Fréttir
30.3.2004
Mikil frumkvöðlastarfsemi á Íslandi en erfitt að stofna nýsköpunarfyrirtæki
Frumkvöðlakraftur á Íslandi er mikill, með hæsta móti í Evrópu, en hefur þó dvínað. Skortur á áhættufjármagni er talinn stærsti veikleiki í umhverfi frumkvöðlastarfsemi á Íslandi. Þetta er meðal niðurstaðna úr alþjóðlegri rannsókn (GEM) sem Háskólinn í Reykjavík tekur þátt í, með stuðningi SA o.fl. Sjá nánar á vef HR.
29.3.2004
Samningar við verkafólk samþykktir
Kjarasamningur SA við Flóabandalagið var samþykktur með 64,2% gegn 27,9% greiddra atkvæða. Kjarasamningur SA við Starfsgreinasambandið utan Flóa var samþykktur í öllum aðildarfélögum nema tveimur, á Höfn í Hornafirði og í Vestmannaeyjum. Í heildina voru 68,1% samþykkir samningnum en nei sögðu 29%.
29.3.2004
Tvöföldun gjaldeyristekna fyrir lok árs 2012
Samtök ferðaþjónustunnar vilja að stefnt verði að tvöföldun gjaldeyristekna af ferðaþjónustu fyrir lok árs 2012 og að beinar gjaldeyristekjur verði þá komnar í a.m.k. 80 milljarða króna. Til þess að þetta megi ganga eftir segja þau nauðsyn-legt að tryggja betri arðsemi fyrirtækja í ferðaþjónustu.
26.3.2004
Kaupgjaldsskrá vegna verkafólks
Á kjaramálavef SA er að finna kaupgjaldsskrá SA vegna verkafólks sem gildir frá 1. mars 2004, verði samningar SA við Starfsgreinasambandið og Flóabandalagið samþykktir, sem skýrist mánudaginn 29. mars. Sjá nánar undir liðnum kaupgjaldsskrá á kjaramálasíðu SA. Starfsfólk SA svarar fyrirspurnum frá félagsmönnum og er þeim innan handar ef skýra þarf einstök ákvæði samninganna.
24.3.2004
Alaska, Seattle, Litháen, Rússland
Árið 2004 skipuleggur Útflutningsráð m.a. ferðir viðskipta-sendinefnda til Alaska og Seattle í maí, sem Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra fer fyrir, til Litháen í byrjun júní og til Rússlands í september. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.
23.3.2004
Að efla traust almennings á atvinnulífinu
Göran Trogen, framkvæmdastjóri hjá sænsku samtökum atvinnulífsins verður gestur á aðalfundi SA, sem haldinn verður á Grand Hótel þriðjudaginn 4. maí nk. Þar mun Trogen flytja erindi um leiðir til þess að efla traust almennings á atvinnu-lífinu, en hann hefur gegnt lykilhlutverki í viðamiklu starfi sænsku samtaka atvinnulífsins í þessu skyni.
19.3.2004
Þróun símenntunar – ráðstefna 26. mars
Föstudaginn 26. mars standa Rannsóknaþjónusta HÍ, menntamálaráðuneytið, SA, ASÍ og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins fyrir ráðstefnu um þróun símenntunar á Íslandi og í Evrópu, aðgengi og fjármögnun. Ráðstefnan verður haldin í hátíðarsal HÍ og hana ávarpar hópur innlendra og erlendra sérfræðinga. Sjá nánar á vef Rannsóknaþjónustu HÍ.
17.3.2004
Umhverfisviðurkenning 2003 - tilnefninga óskað
Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki til að hljóta umhverfis-viðurkenningu umhverfisráðuneytisins fyrir árið 2003. Tillögur skulu berast ráðuneytinu, með stuttri greinargerð, eigi síðar en 26. mars. Sjá nánar á vef umhverfisráðuneytisins.
16.3.2004
Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja
Verslunarráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Kauphöll Íslands hafa kynnt nýjar leiðbeiningar um starfshætti fyrirtækja sem hafa að markmiði að skýra hlutverk og störf stjórnarmanna og stjórnenda fyrirtækja á Íslandi. Með leiðbeiningunum er þessum aðilum auðveldað að rækja skyldur sínar um leið og hagur allra hluthafa í hlutafélögum er efldur. Sjá nánar á vef Verslunarráðs Íslands.
15.3.2004
3,6% atvinnuleysi í febrúar
Í febrúar voru skráðir 101.921 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 5.097 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá, eða 3,6% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Að mati Vinnumálastofnunar má gera ráð fyrir að atvinnuástandið batni lítilsháttar í mars.
15.3.2004
Námskeið í stjórnun upplýsingaöryggis
Dagana 24. og 25. mars stendur Staðlaráð fyrir námskeiði um stjórnun upplýsingaöryggis samkvæmt ISO staðli 17799. Námskeiðið er m.a. ætlað stjórnendum sem bera ábyrgð á að móta og innleiða stjórnkerfi upplýsingaöryggis. Sjá nánar á vef Staðlaráðs.
12.3.2004
Erlent starfsfólk mikilvægt
Í ályktun iðnþings Samtaka iðnaðarins er m.a. fjallað um mikilvægan hlut erlends starfsfólks við stóriðjufram-kvæmdir, þörf á framleiðniaukningu, skort á vel menntuðu fólki á sviði iðn-, verk-, tækni- og raungreina, og skort á fjármagni til nýsköpunar.
11.3.2004
Aðgerðaáætlun um aukna samkeppnishæfni
UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, hafa kynnt sérstaka aðgerðaáætlun um leiðir til að efla samkeppnishæfni álfunnar. Í skýrslu samtakanna er m.a. lögð áhersla á mikilvægi þess að draga úr reglubyrði, auka sveigjanleika á vinnumarkaði og auka stuðning við rannsóknir og þróun.
9.3.2004
Styrkir vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu
Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, í flokkunum 1) ný tækifæri til náms, með sérstakri áherslu á nám í verk- og tæknigreinum, og 2) ferðaþjónusta og útivist. Umsóknarfrestur er til 12. mars og rétt til að sækja um styrki eiga m.a. fyrirtæki og samtök atvinnurekenda og launafólks. Sjá nánar
7.3.2004
Samið við SGS og Flóa
Undirritaðir hafa verið kjarasamningar milli Samtaka atvinnulífsins annars vegar og Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins hins vegar. Samningarnir gilda til ársloka ársins 2007.
7.3.2004
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar
Ríkisstjórnin hefur samþykkt yfirlýsingu vegna gerðar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, þar sem fjallað er um starfsmenntamál, lífeyrismál, atvinnuleysisbætur og tryggingagjald.
5.3.2004
Lyfjaþróun hlýtur Nýsköpunarverðlaun 2004
Nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráðs í ár hlýtur Lyfjaþróun hf. Fyrirtækið var stofnað árið 1991. Það hefur aflað fjögurra alþjóðlegra einkaleyfa og er fjöldi umsókna um einka-leyfi í undirbúningi. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.
5.3.2004
Málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti
Jón Rúnar Pálsson, lögmaður hjá SA, hefur öðlast réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti og óska samtökin honum til hamingju með áfangann. Þessi áfangi eflir enn vinnumarkaðs-svið samtakanna, en þar starfa nú tveir hæstaréttarlögmenn og þrír héraðsdómslögmenn.
5.3.2004
Sameiginleg umsögn um siglingavernd
SA og aðildarfélög hafa skilað sameiginlegri umsögn um frumvarp til laga um siglingavernd. Samtökin telja gríðarlega mikilvægt að vel takist til verka við nánari útfærslu laganna sem ýmsum opinberum aðilum er falin í frumvarpinu, þannig að um leið og framkvæmdin uppfylli lágmarkskröfur alþjóðasamn-inga þá sé hún ekki um of íþyngjandi hvað varðar kostnað eða umstang.
4.3.2004
Félagafrelsi starfsmanna og dómsvald Félagsdóms
Nýlegur dómur Hæstaréttar vekur upp aðkallandi spurningar um félagafrelsi starfsmanna og ekki síður um þörf á endur-skoðun dómsvalds Félagsdóms, en dómar hans eru endan-legir, segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hún segir Hæstarétt af þeirri ástæðu hafa lagt dóm Félagsdóms til grundvallar bótaskyldu starfsmanna, en þar var því hafnað að félaga-frelsisákvæði stjórnarskrár hafi áhrif á túlkun forgangsréttar-ákvæða kjarasamninga. Niðurstaðan er því sú að þeim er jafnað til aðildarskyldu að félagi.
4.3.2004
Hagvöxtur og heilbrigðisútgjöld
Hlutfall heilbrigðisútgjalda af landsframleiðslu fór vaxandi á uppsveifluárunum 1998 til 2002, úr tæpum 7% í tæp 8,5%. Ef heilbrigðisútgjöld hefðu aukist í svipuðum takti og landsfram-leiðslan hefði það að öðru óbreyttu þýtt liðlega 32 milljarða króna lægri útgjöld til heilbrigðismála á tímabilinu en raunin varð.
4.3.2004
Fyrirtækin best til að efla traust á atvinnulífinu
Þrír af hverjum fjórum Svíum telja að eigendur og stjórnendur fyrirtækja séu best til þess fallnir að efla traust almennings á atvinnulífinu. Fimmtungur nefnir stjórnmálamenn. Svíar telja einnig að bestu hugmyndirnar um leiðir til að efla hagvöxt sé að finna hjá atvinnulífinu.
3.3.2004
Upplýsingar um persónuhlífar
Vinnueftirlitið hefur sett upp upplýsingasíðu um persónuhlífar, svo sem öryggishjálma, heyrnarhlífar, öryggisskó, hlífðar-hanska, öndunarfærahlífar o.fl. Fjallað er um lög, reglur, staðla, notkun o.fl. Sjá nánar á vef Vinnueftirlitsins.
2.3.2004
Kjaraviðræður hjá sáttasemjara
Verslunarmenn hafa vísað kjaraviðræðum sínum við SA til ríkissáttasemjara, með vísan í að þær hafi tafist. Gera má ráð fyrir að hafnar verði viðræður við verslunarmenn og fleiri hópa á næstu dögum. Forgangsmál SA að sinni er að ljúka samningum við Starfsgreinasambandið og Flóabandalagið, þar sem lokið hefur verið gerð allra sérsamninga en nokkuð ber á milli um almennar launahækkanir, lífeyrismál o.fl.












