Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

1.7.2004

Samanburðarfræði kennara

Fái aðrir það sama og kennarar krefjast verður afleiðingin neikvæð kaupmáttarþróun fyrir kennara sjálfa eins og aðra hópa launamanna, þótt prósentuhækkanir verði háar, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Kennarar ætlist því til að aðrir semji um minna en þeir sjálfir.

1.7.2004

50 ára og eldri traustir starfskraftar

Starfsfólk á aldrinum 50 ára og eldra er mun sjaldnar frá vegna veikinda en sér yngra fólk, vinnur kannski ívið hægar en yngra fólkið en er mun jákvæðara í garð vinnunnar. Þetta eru mjög skýrar niðurstöður könnunar SA meðal aðildar- fyrirtækja. Spurningarnar voru samdar í samráði við nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins.

1.7.2004

Hreyfing á vinnumarkaði

Nokkur fjölgun starfa virðist framundan á vinnumarkaði, samkvæmt könnun SA. 18% fyrirtækja hyggjast fjölga hjá sér starfsfólki næstu 3-4 mánuði en 10% hyggjast fækka því. Sem fyrr hyggjast þó langflest fyrirtæki halda óbreyttum fjölda starfsfólks, eða 72%. Mest fjölgun virðist framundan í iðnaði og ferðaþjónustu en stærstu fyrirtækin ætla öðrum fremur að fækka starfsfólki.

1.7.2004

Nýr starfsmaður SA í Brussel

Ástfríður Margrét Sigurðardóttir hefur verið ráðin í hlutastarf á Evrópuskrifstofu atvinnulífsins í Brussel og hefur störf 1. september. Ástfríður er matvælafræðingur að mennt og hefur m.a. starfað hjá Hollustuvernd ríkisins. Þá hefur hún nýlokið meistaranámi í Evrópufræðum við háskólann í Leuven í Belgíu. Ástfríður mun gegna stöðu varafastafulltrúa SA hjá UNICE, Evrópusamtökum atvinnulífsins.

1.7.2004

Kristófer Már lætur af störfum hjá SA

Í kjölfar flutnings og breytinga á rekstri Evrópuskrifstofu atvinnulífsins í Brussel hefur Kristófer Már Kristinsson ákveðið að flytja heim og hefur hann látið af störfum hjá Samtökum atvinnulífsins, eftir nær ellefu ára starf hjá SA og þar áður Vinnuveitendasambandi Íslands og Samtökum iðnaðarins. Samtökin þakka Kristófer vel unnin störf og óska honum velfarnaðar í framtíðinni. Gústaf Adolf Skúlason tekur við stöðu fastafulltrúa SA hjá UNICE, Evrópusamtökum atvinnulífsins, með aðsetur á Íslandi. Jafnframt hefur verið ráðinn í starfsmaður í hlutastarf með aðsetur í Brussel.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english