi að gera vinnustaðina heilsusamlegri og öruggari. Leitað er eftir dæmum af vinnustöðum sem hafa náð góðum árangri í að draga úr eða koma í veg fyrir hávaða og verða viðurkenningar veittar vinnustöðum, sem þykja skara fram úr á þessu sviði. Sjá nánar á vef Vinnueftirlitsins.
14.9.2005
1,8% atvinnuleysi í ágúst
Í ágústmánuði sl. voru skráðir 65.550 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.851 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 1,8% atvinnuleysi. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,0% í júlí sl. og 2,9% í ágúst 2004. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að atvinnuleysi minnki enn í september og geti farið niður í allt að 1,6%, eða lægsta hlutfall á þessum árstíma síðan á árunum 1999 til 2001. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
12.9.2005
Námskeið um ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlana
Staðlaráð Íslands stendur fyrir námskeiði um ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlana, fimmtudaginn 22. september. Yfirskrift þess er Lykilatriði, uppbygging og notkun og er það ætlað þeim sem vilja læra á ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlanna. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000:2000 röðinni og þekki hvernig þeim er beitt við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi. Sjá nánar á vef Staðlaráðs Íslands þar sem einnig er hægt að skrá sig.
12.9.2005
Breytt útlit á sa.is
Vefur Samtaka atvinnulífsins hefur tekið nokkrum breytingum. Einkum er um að ræða útlitsbreytingar þótt byggt sé á gömlum grunni. Notendur vefsins eiga því ekki að verða í vandræðum með að finna sínar síður og þá eiga allir hlekkir (linkar) af eldri vefnum að haldast. Auk útlitsbreytinga má nefna möguleikana á að stækka og minnka letur (valstika ofarlega til vinstri) og innan tíðar verður jafnframt hægt að nálgast eldri fréttir eftir málefnaflokkum.
9.9.2005
Nýjar reglur um hávaða á vinnustöðum
Hjá Vinnueftirliti ríkisins er nú í undirbúningi ný reglugerð sem koma á í stað reglna um hávaðavarnir á vinnustöðum og heyrnareftirlit starfsmanna (nr. 500/1994). Reglurnar byggja á tilskipun Evrópusambandsins nr. 2003/10/EB. Fjallað er um viðmiðunarmörk fyrir hávaða á vinnustöðum, áhættumat, forvarnir, heyrnarhlífar, heyrnarmælingar, upplýsingar og þjálfun starfsmanna. Þeir sem óska eftir að kynna sér málið nánar eða koma á framfæri ábendingum eða athugasemdum geta haft samband við Pétur Reimarsson hjá SA.
8.9.2005
Uppskriftin að velgengni Norðurlanda á heimsvísu birt
Samtök atvinnurekenda á Norðurlöndum hafa búið til sameiginlega uppskrift að því hvernig Norðurlöndin geti tryggt áframhaldandi velgengni sína á heimsvísu. Uppskriftin er birt í skýrslunni The Nordic recipe for global success. Skýrslan fjallar um það hvernig Norðurlöndin geti brugðist við sífellt harðnandi alþjóðlegri samkeppni og í henni kemur fram að Norðurlandaþjóðirnar verði að sækja í sig veðrið, með því að bæta starfsumhverfi atvinnulífsins og efla menntun fólks enn frekar, ef takast eigi að tryggja velferð þjóðanna til framtíðar.
7.9.2005
Áhugi á ráðningum eldra fólks engin nýjung
7.9.2005
Aukið fjármagn til nýsköpunar
Samtök atvinnulífsins fagna þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að ráðstafa 2,5 milljörðum króna af söluandvirði Símans til þess að efla Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins. SA hafa lengi lagt áherslu á mikilvægi þess að efla nýsköpunarstarf í íslensku atvinnulífi en dæmin sýna að það fé sem lagt er til rannsókna og nýsköpunar fyrirtækja skilar sér oft margfalt til baka á örfáum árum í verðmætasköpun, nýjum störfum og þar með sköttum og gjöldum til þjóðfélagsins. Sjá umfjöllun um rannsóknir og nýsköpun í Áherslum atvinnulífsins sem gefnar voru út í maí sl.
1.9.2005
Samkeppnisstaða fyrirtækja aldrei verið verri
Raungengi krónunnar á mælikvarða verðlags er um þessar mundir hærra en nokkru sinni og er samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja verri en hún hefur verið frá upphafi þessara mælinga. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-framkvæmdastjóri SA, segir í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi að því fari fjarri að hagkerfið geti staðið undir núverandi gengi krónunnar. Gríðarlegur viðskiptahalli beri því órækt vitni. Hagnaður atvinnulífsins í heild hafi farið minnkandi samhliða hækkandi raungengi. Vissulega finnist ánægjulegar undantekningar í Kauphöllinni, en sá hagnaður eigi að stórum hluta rætur að rekja til starfsemi erlendis.
1.9.2005
Þjónustugjöld hins opinbera
Sífellt fjölgar lagabálkum þar sem opinberum aðilum er veitt heimild til innheimtu þjónustugjalda og eru slíkar heimildir nú líklega um 100 talsins. Oft virðast engar takmarkanir á þeim kostnaði sem unnt er að velta út í gjaldskrár þeirra og jafnvel ekkert aðhald með því að hagkvæmni og sparnaðar sé gætt. Það er löngu tímabært að settar séu reglur um álagningu og innheimtu þjónustugjalda opinberra aðila ásamt því að rökstuðningur fylgi gjaldskrám þeirra. Eðlilegast væri að láta aðila á markaði veita þjónustuna, sem opinberir aðilar hafa nú á sinni könnu, í meirihluta tilvika.
1.9.2005
Óraunhæf neysluviðmið og ákvörðun bóta
Hugmyndir um upptöku opinberra neysluviðmiða við ákvörðun bótafjárhæða hafa verið í umræðunni á Íslandi um nokkurt skeið, m.a. á Alþingi og hjá stjórnvöldum. Hugmyndirnar ganga út á að flytja ábyrgðina á ákvörðun bóta yfir á „vísindalegar“ mælingar á neyslu fólks og miða síður að því að tryggja ákveðin lífsgæði. Í Svíþjóð hefur verið gengið einna lengst í að tengja bætur við neyslu, en hugmyndirnar sem hér hafa verið til umræðu ganga mun lengra.
31.8.2005
Vika símenntunar 2005
Vika símenntunar verður haldin á höfuðborgarsvæðinu dagana 25.-30. september nk., en símenntunarmiðstöðvarnar um landið ákvarða hvenær hún verður haldin á hverju svæði fyrir sig. Vikunni er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um að menntun er æviverk og að alltaf er hægt að bæta við sig þekkingu. Menntamálaráðuneytið stendur fyrir vikunni og eru fyrirtæki hvött til að tileinka fimmtudaginn 29. september fræðslumálum starfsmanna. Sjá nánar á vef Menntar.
30.8.2005
Fundur umhverfishóps SA 14. september kl. 8:30
Næsti fundur umhverfishóps SA verður í Borgartúni 35 miðvikudaginn 14. september nk., kl. 8:30 – 10:00. Þar mun Sigrún Pálsdóttir frá Íslenska járnblendifélaginu
29.8.2005
Guðrún Björk Bjarnadóttir til SA
Guðrún Björk Bjarnadóttir héraðsdómslögmaður hefur hafið störf á vinnumarkaðssviði Samtaka atvinnulífsins. Guðrún Björk er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og er með LL.M gráðu í Evrópurétti frá Stokkhólmsháskóla. Áður starfaði Guðrún sem lögmaður á LOGOS lögmannsþjónustu auk þess sem hún hefur verið stundakennari í félagarétti við bæði Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
29.8.2005
Jafnréttisviðurkenning 2005 - tilnefninga óskað
Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2005. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilgangurinn er að verðlauna fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis kvenna og karla og hvetja um leið til frekari dáða. Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 25. september nk. Sjá nánar á vefsíðu Jafnréttisráðs.
24.8.2005
Ráðstefna um rafræn viðskipti
24.8.2005
Alþjóðlegur fundur um eignarrétt og framtíðina
Fimmtudaginn 25. ágúst kl. 9:30 á Hótel Nordica Reykjavík stendur RSE, rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál, fyrir alþjóðlegum fundi um eignarrétt og framtíðina. Meðal þátttakenda eru einstaklingar sem eru leiðandi í umræðu um gildi eignarréttar og frjálsra viðskipta. Meðal þess sem verður t.d. fjallað um er spurningin um eignarrétt yfir náttúruauðlindum, hvort þær teljist til einkaeignar eða ríkiseignar. Fundarstjóri er Guðrún Gauksdóttir, Háskólanum í Reykjavík en um stjórn pallborðsumræðna sér Orri Hauksson, Símanum hf. Fundurinn fer fram á ensku og er opinn almenningi. Sjá nánar vef RSE.
22.8.2005
Danir leita fyrirmynda í íslensku viðskiptalífi
Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í Danmörku (Dansk Industri), verður horft til þeirra þjóða sem njóta velgengni á sviði viðskipta og efnahagsmála. Yfirskrift fundarins er: Meet the Winners en Dönum er hugleikið að finna leiðir til að bæta árangur sinn á sem flestum sviðum þjóðfélagsins til að koma Danmörku í fremstu röð þjóða á tímum þegar alþjóðleg samkeppni fer sífellt vaxandi. Að mati frænda okkar eru Íslendingar í hópi þeirra sem mestum árangri hafa náð og er fjallað sérstaklega um árangur Íslands á fundinum.
19.8.2005
Verðbólgan minnst hérlendis innan EES
Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum lækkaði um 0,1% frá júní til júlí sl. Á sama tíma lækkaði vísitalan fyrir Ísland um 0,2% frá fyrra mánuði. Frá júlí 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,1% að meðaltali í ríkjum EES. Lægst var hún á Íslandi, 0,5%, 0,7% í Svíþjóð og 0,9% í Finnlandi. Mest mældist verðbólgan í Lettlandi, 6,3% og í Lúxemborg, 4,0%. Sjá nánar á vef Hagstofunnar.
19.8.2005
Neyslan vex mun meira hérlendis en í ESB
Átta sinnum meiri vöxtur varð í veltu dagvöruverslunar á Íslandi en að meðaltali í ESB löndunum frá maí 2004 til maí 2005. Vöxturinn hér var 13% á föstu verðlagi en 1,6% í ESB löndunum. Þannig hafa Íslendingar aukið neyslu í mat og drykk margfalt meira en íbúar ESB landanna á síðustu mánuðum. Þessar upplýsingar koma fram þegar bornar eru saman upplýsingar Rannsóknaseturs verslunarinnar og Eurostat sem birtir sambærilegar tölur fyrir aðildarlönd ESB. Sjá nánar á vef SVÞ.
17.8.2005
Útvíkkun á starfsemi Íbúðalánasjóðs ólögmæt og stangast á við reglur EES
Í nýrri álitsgerð um heimildir Íbúðalánasjóðs til lánveitinga, fjármögnunar og áhættustýringar, setur Jóhannes Sigurðsson, prófessor við Rannsóknarstofnun HR í fjármálarétti, fram veigamiklar röksemdir fyrir því að útvíkkun á starfsemi Íbúðalánasjóðs rúmist ekki innan þeirra lagaheimilda sem um starfsemina gilda og sé auk þess ósamrýmanleg skuldbindingum Íslands samkvæmt EES-samningnum. Jóhannes telur að með lánveitingunum Íbúðalánasjóðs til fjármálafyrirtækja sé farið með ólögmætum hætti í kringum lagaheimildir sjóðsins til íbúðalána og reglur um áhættustýringu.
14.8.2005
2% atvinnuleysi í júlí
Í júlí sl. voru skráðir rúmlega 65.800 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.135 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,0% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,1% í júní sl. en 3,0% í júlí 2004. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
11.8.2005
Ráðstefna: Hvernig græða fyrirtæki á umhverfisstarfi?
Hreinn ávinningur – hvernig græða fyrirtæki á umhverfisstarfi? er yfirskrift ráðstefnu sem haldin verður á Grand Hótel miðvikudaginn 28. september nk., kl. 8:30-13:00. Þar munu m.a. fulltrúar fjölda fyrirtækja fjalla um umhverfisstjórnun, þýðingu umhverfisstarfs fyrir ímynd fyrirtækja, menningu og samkeppnishæfni og um fjárhagslegan ávinning fyrirtækja af umhverfisstarfi. Dagskrá ráðstefnunnar verður kynnt innan tíðar en að henni standa SA, SI, Umhverfisfræðsluráð og ASÍ.
10.8.2005
Umbætur í stærstu ríkjum ESB?
Nýr forsætisráðherra Frakklands hefur auðveldað smærri fyrirtækjum að segja upp starfsfólki og hraðað einkavæðingu. Kristilegir demókratar boða breytingar í svipaða átt í Þýskalandi hafi þeir sigur í væntanlegum þingkosningum, og leiðtogi jafnaðarmanna þar í landi hefur barist fyrir svipuðum umbótum. Ýmislegt bendir því til þess að leiðtogar þessara forysturíkja muni á næstu misserum auka sveigjanleika á vinnumarkaði og frelsi í atvinnulífinu, í þeim tilgangi að auka hagvöxt og draga úr atvinnuleysi.
7.8.2005
Skattalækkanir skoðist m.a. út frá stöðu á vinnumarkaði
Í samtali við Fréttablaðið segir
6.8.2005
Vaxtabótakerfið engin heilög kýr
„Ég held að það hljóti að koma til álita að endurskoða þetta kerfi [vaxtabótakerfið]. Það má ekki vera nein heilög kýr,“ segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA í samtali við Morgun-blaðið. „Fólk er hvatt til þess að skulda sem mest. Ég held að það sé nú kannski ekki það sem við þurfum á Íslandi,“ segir Ari m.a. en undirstrikar að SA séu ekki með þessu að leggja til að horfið sé frá stuðningi við þá sem höllustum fæti standa á íbúðamarkaði.
4.8.2005
Dagur samkeppnishæfni 20. október í Brussel
4.8.2005
Lagafrumvarp um efni og efnavöru: ábendingar berist SA
SA hafa borist til umsagnar drög að frumvarpi til laga um efni og efnavöru, sem unnið var af nefnd opinberra starfsmanna. Þar er m.a. að finna fjölmargar nýjungar um efnavöru-skráningu, leyfi til markaðssetningar nýrra efna, ítarlegar kröfur um upplýsingaskyldu auk viðamikilla krafna um eftirlit, leyfisveitingar, gjaldtöku og fleira. SA hafa frest til 20. ágúst til að skila inn athugasemdum við frumvarpið og þeir sem vilja kynna sér frumvarpið og
4.8.2005
Japan í september, Pólland í október
Útflutningsráð skipuleggur viðskiptasendinefnd til Japans dagana 12.-19. september nk. og fer Davíð Oddsson utan-ríkisráðherra fyrir sendinefndinni. Þá fer Valgerður Sverris-dóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra fyrir viðskiptasendinefnd sem fyrirhuguð er til Póllands í október. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.
14.7.2005
Orlofsuppbót 2005
Orlofsuppbót fyrir orlofsárið sem hefst 1. maí 2005 er kr. 21.800 miðað við fullt starf fyrir flestar starfsgreinar nema verslunarmenn. Orlofsuppbót verslunarmanna er kr. 16.500. Greiða á upphæðina út í upphafi orlofstöku en í síðasta lagi 15. ágúst.
13.7.2005
Af Kyoto-markmiðum og G8 fundinum í Gleneagles
Af þeim vestrænum ríkjum sem hafa staðfest Kyoto-bókunina hefur aðeins fáum þegar tekist að ná markmiðum um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda. Ísland er þeirra á meðal, en dregið hefur úr losun lofttegundanna á Íslandi frá árinu 1990. Á árinu 2003 jókst útblástur gróðurhúsa- lofttegunda hlutfallslega meira í Evrópusambandinu en í Bandaríkjunum. Í síðustu viku samþykktu stjórnendur átta helstu iðnríkja heims tímamótaályktun um loftslagsmál og losun gróðurhúslofttegunda til að draga úr losuninni til framtíðar.
12.7.2005
Íbúðalánasjóður misskilur gagnrýni SA
8.7.2005
Ómálefnaleg viðbrögð starfsmanna Íbúðalánasjóðs
Viðbrögð starfsmanna Íbúðalánasjóðs við greiningu SA á vanda sjóðsins hafa einkennst af skætingi. Niðurstöður SA byggja á varfærnum forsendum sem skýrt koma fram í greinargerð samtakanna og það hefur engin efnisleg gagnrýni komið fram á þær. Það hlýtur að ganga í berhögg við einkavæðingarstefnu stjórnvalda að nú virðist kominn á sviðið nýr ríkisbanki sem aflar fjár með útboðum og endurlánar til fyrirtækja með ríkisábyrgð, í skjóli langsóttra röksemda um áhættustýringu.
7.7.2005
Opinber fjármálastjórn og fækkun starfa í atvinnulífinu
Störfum fækkar í gengisháðum greinum í alþjóðlegri samkeppni og miklu meira aðhald opinberra fjármála er nauðsynlegt til að sporna gegn þeirri öfugþróun sem hátt gengi krónunnar hefur í för með sér, segir
7.7.2005
Eigið fé Íbúðalánasjóðs tapað á einu ári vegna uppgreiðslna?
Ætla má að tap Íbúðalánasjóðs vegna uppgreiðslna eldri lána geti numið allt að 15 milljörðum króna frá því um mitt síðasta ár. Það er ríflega tveimur milljörðum meira en allt eigið fé sjóðsins var í árslok 2004. SA áætla að uppgreiðslur eldri lána Íbúðalánasjóðs síðasta árið hafi verið um 140 milljarðar króna og vaxtamunur sjóðsins vegna eldri lána verði neikvæður. Til að bregðast við vandanum hefur Íbúðalánasjóður m.a. lánað fjármálafyrirtækjum yfir 80 milljarða króna með ríkisábyrgð, sem efast má um að samræmist tilgangi hans. Þá virðist einsýnt að sjóðurinn tapi á þeim viðskiptum.
7.7.2005
Þúsundir starfa horfin í sjávarútvegi og iðnaði
Hátt gengi krónunnar undanfarin ár hefur stuðlað að verulegri fækkun starfa í iðnaði og sjávarútvegi – um rúm 4.000 frá árinu 1998 - og enn sér ekki fyrir endann á þeirri þróun. Öflugur útflutningsgeiri og kraftmikil samkeppni við innfluttar vörur og þjónustu er hins vegar forsenda jafnvægis í utanríkisviðskiptum og áframhaldandi hagvaxtar. Hátt kostnaðarstig er því mikið áhyggjuefni.
5.7.2005
Lagafrumvarp um efni og efnavöru: ábendingar berist SA
SA hafa borist til umsagnar drög að frumvarpi til laga um efni og efnavöru, sem unnið var af nefnd opinberra starfsmanna. Þar er m.a. að finna fjölmargar nýjungar um efnavöru-skráningu, leyfi til markaðssetningar nýrra efna, ítarlegar kröfur um upplýsingaskyldu auk viðamikilla krafna um eftirlit, leyfisveitingar, gjaldtöku og fleira. SA hafa frest til 20. ágúst til að skila inn athugasemdum við frumvarpið og þeir sem vilja kynna sér frumvarpið og
5.7.2005
SA gera kannanir með fjármálaráðuneyti og Seðlabanka
Samkomulag hefur orðið um að SA gangi til samstarfs við fjármálaráðuneytið og Seðlabanka Íslands um gerð kannana meðal fyrirtækja á horfum í rekstri og efnahagsmálum, sem IMG Gallup framkvæmir. Samhliða munu SA láta af gerð eigin kannana meðal aðildarfyrirtækja sinna, sem hafa verið um margt sambærilegar.
1.7.2005
Japan í september, Pólland í október
Útflutningsráð skipuleggur viðskiptasendinefnd til Japans dagana 12.-19. september nk. og fer Davíð Oddsson utan-ríkisráðherra fyrir sendinefndinni. Þá fer Valgerður Sverris-dóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra fyrir viðskiptasendinefnd sem fyrirhuguð er til Póllands í október. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.
29.6.2005
Nýr forseti UNICE
Frá og með 1. júlí tekur Ernst-Antoine Seillère við
29.6.2005
Varað við svikastarfsemi
SVÞ minna nú á að á sumrin lifnar yfir svikastarfsemi sem beinist að því að svíkja út fé af fyrirtækjum, þar sem reynt er að villa um fyrir sumarafleysingafólki. Einkum vara SVÞ við skráningarfyrirtækinu European City Guide í þessu sambandi. SA vöruðu nýlega við sambærilegri starfsemi sem kennd er við Nordisk Industri.
28.6.2005
Sveigjanleiki í starfi eykur hagkvæmni og starfsánægju
Með endurskoðun hefðbundinna vaktakerfa geta fyrirtæki og stofnanir sparað sér fjármuni og skapað svigrúm fyrir hærri launum starfsmanna, en jafnframt aukið starfsánægju og bætt vinnuanda. Með aðstoð hugbúnaðar er vinnutími skipulagður á nýjan hátt, og í stað þess að starfsmenn aðlagi einkalíf að vinnu þá ráða þeir vinnutíma sínum að miklu leyti sjálfir og aðlaga vinnutíma sinn að einkalífinu. Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel hjá Neyðarlínunni, en þar var hefðbundið vaktakerfi lagt niður árið 2003. Neyðarlínan sinnir neyðarsímaþjónustu fyrir landið allt og starfar allan sólarhringinn.
27.6.2005
Dagur samkeppnishæfni 20. október í Brussel
Fimmtudaginn 20. október munu UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, standa fyrir degi samkeppnishæfni í Brussel. Meðal þátttakenda í dagskránni má nefna stjórnendur og stjórnarmenn frá fyrirtækjum á borð við Microsoft, Siemens, Fiat og Tesco, forseta framkvæmdastjórnar ESB, forseta Evrópuþingsins o.fl. Fyrirtækjastjórnendur alls staðar að úr Evrópu eru hvattir til að mæta.
23.6.2005
Svíþjóð: Enginn kynbundinn launamunur
Ekkert styður fullyrðingar um að konum sé mismunað í launum, samkvæmt rannsókn sem sænsku samtök atvinnu-lífsins, hafa unnið úr gögnum um launagreiðslur aðildar-fyrirtækja sinna. Munur á reglulegum launum karla og kvenna skýrist að mestu af menntun, starfsvali, aldri og tegund fyrirtækis.
22.6.2005
Hagstjórn þarf gegn þenslu
Nær allir sem tjá sig um efnahagsmál hvetja til þess að fjármálum hins opinbera verði beitt með virkari hætti gegn þenslu. Fjárfestingaráform hins opinbera eru mjög mikil fyrir árið í ár og næsta ár og mikilvægt að dregið verði úr þeim. Hlutfallslega vex samneyslan mun hraðar hjá sveitarfélögum en hjá ríkisvaldinu, en stór verkefni hafa á undanförnum árum verið færð frá ríki til sveitarfélaga. Það er slæmt frá sjónarhorni hagstjórnar því sveitarfélögin axla enga hagstjórnarábyrgð.
21.6.2005
Störfum fjölgar á ný
Fjöldi starfandi manna var 157.520 árið 2004, samkvæmt staðgreiðsluskrá Hagstofu Íslands, og fjölgaði um 1.840 frá árinu áður, eða sem nam 1,2%. Þetta er töluverður viðsnúningur frá síðustu árum en störfum fækkaði bæði árin 2002 og 2003, eða um 0,2% hvort árið. Störfum fjölgaði mest í byggingariðnaði, um 960 störf, en þar á eftir kom opinber stjórnsýsla þar sem fjölgaði um 380 störf og heilbrigðis- og félagsþjónusta þar sem fjölgaði um 300 störf.
20.6.2005
Verðbólgan næst minnst hérlendis innan EES
Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum hækkaði um 0,2% frá apríl til maí sl. Á sama tíma lækkaði vísitalan fyrir Ísland um 0,3% frá fyrra mánuði. Frá maí 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 1,9% að meðaltali í ríkjum EES en 0,5%, eða næst lægst, á Íslandi. Minnst var verðbólgan í Svíþjóð, 0,2%, en mest í Lettlandi, 6,5%. Sjá nánar á vef Hagstofunnar.
20.6.2005
ESB-tilskipun um leysiefni: Ísland fær viðbótar frest
Ísland hefur fengið samþykktan þriggja ára viðbótar aðlögunarfrest til að uppfylla tiltekin ákvæði tilskipunar ESB um takmörkun á lífrænum leysiefnum í málningu, lakki o.fl., líkt og SA og SI fóru fram á í athugasemdum sínum til utanríkis-ráðuneytisins. Ráðuneytið hefur komið á fót samráðshóp með SA o.fl. til að greina hagsmuni íslensks atvinnulífs við upptöku gerða í EES-samninginn. Sjá nánar í Stiklum, vefriti viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins (18. tbl. 2005).
16.6.2005
Dagur samkeppnishæfni 20. október í Brussel
Fimmtudaginn 20. október munu UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, standa fyrir degi samkeppnishæfni í Brussel. Meðal þátttakenda í dagskránni má nefna stjórnendur og stjórnarmenn frá fyrirtækjum á borð við Microsoft, Siemens, Fiat og Tesco, forseta framkvæmdastjórnar ESB, forseta Evrópuþingsins o.fl. Fyrirtækjastjórnendur alls staðar að úr Evrópu eru hvattir til að mæta.
15.6.2005
Breyta verður Íbúðalánasjóði sem fyrst
Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins telur mikilvægt að starfsemi Íbúðalánasjóðs verði breytt sem fyrst til að tryggja fjármálastöðugleika og að bönkunum verði gert kleift að starfa áfram á húsnæðislánamarkaði. Jafnframt verði stjórnvöld að beita auknu aðhaldi í ríkisfjármálunum til að bregðast við hagsveiflum. Nefndin hefur kynnt sér stöðu efnahagsmála hér á landi og rætt bæði við stjórnvöld og fulltrúa atvinnulífsins.
14.6.2005
2,2% atvinnuleysi í maí
Í maí sl. voru skráðir rúmlega 73.300 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.332 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,2% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,3% í apríl sl. en 3,3% í maí 2004. Atvinnuleysi í maímánuði hefur ekki mælst jafn lítið síðan í maí 2001 en þá mældist það 1,6%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
13.6.2005
ESB-ríkin þurfa aukinn hagvöxt og fleiri störf
Formannafundur aðildarsamtaka UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins, leggur á það áherslu í yfirlýsingu sinni að það sem ESB-ríkin skorti umfram allt sé aukinn hagvöxtur og fleiri störf. Hagvöxtur sé ófullnægjandi í flestum aðildarríkjunum og atvinnuleysi mikið og brýnustu verkefnin snúi því ekki að stjórnarskrársáttmála heldur að auknum hagvexti, auknum sveigjanleika á vinnumarkaði, frelsi í þjónustuviðskiptum o.fl.
10.6.2005
Viðskiptasendinefnd til Japans í september
Davíð Oddsson utanríkisráðherra fer fyrir viðskiptasendinefnd til Japans sem nú er í undirbúningi og er ráðgerð dagana 12.-19. september. M.a. verða skipulögð viðskiptaráðstefna, sýning og fyrirtækjastefnumót. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem allra fyrst. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.
2.6.2005
Markaðurinn er kynblindur
Það væri óneitanlega gaman ef jafnréttissinnar krefðust einkavæðingar á þeirri þjónustustarfsemi sem stórar „kvennastéttir“ koma að hjá hinu opinbera og hvettu konur til að stofna fyrirtæki til að taka að sér þessa þjónustu og til að leita jafnréttis á eigin forsendum eftir farvegum markaðarins, segir
2.6.2005
Ekkert eftirlit með gjaldskrám sveitarfélaga
Mjög mismunandi er milli sveitarfélaga hversu há gjöld eru innheimt af fyrirtækjum vegna eftirlits með starfsemi þeirra. Almennt er mörg hundruð prósenta munur á hæsta og lægsta gjaldi og dæmi er um að mismunurinn hlaupi á hundruðum þúsunda. Stórlega er dregið í efa að hæstu gjöldin séu í samræmi við kostnað af eftirliti og geta sveitarfélög þanið eftirlitið út að eigin geðþótta – án eftirlits – og sent atvinnulífinu í landinu reikninginn. Sveitarfélög stunda jafnframt mörg hver umfangsmikinn atvinnurekstur og sjá um að hafa eftirlit með eigin starfsemi, sem er ólíðandi.
2.6.2005
Ekki erfiðara fyrir eldra fólk að fá vinnu
Ívið meiri líkur eru á því að fólk á aldrinum 50-59 ára fái vinnu í kjölfar atvinnuviðtals, en fólk á aldrinum 25-49 ára, skv. rannsókn dönsku vinnumálastofnunarinnar. Eldra fólkið er sagt búa yfir sveigjanleika, hreyfanleika og stöðugleika í starfi. Þessar niðurstöður koma vel heim og saman við tæp-lega árs gamla könnun SA.
31.5.2005
Ísland í fremstu röð á sviði jafnréttismála
Í nýjasta hefti vikuritsins Economist er birt fróðlegt yfirlit yfir árangur þjóða á sviði jafnréttismála. Yfirlitið byggir á úttekt Alþjóða efnahagsstofnunarinnar (World Economic Forum - WEF) en samkvæmt henni er Ísland í þriðja sæti af 58 löndum sem skoðuð voru, þar sem jafnrétti kynjanna er mest.
31.5.2005
UNICE harma höfnun Frakka
UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, harma höfnun Frakka á nýrri stjórnarskrá Evrópusambandsins og telja að hið franska nei muni hafa neikvæð áhrif í álfunni. UNICE eru fylgjandi gildistöku hinnar nýju stjórnarskrár og telja hana vera nytsamlegt plagg, þar sem hún sé nauðsynlegur grunnur fyrir gegnsæja, lýðræðislega og skilvirka stjórnsýslu – eitthvað sem Evrópusambandið vanti sárlega.
30.5.2005
Myndskeið af aðalfundi á vef SA
Á aðalfundi SA 3. maí sl. voru sýnd myndskeið um árangur atvinnulífsins, árangur stjórnvalda og framtíðarsýnina, undir yfirskriftinni Áfram í úrvalsdeild? Góður rómur var gerður að efni myndskeiðanna þar sem m.a. er rætt við 20 manns, stjórnendur og athafnafólk um stöðu og horfur. Athygli er vakin á því að hægt er að nálgast þessi myndskeið á vef SA.
27.5.2005
Basel II: hærri vextir og aukinn kostnaður fyrirtækja?
Skiptar skoðanir voru um áhrif gildistöku Basel II reglu-verksins á ráðstefnu sem haldin var um fyrirbærið á vegum Sambands íslenskra sparisjóða og SA, en það tekur gildi árið 2007. Fjármálafyrirtæki munu þurfa að meta viðskiptavini sína mun betur og fyrirtæki þurfi að gefa þeim mun ítarlegri upplýsingar. Kostnaður af innleiðingu Basel II er ekki ljós en kjör sumra fyrirtækja gætu batnað á meðan kjör annarra gætu versnað. Þolinmæði fjármálafyrirtækja gagnvart vanskilum mun minnka og innheimta verður hert.
25.5.2005
Endurskoðun niðurgreiðslu vaxta
OECD hvetur ríkisstjórnina til þess að stefna að meiri afgangi af fjárlögum en nú sé stefnt að. Bæta þurfi hagstjórnar-blönduna og draga úr þörf fyrir vaxtahækkanir. Sérstaklega er nefnt að lækka ætti vaxtabætur til að slá á þensluna á fasteignamarkaðnum. Í ljósi lægri vaxta, lengri lánstíma og lægri greiðslubyrði lántakenda, auk þess jafnvægisleysis og verðbólgu sem spennan á fasteignamarkaðnum hefur skapað, er fullt tilefni til að endurskoða vaxtabótakerfið.
23.5.2005
Viðskiptasendinefnd til Japans í september
Davíð Oddsson utanríkisráðherra fer fyrir viðskiptasendinefnd til Japans sem nú er í undirbúningi og er ráðgerð dagana 12.-19. september. M.a. verða skipulögð viðskiptaráðstefna, sýning og fyrirtækjastefnumót. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem allra fyrst. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.
23.5.2005
Ráðstefna um Basel II og áhrif á fyrirtækin 25. maí
Miðvikudaginn 25. maí stendur Samband íslenskra sparisjóða, í samstarfi við SA, fyrir ráðstefnu á Grand Hótel Reykjavík um nýjar eiginfjárreglur lánastofnana, sem munu hafa mikil áhrif á samskipti lánastofnana við lítil og meðalstór fyrirtæki á EES. Markmið ráðstefnunnar er að búa stjórnendur íslenskra fyrirtækja undir þann veruleika sem skapast með gildistöku tilskipunarinnar árið 2006. Ráðstefnan er fjármögnuð af framkvæmdastjórn ESB. Sjá nánar
19.5.2005
Fimmtíu milljarðar í boði á fimm árum
Íslenskum fyrirtækjum stendur til boða, með samstarfi við aðila í þrettán löndum á EES svæðinu, að fjármagna verkefni í þessum löndum með fé úr nýjum þróunarsjóði EFTA. Um sex hundruð milljónum evra verður úthlutað úr sjóðnum á næstu fimm árum, eða um 50 milljörðum íslenskra króna. Sjóðurinn tók til starfa í kjölfar stækkunar ESB og EES og eiga verkefni í nýju aðildarríkjum ESB auk Spánar, Portúgals og Grikklands rétt á styrkjum úr sjóðnum.
17.5.2005
Þróunarsjóður EFTA - kynning miðvikudag
Utanríksráðuneytið, Útflutningsráð og Euro Info skrifstofan boða til morgunverðarfundar kl. 8:15 miðvikudaginn 18. maí á Grand Hótel Reykjavík til að kynna tækifæri til þátttöku í verkefnum styrktum af þróunarsjóði EFTA. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.
17.5.2005
2.3% atvinnuleysi í apríl
Í apríl sl. voru skráðir rúmlega 74.200 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.542 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,3% atvinnuleysi af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,6% í mars sl. og 3,5% í apríl 2004. Atvinnuleysi í apríl hefur ekki mælst jafn lítið síðan í apríl 2001 en þá mældist það 1,6%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
12.5.2005
Vilji forsætisráðherra að lágmarka opinbert eftirlit
Í ræðu sinni á aðalfundi SA tók forsætisráðherra undir sjónar-mið SA um eftirlit með atvinnustarfsemi og tillögur til úrbóta. Þetta er fagnaðarefni, enda er aukin hagkvæmni á þessu sviði gríðarlegt hagsmunamál fyrir atvinnulífið, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann nefnir sem dæmi að í dag þarf gjarnan fimm leyfi til að reka eitt veitingahús og segir blasa við að eitt leyfi hljóti að nægja.
12.5.2005
Ríki og sveitarfélög borgi reikningana sína!
Ríki og sveitarfélög á Íslandi greiða ekki reikninga á tilsettum tíma og neita að borga dráttarvexti. Forstjóri Tæknivals, Sigrún Guðjónsdóttir, sagði þetta landi og þjóð til skammar á aðalfundi SA. Könnun SA frá 2003 sýndi fram á verulega greiðslutregðu opinberra aðila en vandamálið virðist enn vera til staðar.
12.5.2005
Vinnutími á Íslandi hefur styst
Vinnutími hérlendis hefur styst verulega undanfarin ár samkvæmt gögnum Hagstofunnar. Á almennum vinnumarkaði hefur meðalvinnutími karla styst um rúmar tvær klst frá 1998 en meðalvinnutími kvenna um rúma klukkustund. Litlu munar nú á vinnutíma fullvinnandi karla og kvenna á almennum vinnumarkaði.
12.5.2005
Laun kvenna hækkað meira en karla
Samkvæmt launakönnun Hagstofunnar hafa laun kvenna hækkað jafnt og þétt umfram laun karla frá árinu 1997, alls um 58% á móti 48% hækkun hjá körlum. Þessa þróun má að hluta rekja til áherslna í kjarasamningum, svo sem sérstakra hækkana almennra launataxta.
12.5.2005
Tekjumunur kynjanna hefur minnkað
Launakönnun Hagstofunnar sýnir að tekjumunur kynjanna hefur minnkað á undanförnum árum. Hlutfall heildarlauna kvenna af heildarlaunum karla jókst úr 74% árið 1998 í 76% árið 2004. Hjá skrifstofufólki hækkaði hlutfallið hins vegar úr 70% í 77%. Þar gætir eflaust áhrifa aukinnar menntunar og aukins hlutar kvenna í stjórnunarstöðum. Almennt er hlutur karla hins vegar enn stærri í stjórnunarstöðum og yfirvinna meiri.
12.5.2005
Mikil frumkvöðlastarfsemi á Íslandi
Frumkvöðlastarfsemi á Íslandi er með því hæsta sem gerist meðal hátekjulandanna í heiminum. Nýsköpunarfyrirtæki búa hins vegar við mikinn fjármagnsskort og athygli vekur að hlutfall háskólamenntaðra er lægra í frumkvöðlastarfsemi hér en í öðrum hátekjulöndum. Þetta er meðal niðurstaðna GEM frumkvöðlarannsóknarinnar sem HR vinnur fyrir Íslands hönd með stuðningi frá SA, Nýsköpunarsjóði og forsætisráðuneyti. Sjá nánar á vef HR.
10.5.2005
Ársskýrsla SA 2004 - 2005
Ársskýrslu Samtaka atvinnulífsins fyrir starfsárið 2004-2005, sem dreift var á aðalfundi samtakanna 3. maí, má nálgast hér á vef samtakanna. Í skýrslunni er að finna ítarlega umfjöllun um starfsemi SA, efnahagsmál, kjaramál o.fl. Sjá ársskýrslu SA (pdf-skjal).
9.5.2005
Slysatrygging sjómanna, morgunfundur 10. maí
Hið íslenska sjóréttarfélag boðar til fræðafundar um slysa-tryggingu sjómanna þriðjudaginn 10. maí nk. Frummælandi verður Guðmundur Sigurðsson, dr. juris., dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 08:00 í fundarsal Logos, Efstaleiti 5.
4.5.2005
Lækkun félagsgjalda SA
Á aðalfundi SA var samþykkt að lækka iðgjald til vinnudeilu-sjóðs samtakanna úr 0,04% í 0,02% af iðgjaldsstofni næstliðins árs. Jafnframt var samþykkt að veita stigvaxandi afslátt af árgjöldum til samtakanna umfram eina milljón króna. Félagsjöld SA voru síðast lækkuð árið 2001 en lækkunin nú er enn meiri.
3.5.2005
Umsvif erlendis þýða sérfræðistörf á Íslandi
Aukin umsvif íslenskra fyrirtækja erlendis hafa m.a. haft í för með sér fjölgun sérfræðistarfa fyrir hámenntað fólk hér á landi. Íslendingar hafa sýnt að þeir geta keypt stór fyrirtæki erlendis en verða dæmdir af því hvernig þeim gengur að reka þau. Öflugt menntakerfi og öflugt umhverfi nýsköpunar eru lykilatriði fyrir framtíðar velgengni Íslendinga. Þetta er meðal þess sem fram kom í umræðum á aðalfundi SA.
3.5.2005
Halda ber áfram að laga skattaumhverfið
Í ræðu sinni á aðalfundi SA sagði Halldór Ásgrímsson forsætis-ráðherra m.a. að halda bæri áfram að laga skattaumhverfið til að styrkja samkeppnisstöðu atvinnulífsins og bæta lífskjörin. Hann tók undir stefnumörkun SA á sviði eftirlits með atvinnu-starfsemi, sagði áframhaldandi uppbyggingu stóriðju til alvarlegrar skoðunar, sagði nauðsynlegt að skoða hvernig örorkuréttur stofnast og auglýsti eftir meira trausti í samfélaginu.
3.5.2005
Hagsmunir atvinnulífsins eru almannahagsmunir
Í ræðu sinni á aðalfundi SA fjallaði
3.5.2005
Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins
Lýst hefur verið kjöri stjórnar SA fyrir starfsárið 2005 til 2006. Ný koma inn í stjórnina þau Guðmundur Ásgeirsson Nesskipum, Gunnar Sverrisson Íslenskum aðalverktökum, Hrund Rudolfsdóttir Lyfjum og heilsu, Loftur Árnason Ístaki, Óskar Magnússon Tryggingamiðstöðinni og Ragnhildur Geirsdóttir FL Group.
3.5.2005
Ingimundur Sigurpálsson endurkjörinn formaður SA
Á aðalfundi SA var tilkynnt um niðurstöðu úr beinni póst-kosningu formanns samtakanna.
3.5.2005
Áherslur atvinnulífsins í ellefu málaflokkum
3.5.2005
Áfram í úrvalsdeild? - Aðalfundur SA í dag
Opin dagskrá aðalfundar SA hefst kl. 15:00 í dag á Nordica. Yfirskriftin er Áfram í úrvalsdeild? Frumsýnd verður ný sjónvarpsmynd þar sem um 20 álitsgjafar fjalla um árangur atvinnulífs, stjórnvalda og framtíðarsýnina. Nýkjörinn formaður SA flytur ræðu sem og Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Loks mun fríður flokkur stjórnenda fjalla um áherslur atvinnulífsins og framtíðarsýnina. Sjá nánar um aðalfund SA.
2.5.2005
Nýr forstöðumaður ráðinn til Starfsafls
Kolbrún Stefánsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Starfs-afls, starfsmenntasjóðs SA og Flóabandalagsins. Kolbrún hefur m.a. starfað við kennslu, verslun og ferðaþjónustu, en undanfarna tvo áratugi hefur hún verið útibússtjóri hjá Landsbanka Íslands.
27.4.2005
Um 500 milljóna kostnaður vegna siglingaverndar
Þann 1. júlí 2004 tóku gildi lög um siglingavernd hér á landi. Lög þessi eiga að tryggja öryggi vöru, skipa og farþega og eru sett til að draga úr ógn vegna hryðjuverka. Ætla má að árlegur kostnaður vegna þeirra geti verið um 500 mkr. og að þessi kostnaður leggist fyrst og fremst á neytendur með því að vöruverð hækkar. Mikilvægt er að gæta ítrustu hagkvæmni við framkvæmdina.
26.4.2005
Fjögur fyrirtæki fá umhverfisviðurkenningu
Orkuveita Reykjavíkur hlaut Kuðunginn, umhverfisviður-kenningu umhverfisráðuneytisins, í ár. Einnig hlutu fyrirtækin Hjá GuðjónÓ, Málning hf. og Prentsmiðjan Oddi viður-kenningar frá ráðuneytinu, sem vill með þessu móti vekja athygli á þeim fyrirtækjum sem skara fram úr á sviði umhverfismála og hvetja þau og önnur til góðra verka á þessu sviði. Sjá nánar á vef umhverfisráðuneytisins.
22.4.2005
Umsóknir í Þróunarsjóð EFTA
Á næstu vikum verður opnað fyrir umsóknir í Þróunarsjóð EFTA. Verkefnin eiga að snúa að efnaminni aðildarríkjum ESB en æskilegt þykir að hluti fjárins gangi til verkefna sem styrki tengslin milli EFTA-ríkjanna og styrkþegaríkjanna. Verkefnin geta m.a. snúið að endurnýtanlegum orkugjöfum, auðlinda-stjórnun, umhverfismálum og hugbúnaðarlausnum.
19.4.2005
Orkugeirinn í Samtök atvinnulífsins
Stjórn SA hefur samþykkt umsókn Samorku um að gerast aðili að SA sem sjálfstætt aðildarfélag. Samorka, samtök raforku-, hita- og vatnsveitna, verður því áttunda aðildarfélag SA og öll 38 aðildarfyrirtæki Samorku verða jafnframt aðildarfyrirtæki SA. Innganga Samorku eflir enn stöðu SA sem heildar-samtaka íslensks atvinnulífs.
19.4.2005
Samþykktar Áherslur atvinnulífsins í ellefu málaflokkum
Stjórn SA hefur samþykkt texta í nýjar Áherslur atvinnulífsins í ellefu málaflokkum, sem drög hafa verið lögð að í öflugu málefnastarfi samtakanna undanfarna mánuði. Fjallað er um efnahagsmál, vinnumarkaðsmál, skattamál, reglubyrði og eftirlit, samkeppnismál, menntamál, rannsóknir og nýsköpun, umhverfismál, jafnréttismál, lífeyrismál og alþjóðamál.
12.4.2005
2,6% atvinnuleysi í mars
Í marsmánuði voru skráðir 87.300 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.799 manns hafi að meðal-tali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,6% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,8% í febrúar sl. en 3,5% í mars á síðasta ári. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
12.4.2005
Reykbann, markaðsmál, samgöngumiðstöð...
Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar samþykkti m.a. ályktun um stöðu greinarinnar þar sem lýst er yfir vonbrigðum með samdrátt í opinberum framlögum til markaðsmála í greininni, ályktun þar sem fagnað er áætlunum um byggingu samgöngumiðstöðvar og ályktun um reykbann á veitinga-stöðum frá og með 1. júní 2007. Sjá nánar í fréttabréfi SAF.
12.4.2005
Nýjar reglur um titring á vinnustöðum
Hjá Vinnueftirliti ríkisins eru nú í undirbúningi nýjar reglur um varnir gegn áhrifum titrings á vinnustöðum. Um er að ræða vinnu með titrandi vélar, verkfæri eða áhöld og einnig störf þar sem starfsmenn sitja eða standa á titrandi undirlagi, svo sem í vinnuvélum eða flutningabílum. Nánari upplýsingar má nálgast hjá SA, eða koma á framfæri athugasemdum.
11.4.2005
Umsögn SA um frumvarp til samkeppnislaga
Í umsögn sinni um frumvarp til samkeppnislaga fagna
7.4.2005
Mikil kaupmáttaraukning
Fyrir liggur að aðilar að kjarasamningum hafa valið vísitölu neysluverðs sem grundvöll skoðunar á framvindu kjara-samninga, segir Ari Edwald framkvæmdastjóri SA í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir þó m.a. að vegna mikillar verðhækkunar fasteigna undanfarin ár gefi vísitala neysluverðs án húsnæðisliðar betri mynd þegar kaupmáttur launa er skoðaður, en þannig reiknaður hefur hann aukist um 4,3% á einu ári.
7.4.2005
Áhrif vaxtalækkana á kaupmátt vanmetin
Lækkun vaxta af húsnæðislánum úr 5,1% í 4,15% hefur mikil áhrif á ráðstöfunarfé og kaupgetu þeirra sem skulda í eigin húsnæði. Fyrir hjón með 350 þúsund krónur á mánuði og 10 milljóna króna húsnæðisskuld jafngildir breytingin 1,5% kaupmáttaraukningu.
7.4.2005
Varað við brögðum í tafli
Ástæða er til að vara íslensk fyrirtæki við erindum frá fyrir-tækjum þar sem óskað er staðfestingar á faxi á upplýsingum um símanúmer, heimilisfang o.fl. Nokkur fyrirtæki hafa bitið á agnið og í kjölfarið fengið reikninga frá Nordisk Industri fyrir birtingu upplýsinga í gagnabönkum. Fyrirtæki sem fá slíka reikninga eru hvött til að borga þá ekki en koma þeim á framfæri við SA.
6.4.2005
Sala og markaðssetninga á netinu, á aðalfundi SAF
Meginþema aðalfundar Samtaka ferðaþjónustunnar, sem haldinn verður á Grand Hótel fimmtudaginn 7. apríl, verður sala og markaðssetning á netinu. Meðal annars mun Theodore Evers, einn af framkvæmdastjórum Travelocity.com, fjallar um þessa dreifileið. Sjá nánar á vef SAF.
4.4.2005
Ármann, Jón Ásgeir, Katrín, Ragnhildur og Svafa
Áherslur atvinnulífsins og framtíðarsýnin verða efni umræðna á aðalfundi SA 3. maí nk., að loknum ræðum formanns SA og Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra. Þátttakendur verða þau Ármann Þorvaldsson framkvæmdastjóri fyrirtækja-ráðgjafar KB banka, Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs Group, Katrín Pétursdóttir forstjóri Lýsis hf., Ragnhildur Geirsdóttir forstjóri FL Group og Svafa Grönfeldt fram-kvæmdastjóri stjórnunarsviðs Actavis Group. Umræðunum stýrir Páll Magnússon fréttastjóri Stöðvar 2. Sjá nánar um aðalfund SA.
1.4.2005
Tékkland, Pólland, Danmörk, Mexíkó...
Viðskiptasendinefndum Útflutningsráðs er m.a. ætlað hafa vakandi auga með tækifærum fyrir íslensk fyrirtæki á nýjum mörkuðum í þeim tilgangi að aðstoða þau að koma sér á framfæri í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi. Á þessu ári verða m.a. skipulagðar sendinefndir til Tékklands, Slóvakíu, Póllands, Danmerkur og Mexíkó. Sjá nánar á vef Útflutnings-ráðs.
23.3.2005
Dagskrá aðalfundar SA á Nordica 3. maí
Áfram í úrvalsdeild? er yfirskriftin á opinni dagskrá aðalfundar SA á Hótel Nordica þriðjudaginn 3. maí kl. 15. Fjallað verður um árangur atvinnulífsins, árangur stjórnvalda og fram-tíðarsýnina, m.a. með stuttum myndskeiðum þar sem rætt er við fjölda athafnafólks. Tíu málefnahópar SA leggja drög að nýjum Áherslum atvinnulífsins og fríður flokkur stjórnenda úr atvinnulífinu mun taka þátt í umræðum að loknum ræðum nýkjörins formanns SA og Halldórs Ásgrímssonar forsætis-ráðherra.
22.3.2005
Nýr forseti UNICE í júnílok
Dr. Jürgen Strube, stjórnarformaður þýsku viðskiptasam-steypunnar BASF, mun láta af störfum sem forseti UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins, í júnílok. Formenn aðildar-samtaka UNICE, þ.á m. SA og SI, hafa kosið Ernest-Antoine Seilliere til að taka við af Strube. Seilliere er formaður MEDEF, frönsku samtaka atvinnulífsins, og forstjóri fjárfestinga-félagsins Wendel Investissement.
18.3.2005
Ályktun iðnþings: stöðugleiki nauðsynlegur
Stöðugleika þarf til að samkeppnis- og útflutningsgreinar þrífist, segir í ályktun iðnþings Samtaka iðnaðarins. Þar segir að hátt gengi krónunnar, óhóflegur vaxtamunur, sífelld útþensla í ríkisrekstrinum og mjög hátt raungengi um þessar mundir valda því að framleiðslu- og þjónustufyrirtæki leggi upp laupana eða fari úr landi í stórum stíl. Kallað er eftir samstilltu átaki um efnahagslegan stöðugleika. Sjá nánar á vef SI.
18.3.2005
Kennaraverkfallið olli röskun á starfi hjá 30% foreldra
Rúm 30% foreldra grunnskólabarna segja kennaraverkfallið hafa valdið röskun í starfi hjá sér, skv. könnun Gallup fyrir Jafnréttisráð. Talsvert hærra hlutfall kvenna en karla varð fyrir röskun í starfi vegna verkfallsins, eða 37% á móti 27%. Munurinn er þó ekki tölfræðilega marktækur, en fjöldi svara takmarkaðist við fólk á vinnumarkaði með börn í grunnskóla. Rúm 11% foreldra segjast verða fyrir röskun í starfi vegna starfsdaga, vetrarfría o.s.frv.
17.3.2005
Kaupmáttur jókst um 1,4%, án húsnæðisliðar um 2,7%
Regluleg laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu að meðaltali um 5,3% á tímabilinu frá 4. ársfjórðungi 2003 til 4. ársfjórðungs 2004, skv. launakönnun Hagstofunnar. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 3,8%. Samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 1,4%. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði hins vegar um 2,5% og jókst því kaupmáttur launa gagnvart vörum og þjónustu um 2,7%. Laun kvenna hækkuðu um 6,3% en karla um 4,8%.
16.3.2005
Styrkir vegna starfsmenntunar
Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu. Í ár njóta forgangs umsóknir sem snúa að tækifærum miðaldra og eldra fólks til starfs-menntunar, og að yfirfærslu þekkingar og reynslu innan fyrirtækja og stofnana. Til úthlutunar eru 55 milljónir og umsóknarfrestur er til 18. mars. Sjá nánar á vef Starfsmenntaráðs.
14.3.2005
Ein löggilding verði látin nægja
Í ályktun aðalfundar SART, Samtaka atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði, er þeim tilmælum beint til stjórnvalda að lögum verði breytt á þann veg að löggilding Löggildingarstofu og iðnaðarráðuneytis ein og sér veiti öll þau réttindi sem þarf til að löggiltir rafverktakar geti óhindrað rekið sína starfsemi, en þeir þurfi ekki jafnframt löggildingu umhverfisráðuneytis á grundvelli byggingarlaga. Sjá nánar á vef SART.
13.3.2005
2,8% atvinnuleysi í febrúar
Í febrúar voru skráðir 83.077 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.155 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,8% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnu-leysið 3,0% í janúar sl. og 3,6% í febrúar 2004. Að mati Vinnumálastofnunar er líklegt að atvinnuleysið minnki í mars. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
11.3.2005
Ölgerðin efst í ánægjuvoginni
Fjórða árið í röð er Ölgerðin Egill Skallagrímsson í efsta sæti Íslensku ánægjuvogarinnar og jafnframt efst í flokki fram-leiðslufyrirtækja. Sparisjóðirnir eru efstir í flokki fjármála-fyrirtækja, sjötta árið í röð, Hitaveita Suðurnesja efst í flokki veitufyrirtækja, þriðja árið í röð, og Olís er efst í flokki smásölufyrirtækja. Sjá nánar á vef SI.
8.3.2005
Hrund Rudolfsdóttir formaður stjórnar SVÞ
Á aðalfundi SVÞ var Hrund Rudolfsdóttir, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu hf. kjörin formaður stjórnar samtakanna. Hrund tekur við af Sigurði Á. Sigurðssyni, forstjóra BÚR hf. Í erindi sínu á fundinum fjallaði fráfarandi formaður m.a. um samkeppnislög og sérlög um markaðssamráð í landbúnaði, um þjónustutilskipun ESB o.fl. Þá ályktaði fundurinn um stofnun eins atvinnuvegaráðuneytis.
8.3.2005
Námskeið um stjórnun upplýsingaöryggis
Dagana 16. og 17. mars nk. stendur Staðlaráð fyrir námskeiði um örugga meðferð upplýsinga og stjórnun upplýsinga-öryggis skv. ISO 17799. Námskeiðið er m.a. ætlað stjórn-endum sem bera ábyrgð á að móta og innleiða stjórnkerfi upplýsingaöryggis. Sjá nánar á vef Staðlaráðs.
7.3.2005
Efla vitund um vinnustaði fatlaðra
Opnaður hefur verið nýr vefur Samtaka um vinnu- og verk-þjálfun, með stuðningi SA o.fl. Ætlunin með vefsíðunni er að efla vitund, skilning og virðingu almennings og fyrirtækja fyrir því starfi sem fram fer á vinnustöðum fatlaðra og hæfingar-stöðvum, kynna hlutverk þeirra, vörur og þjónustu, og stuðla þannig að fleiri og betri tækifærum, breyttum viðhorfum og betri framtíð í atvinnu- og endurhæfingarmálum fatlaðra einstaklinga. Sjá nýja vefinn, hlutverk.is.
7.3.2005
Umhverfisviðurkenning 2004 - tilnefninga óskað
Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki til að hljóta umhverfis-viðurkenningu umhverfisráðuneytisins fyrir árið 2004. Tillögur skulu berast ráðuneytinu, með stuttri greinargerð, eigi síðar en 25. mars. Sjá nánar á vef umhverfisráðuneytisins.
6.3.2005
Starfsmenn í sama liði oft misverðmætir
Eðlilegar ástæður eru oftast fyrir launamun milli kvenna og karla í sambærilegu starfi segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, í viðtali við Fréttablaðið. Í nýlegum fyrir-lestri notaði hún launamun atvinnumanna í knattspyrnu til að sýna fram á einstaklingsbundin viðmið við launaákvarðanir.
5.3.2005
Atriði í frumvarpinu sem eru til bóta frá því sem áður var
Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgun-blaðið að atriði í frumvarpi til nýrra samkeppnislaga séu til bóta frá því sem áður hafi verið. Til dæmis hefði heimild til að brjóta upp starfsemi fyrirtækja verið of óljós í fyrri drögum sem og forsendur fyrir svo afdrifaríkum viðurlögum, en að þetta virtist nú vera talsvert skýrara.
4.3.2005
Rangfærslur um ójöfnuð
Engin innistæða er fyrir fullyrðingum um vaxandi ójöfnuð á Íslandi yfir tíma og í alþjóðlegum samanburði, segir
3.3.2005
Af erlendu starfsfólki og svartri atvinnustarfsemi
Það er að sjálfsögðu með öllu óþolandi fyrir heiðarleg fyrirtæki að þurfa að keppa við aðila sem fara framhjá lögum og reglum, segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hún segir slíka starfsemi ekki eiga neinn rétt á sér og að hana beri að uppræta. Slík starfsemi megi hins vegar ekki verða til þess að kasta rýrð á þá útlendinga sem hér starfa á eðlilegum forsendum og þá vinnuveitendur sem nýta sér krafta erlends starfsfólks eftir löglegum leiðum.
3.3.2005
Nýtt eftirlit án lagastoðar?
Samtök atvinnulífsins mótmæla harðlega nýju eftirliti Aðfangaeftirlitsins með útfluttu fiskmjöli og lýsi. Samtökin telja þetta nýja eftirlit og gjaldtöku ekki eiga sér neina stoð í lögum. Dæmi er um að einu sjávarútvegsfyrirtæki sé gert að greiða á annan tug milljóna á ári í ný eftirlitsgjöld. Innheimta eftirlitsgjaldanna er nú fyrir dómstólum. Sjávarútvegs-ráðuneytið telur þetta nýja eftirlit bæði ólögmætt og óþarft.
3.3.2005
Garðabær sker sig úr
Sumarlokanir leikskóla valda víða óhagræði fyrir foreldra og fyrirtæki. Samtök atvinnulífsins hafa kannað hvernig þessu verður háttað hjá stærstu sveitarfélögunum. Í flestum þeirra loka leikskólar í tvær til fjórar vikur á mismunandi tímum. Sums staðar er boðið upp á einhver úrræði á borð við að einn leikskóli sé opinn. Garðabær sker sig hins vegar úr því þar loka engir leikskólar og foreldrar ráða því sjálfir hvenær börnin fara í frí.
3.3.2005
Almenn ánægja með breytingar á stjórnsýsluþætti
Í samtali við Fréttablaðið segir
2.3.2005
ESB: 2006 verði ár hreyfanleika á vinnumarkaði
Framkvæmdastjórn ESB áformar að lýsa árið 2006 ár hreyfan-leika á vinnumarkaði og stuðla þannig að því að fólk nýti sér í auknum mæli réttinn til að sækja sér vinnu í öðrum aðildar-ríkjum. Tilgangur þess er að auka skilvirkni á evrópskum vinnumarkaði og stuðla þannig að auknum hagvexti og þar með bættum lífskjörum.
28.2.2005
Skýrsla um skattsvik: niðurstöður á veikum grunni
Niðurstöður skýrslu starfshóps um umfang skattsvika hér á landi eru því miður á veikum grunni byggðar og geta því með engu móti myndað grundvöll að svo róttækum breytingum sem hópurinn leggur til, segir í umsögn SA. Virðist í raun sem tillögurnar séu óskalisti þeirra embættismanna sem starfs-hópinn skipuðu, en þær miða gjarnan að auknu eftirliti og valdheimildum til þeirra eigin embætta.
21.2.2005
Meirihluti vill léttvín og bjór í matvöruverslanir
Meirihluti þjóðarinnar vill geta keypt léttvín og bjór í matvöru-verslunum. Samkvæmt niðurstöðum í nýjum Þjóðarpúls Gallup eru 59% fullorðinna Íslendinga hlynnt afnámi einkasölu ríkis-ins á smásölu léttvíns og bjórs. Þessi niðurstaða er sambæri-leg við fimm aðrar sambærilegar kannanir sem gerðar hafa verið síðastliðin fimm ár. Sjá nánar á vef SVÞ.
18.2.2005
Aðkoma lífeyrissjóða að uppbyggingu sprotafyrirtækja
Það þýðir ekki að höfða til samvisku lífeyrissjóða þegar þeim eru kynnt fjárfestingartækifæri. Hlutverk þeirra er að ávaxta sitt pund og greiða lífeyri. Þetta kom fram í máli Ara Edwald framkvæmdastjóra SA á sprotaþingi, þar sem hann fjallaði um aðkomu lífeyrissjóða að uppbyggingu sprotafyrirtækja. Ari sagði þó að langtímasjónarmið lífeyrissjóða hlytu að meta einhvers sköpun framtíðarfjárfestinga, störf og iðgjöld. Hann sagði eðlilegt lagaumhverfi skorta hér á landi fyrir slíkar fjárfestingar.
18.2.2005
Hættulega rangur skilningur á kapítalismanum
Talsmenn aukinnar félagslegrar ábyrgðar fyrirtækja eiga það sameiginlegt að byggja á hættulega röngum skilningi á kapítalismanum, segir í leiðara vikuritsins Economist. Heiðar-leg fyrirtæki sem virða lög og reglur og starfa á samkeppnis-markaði þjóna stöðugt almannahag, án þess þó að hafa það beinlínis að markmiði. Skaðleg góðvild er algeng niðurstaða áherslu á aukna félagslega ábyrgð.
16.2.2005
Nýta megi endurnýtanlegar orkulindir
Mikilvægt er að skuldbindingar um minnkun á losun gróður-húsalofttegunda nái til fleiri ríkja en nú er, þar á meðal til Bandaríkjanna og landa á borð við Indland og Kína. Þá er afar mikilvægt að Íslendingar og aðrir fái áfram að nýta endur-nýtanlegar orkulindir. Þetta er meðal þess sem fram komi í máli Péturs Reimarssonar frá SA á málþingi um Kyoto-bókunina.
15.2.2005
Virði ferðaþjónustunnar
Samtök ferðþjónustunnar halda málþing um virði ferða-þjónustunnar og fjárfestingar, fimmtudaginn 17. febrúar nk. frá kl 9 til 12 á Hótel Nordica, ráðstefnusölum 2. hæð. Sjá dagskrá á vefsíðu SAF.
12.2.2005
3% atvinnuleysi í janúar
Í janúar voru skráðir 91.369 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.352 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 3% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,7% í desember sl. og 3,7% í janúar 2004.
10.2.2005
Framtíð og forsendur sprotafyrirtækja
8.2.2005
Námskeið um ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlana
Föstudaginn 18. febrúar stendur Staðlaráð fyrir námskeiði um lykilatriði, uppbyggingu og notkun ISO 9000 gæðastjórnunar-staðlanna. Markmið námskeiðsins er m.a. að þátttakendur þekki hvernig hægt er að beita stöðlunum við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi. Sjá nánar á vef Staðlaráðs.
7.2.2005
Endurskoða þarf hlutverk Íbúðalánasjóðs
Bæði Seðlabankinn og SA hafa ítrekað bent á að í stað þess að hækka almenn lán Íbúðalánasjóðs væri fyllsta þörf á að endurskoða hlutverk sjóðsins, en hækkun húsnæðisverðs skýrir um helming allrar hækkunar vísitölu neysluverðs síðustu 12 mánuði. Ríkið er þarna í mótsagnarkenndu hlutverki, þar sem Íbúðalánasjóður keppir um útlán við fyrirtæki á frjálsum markaði á meðan Seðlabankinn eykur aðhald peninga-stefnunnar með hækkun stýrivaxta.
3.2.2005
Sporna þarf gegn ofþenslu
Uppsagnir á Stöðvarfirði og í Þorlákshöfn vitna um almenna þróun starfsskilyrða segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir að staðan sé alvarleg og að huga þurfi vandlega að öllum leiðum til að draga úr þenslu.
3.2.2005
Aukin fjárfestingaráform fyrirtækja
Fleiri fyrirtæki hyggjast auka fjárfestingar sínar á árinu en á sama tíma í fyrra, eða rúmur fjórðungur. Tæpur helmingur hyggst fjárfesta álíka mikið og árið áður en rúmur fjórðungur hyggst fjárfesta minna. Þetta er talsverð breyting frá í fyrra. Mikill samdráttur er í fjárfestingum í sjávarútvegi en aukningin er mest í verslun og þjónustu. Fyrirtæki á landsbyggðinni hyggjast draga úr fjárfestingum en vænst er meiri fjárfest- inga á höfuðborgarsvæðinu.
3.2.2005
Hvenær eru störf jafn verðmæt og sambærileg?
Í nýlegum dómi telur Hæstiréttur Akureyrarbæ ekki hafa tekist að sanna að hlutlægar og málefnalegar ástæður hafi ráðið mismun starfskjara tveggja launþega. Mismunandi kjara-samningar geti ekki einir sér réttlætt mismun starfskjara kvenna og karla í skilningi jafnréttislaga. Dómurinn gefur hins vegar ekki einhlítt svar við spurningunni um hvenær störf séu jafn verðmæt og sambærileg og því hæpið að draga of víðtækar ályktanir um þýðingu þessa dóms.
3.2.2005
Versnandi afkoma í fiskvinnslu
Framlegð fiskvinnslufyrirtækja hefur að meðaltali lækkað úr tæpum 9% árið 2003 í tæp 4% í janúar á þessu ári, fyrir fjármagnsliði, samkvæmt lauslegri athugun SA. Líklegt verður því að telja að við núverandi aðstæður sé meirihluti fisk-vinnslufyrirtækja rekinn með tapi og ljóst að greinin mun áfram eiga verulega undir högg að sækja við óbreytt eða enn hærra gengi krónunnar.
1.2.2005
Nýr málefnahópur SA: rannsóknir og nýsköpun
Settur hefur verið á fót nýr málefnahópur á vettvangi SA, um rannsóknir og nýsköpun. Alls eru því tíu málefnahópar sam-takanna að störfum við undirbúning aðalfundar SA 3. maí nk. Málefnastarfið er opið öllum aðildarfyrirtækjum og aðildar-félögum SA og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig til þátttöku. Sjá nánar um hópana og skráningu.
31.1.2005
Fyrirtæki á Íslandi fremst á sviði sjálfbærrar þróunar
Tvö fyrirtæki sem starfa á Íslandi eru á lista WEF í Davos yfir hundrað fremstu fyrirtæki heimsins á sviði sjálfbærrar þróunar, Alcoa og Alcan. Þrjú fyrirtæki þóttu skara fram úr meðal fyrirtækjanna hundrað og var þeirra sérstaklega getið fyrir framúrskarandi árangur. Fyrirtækin þrjú eru Toyota, Alcoa og BP.
28.1.2005
Kynntar áherslur Starfsmenntaráðs
Árlegur opinn fundur Starfsmenntaráðs verður haldinn á Kaffi Reykjavík, Vesturgötu 2, þriðjudaginn 8. febrúar nk. kl. 12. Á fundinum verða kynntar áherslur við úthlutun úr starfs-menntasjóði árið 2005. Sjá nánar á vef Starfsmenntaráðs.
26.1.2005
Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis
Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Auglýst er eftir umsóknum um styrki í mannaskiptaverkefni Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlunar ESB. Umsóknarfrestur er til 11. febrúar 2005. Mennt veitir fyrirtækjum ráðgjöf og aðstoðar þau við gerð umsókna.
24.1.2005
Útboðsþing 2005 á Grand Hótel 28. janúar
Samtök iðnaðarins og Félag vinnuvélaeigenda halda árlegan upplýsingafund um opinberar framkvæmdir ársins á Grand Hótel Reykjavík, föstudaginn 28. janúar frá kl. 13:00 til 17:00. Sjá nánar á vef SI.
21.1.2005
Ísland með hæsta hlutfall frumkvöðlastarfsemi í Evrópu
Samkvæmt niðurstöðum alþjóðlegrar rannsóknar á frum-kvöðlastarfsemi, Global Entrepreneurship Monitor, er Ísland enn með hæsta hlutfall frumkvöðlastarfsemi af þeim Evrópulöndum sem taka þátt í rannsókninni. Háskólinn í Reykjavík er þátttakandi í könnuninni, með stuðning frá SA o.fl. Sjá nánar á vef HR.
19.1.2005
Viðsnúningur á vinnumarkaði
Störfum fjölgaði um 2% á síðasta ársfjórðungi 2004, skv. vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar. Þetta er viðsnúningur frá ársfjórðungunum á undan þar sem könnunin mældi fækkun starfa. Hins vegar fækkaði starfandi fólki á árinu 2004 um 0,5% og því virðist sem framleiðni hafi aukist um 5-6% á árinu.
19.1.2005
2,7% atvinnuleysi í desember
Í desember voru skráðir 94.060 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.088 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá, eða 2,7% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,6% í nóvember sl. og 3,1% í desember 2003.
19.1.2005
Samið við skipstjórnarmenn á sanddæluskipum
Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli SA og Félags skipstjórnarmanna um kaup og kjör skipstjórnarmanna á sanddæluskipum. Með samningnum eru tveir kjarasamningar (skipstjóra og stýrimanna) felldir saman í einn og tekið upp fastlaunakerfi. Felld voru niður ýmis gömul ákvæði og samningurinn aðlagaður að nýgerðum kjarasamningum skipstjórnarmanna á kaupskipum. Samninginn er að finna á kjarasamningavef SA.
18.1.2005
Ráðstefna um upplýsingatækni 25. janúar: Þriðja stoðin
17.1.2005
Menntadagur iðnaðarins 18. janúar
Samtök iðnaðarins halda menntadag iðnaðarins í Versölum Hallveigarstíg þriðjudagsmorguninn 18. janúar. Yfirskrift dagskrárinnar er Mannauður, þekking, menntun. Meðal annars verður fjallað um um nýtingu mannauðs og hvernig auka megi þekkingu og færni starfsfólks. Sjá nánar á vef SI.
13.1.2005
Breytingar á skattaumhverfi – áherslur SA
Þróun skattumhverfis fyrirtækja hefur verið afar jákvæð undanfarin ár, en brýnustu verkefnin framundan eru m.a. afnám stimpilgjalds á viðskiptabréf, endurskoðun vörugjalda og virðisaukaskatts og frekari lækkun tekjuskatts fyrirtækja. Þetta kom fram í erindi Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA, á skattadegi Deloitte, SA, VÍ og Viðskiptablaðs Morgunblaðsins.
12.1.2005
Fundur um ábyrgð mengunarvalda og viðbragðsáætlanir
Föstudaginn 14. janúar nk. boða SA til kynningarfundar um ábyrgð mengunarvalds og viðbragðsáætlanir í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda. Erindi flytja starfsmenn umhverfisráðuneytis og Umhverfisstofnunar. Fundurinn verður haldinn í Borgartúni 35 og hefst kl. 14:00. Sjá nánar
11.1.2005
Siðferði í góðu lagi hjá íslenskum stjórnendum
Í nýrri könnun á siðferði í íslensku viðskiptalífi kemur fram að mál eru í ágætum farvegi. Stjórnendur segjast huga að siðferðilegum afleiðingum ákvarðanna sinna og þeir segja stöðu mála betri í dag en áður. Jafnframt telja þeir siðferði í viðskiptum á Íslandi vera betra en í nágrannalöndum. Könnunin var kynnt á morgunverðarfundi Samtaka atvinnulífsins, Glímunnar og Verslunarráðs sem fór fram í morgun, þar sem rætt var um traust og siðferði í íslensku viðskiptalífi.
10.1.2005
Skattadagur Deloitte, SA, VÍ og Mbl 13. janúar
8.1.2005
Hvaða forsendur standast ekki?
BHM halda því fram að forsendur standist ekki í samanburði SA á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna og fólks á almennum vinnumarkaði, en bera samt ekki á nokkurn hátt brigður á forsendur SA heldur tala um aðra hluti. Furðu sætir ef háskólamenn vilja ekki að borin séu saman epli og epli og engu er líkara en að upphrópun BHM sé ætlað að slá vitræna umræðu útaf borðinu.
7.1.2005
Traust í viðskiptalífinu – morgunverðarfundur 11. janúar
Þriðjudaginn 11. janúar standa Glíman (óháð tímarit um guðfræði og samfélag),
6.1.2005
Erlent starfsfólk nauðsynlegt við stórframkvæmdir
Um það ríkir enginn ágreiningur að öllum fyrirtækjum sem hér starfa, innlendum sem erlendum, ber að virða íslensk lög og íslenska kjarasamninga, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir umræðuna að undanförnu hafa verið með ólíkindum á köflum og minnir á að framboð af hæfu fólki til ýmissa verkframkvæmda sé einfaldlega ekki nægjanlegt í landinu um þessar mundir.
6.1.2005
Tíu milljónir á mann
Umframréttur opinberra starfsmanna til ellilífeyris er ígildi 10 milljóna króna starfslokagreiðslu, samanborið við sjóðfélaga í Lífeyrissjóði verslunarmanna, sé miðað við 250 þúsund króna mánaðarlaun, 42 ára iðgjaldagreiðslur og 3,5% vexti. Ef miðað er við 500 þúsund króna mánaðarlaun eru umfram-réttindin ígildi 20 milljóna króna starfslokagreiðslu.
6.1.2005
Ónógt aðhald í ríkisfjármálum
Á árunum 2000 til 2003 voru fjárlög að meðaltali afgreidd með 20 milljarða króna afgangi. Niðurstaða ríkisreiknings var að meðaltali 2,5 milljarða halli. Óreglulegir liðir eiga þó stóran þátt í þeirri niðurstöðu, t.d. bókfærðar lífeyrisskuldbindingar. Þessa reynslu þarf að hafa í huga þegar fjallað er um aðhald í ríkisfjármálum, sem almennt eru ekki talin nægilega aðhalds-söm til að sporna gegn þenslu í efnahagslífinu.
6.1.2005
Skattadagur Deloitte, SA, VÍ og Mbl 13. janúar
Fimmtudaginn 13. janúar kl. 8 til 11 verður Skattadagur Deloitte haldinn á Grand Hótel Reykjavík, í samvinnu við
5.1.2005
Staðgreiðsla, persónuafsláttur, launabreytingar...
Um áramótin tóku gildi launabreytingar, breytingar á lífeyris-framlögum, breytingar á skatthlutföllum í staðgreiðslu, persónuafslætti o.fl. Þessar breytingar hafa verið teknar saman á aðgengilegan hátt á vinnumarkaðsvef SA, sem opinn er félagsmönnum. Sjá nánar á vinnumarkaðsvef SA.
5.1.2005
Samningar í Finnlandi – 1,8% hækkun á ári
Nýlega voru undirritaðir miðlægir samningar í Finnlandi sem gilda frá miðjum febrúar 2005 til loka september 2007, eða í 30,5 mánuði. Samningurinn tekur til 90% launamanna á almennum vinnumarkaði. Launahækkunin frá 1. mars 2005 er 2,5% og 2,1% frá 1. júní 2006. Launahækkun á samnings-tímanum (tvö og hálft ár) er samkvæmt því 4,6% eða 1,8% á ári að meðaltali.
5.1.2005
Fundur um ábyrgð mengunarvalda og viðbragðsáætlanir
Föstudaginn 14. janúar nk. boða SA til kynningarfundar um ábyrgð mengunarvalds og viðbragðsáætlanir í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda. Erindi flytja starfsmenn umhverfisráðuneytis og Umhverfisstofnunar. Fundurinn verður haldinn í Borgartúni 35 og hefst kl. 14:00.










