Fréttir
31.8.2004
Stimpilgjald úreltur skattur
Í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins segir
27.8.2004
Alþjóðleg ráðstefna um samkeppnisreglur 10. september
Lögfræðiskrifstofa Reykjavíkur og Euphoria standa fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um samkeppnisreglur á Nordica hótelinu föstudaginn 10. september nk., með stuðningi SA o.fl. Virtir erlendir sérfræðingar munu ávarpa ráðstefnuna, en miklar breytingar hafa orðið á samkeppnisreglum ESB undanfarin ár. Sjá nánar á vef ráðstefnunnar.
26.8.2004
Vika símenntunar 12.-18. september
Vika símenntunar verður haldin dagana 12.-18. september. Að verkefninu standa m.a. menntamálaráðuneytið, Starfs-menntaráð, Mennt, SA, ASÍ og símennuntarmiðstöðvarnar. Vikan er ekki síst hugsuð fyrirtækjum til hvatningar, en að þessu sinni er athyglinni beint að fræðslumálum ungs fólks. Sjá nánar á vef Menntar.
25.8.2004
Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis o.fl.
Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Ertu í samstarfi við aðra evrópska aðila í starfsmenntamálum, eða vilt koma því á? Auglýst er eftir umsóknum um styrki í mannaskipta- og tilraunaverkefni Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlunar ESB. Umsóknarfrestur er til 1. október 2004. Mennt veitir fyrirtækjum ráðgjöf og aðstoðar þau við gerð umsókna.
18.8.2004
Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði
Námskeið Vinnueftirlitsins fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði hefjast á nýjan leik í september. Farið er yfir gerð áhættumats, helstu málaflokka í vinnuumhverfi starfsmanna og vinnuverndarlögin kynnt. Sjá nánar á vef Vinnueftirlitsins.
18.8.2004
3% atvinnuleysi í júlí
Í júlímánuði voru skráðir 103.648 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.712 manns hafi að meðal-tali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum eða 3,0% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnu-markaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 3,1% í júní sl. og 3,0% í júlí 2003.
16.8.2004
Evrópubúar þurfa að vinna meira
Skortur á sveigjanleika á evrópskum vinnumarkaði, of stutt vinnuvika, of lágur eftirlaunaaldur, of rík uppsagnarvernd. Allt eru þetta kunnuglegar ástæður efnahagslegrar stöðnunar víða í Evrópu. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvetur til umbóta. Michael Deppler, yfirmaður Evrópudeildar sjóðsins, segir Evrópubúa einfaldlega þurfa að vinna meira til að standast samkeppni og til að kosta velferðarkerfin.
13.8.2004
Skattlagning tekna af vinnu og fjármagni
Umræða um mismun á skattlagningu fjármagnstekna og launatekna byggist gjarnan á of miklum einföldunum og klárum misskilningi. Í samantekt SA er m.a. sýnt hvernig munurinn getur verið allt frá engu að t.d. 7% við mjög háar tekjur. Sá munur lækkar verulega með væntanlegu afnámi hátekjuskatts og fyrirhugaðri lækkun tekjuskatts.
13.8.2004
Starfsmenntaverðlaunin - tilnefninga óskað
Starfsmenntaverðlaunin verða afhent í fimmta skiptið í sept-ember nk. og er óskað eftir tilnefningum í flokkum fyrirtækja og félagasamtaka, skóla og fræðsluaðila og í opnum flokki. Frestur til þess að tilnefna rennur út 17. ágúst. Sjá nánar á vef Menntar.
12.8.2004
Frá kreppu til þjóðarsáttar - Saga VSÍ 1934 til 1999
Út er komin bókin Frá kreppu til þjóðarsáttar - Saga Vinnuveitendasambands Íslands 1934 til 1999, skráð af Guðmundi Magnússyni sagnfræðingi. Í bókinni fjallar Guðmundur fyrstur sagnfræðinga um það hvernig kjara-baráttan hér á landi horfði við atvinnurekendum og byggir hann verkið einkum á ítarlegri könnun frumheimilda.
11.8.2004
Skattaumræða á villigötum
Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir skattaumræðuna að hluta til á villigötum og segir í samtali við fréttastofu Ríkis-útvarpsins að munurinn á skattgreiðslum almennings og þeirra sem taka sér laun í gegnum arðgreiðslur eignarhalds-félaga sé ekki eins mikill og menn vilji vera láta.
10.8.2004
Ný kaupgjaldsskrá SA
Kaupgjaldsskrá SA nr. 5 er komin á vef samtakanna, en hún gildir fyrir samninga sem undirritaðir voru á tímabilinu mars til júní 2004. Prentað eintak verður sent félagsmönnum á næstunni. Sjá nánar.
9.8.2004
Ekki sérlega raunhæfar hugmyndir
Forstjóri Samkeppnisstofnunar hefur varpað fram þeirri hugmynd að eftirlitsskyldir aðilar greiði að hluta eða öllu leyti kostnað við samkeppniseftirlitið. Í samtali við Morgunblaðið segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, þessar hugmyndir ekki sérlega raunhæfar við fyrstu sýn. Erfitt sé að afmarka umræddan hóp og eðlilegra að slík starfsemi sé fjármögnuð með almennu skattfé.
3.8.2004
Vilja ekki styttri vinnuviku
Tveir þriðju dansks launafólks telja ekki forsendu fyrir frekari styttingu vinnuvikunnar og rúmur helmingur telur ekki rétt að lengja sumarleyfið, skv. skoðanakönnun. Þess í stað vill meirihluti svarenda lengra fæðingarorlof. Sjá nánar á vef Politiken.
2.8.2004
UNICE fagna WTO-niðurstöðu
UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, lýsa ánægju með þann áfanga sem náðst hefur á vettvangi WTO, í viðræðum um aukið frelsi í viðskiptum sem vonandi leiði til niðurstöðu sem verði öllum til hagsbóta. Samtökin benda hins vegar á óvissu hvað varðar markaðsaðgang með iðnaðarvörur og minna á áherslu sína á að engir tollar verði yfir 15% á því sviði.
2.8.2004
3,1% atvinnuleysi í júní
Í júnímánuði síðastliðnum voru skráðir 107.279 atvinnuleysis-dagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.877 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 3,1% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Samkvæmt því er atvinnuleysi heldur á niðurleið, en það mældist 3,3% í maí sl. og 3,2% í júní 2003.
2.8.2004
Rússland, Seattle, Alaska, Rúmenía, Búlgaría...
Útflutningsráð skipuleggur viðskiptasendinefndir á erlenda markaði, þar sem skipulagðir eru fundir með mögulegum viðskiptaaðilum, auk fræðslu og kynningar. Í haust hefur ráðið þegar skipulagt slíkar ferðir til Rússlands, Seattle og Alaska, Rúmeníu og Búlgaríu. Þá er ferð til Slóvakíu og Tékklands í bígerð. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.










