Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

27.2.2004

Stækkun EES: um 1% myndi hyggja á flutning

Eitt prósent íbúa væntanlegra aðildarríkja ESB og EES myndu hyggja á flutning til einhvers af núverandi aðildarríkjum á næstu fimm árum eftir stækkun, ef þeir hefðu frjálsan aðgang að vinnumarkaði ríkjanna, skv. könnun ESB. Reynslan segir að það yrðu færri í raun. ESB segir áhyggjur af miklum fólksflutn-ingum vegna stækkunarinnar ekki eiga við rök að styðjast.

27.2.2004

Ölgerðin fékk viðurkenningu ICEPRO

ICEPRO, samstarf um rafræn viðskipti, veitir í ár Ölgerð Egils Skallagrímssonar hf. ICEPRO-verðaunin fyrir góðan árangur og markvissa stefnu á sviði rafrænna viðskipta.

27.2.2004

Kaupmáttur jókst um 2,5%

Á tímabilinu frá 4. ársfjórðungi 2002 til 4. ársfjórðungs 2003 hækkuðu regluleg laun að meðaltali um 5,1%. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 2,6%. Samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 2,5%. Laun kvenna hækkuðu um 6,1% en karla um 4,7%. Sjá nánar í fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar.

25.2.2004

Stjórnunarhættir hlutafélaga – fundur 3. mars

Háskólinn í Reykjavík og LOGOS standa fyrir morgunverðar-fundi miðvikudaginn 3. mars, þar sem fjallað verður um stjórnunarhætti í hlutafélögum, m.a. út frá aðgerðum framkvæmdastjórnar ESB. Erindi flytja Áslaug Björgvinsdóttir, dósent við lagadeild HR, og dr. Jan Schans Christensen, prófessor í félagarétti við lagadeild Háskólans í Kaupmannahöfn.

25.2.2004

Hádegisfundur um Evrópufélög 2. mars

Þriðjudaginn 2. mars standa Háskólinn í Reykjavík, SA og LOGOS fyrir hádegisfundi um Evrópufélög – nýtt hlutafélaga-form. Erindi flytja dr. Jan Schans Christensen, prófessor í félagarétti við lagadeild Háskólans í Kaupmannahöfn, og Jón Ögmundur Þormóðsson, skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu.

25.2.2004

Einelti á vinnustað

Regnbogabörn hafa hafið samstarf við Brynju Bragadóttur, doktor í heilsusálfræði. Hún heimsækir m.a. vinnustaði og heldur fyrirlestra fyrir starfsfólk. Markmiðin eru m.a. að upplýsa fólk um eðli og einkenni eineltis, og hjálpa fólki að taka á vandanum. Sjá nánar á vef Regnbogabarna.

25.2.2004

ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlar – námskeið 11. mars

Fimmtudaginn 11. mars stendur Staðlaráð fyrir námskeiði um lykilatriði, uppbyggingu og notkun ISO 9000 gæðastjórnunar-staðlanna. Sjá nánar á vef Staðlaráðs. 

24.2.2004

European Business Summit 11.-12. mars

Dagana 11.-12. mars standa ESB, UNICE o.fl. fyrir European Business Summit í Brussel, þar sem forystumenn úr atvinnulífi og stjórnmálum munu fjalla um rannsóknir og nýsköpun sem leið til bættrar samkeppnishæfni álfunnar. Meðal ræðumanna verða Romano Prodi og Dr. Jürgen Strube. Aðildarfyrirtæki SA fá 50% afslátt af þátttökugjaldi.

24.2.2004

Auðvelda leit erlendra samstarfsaðila í starfsmenntum

Landsskrifstofa Leonardó og Mennt eru að undirbúa upp-setningu gagnabanka um íslenska aðila sem hafa áhuga á evrópsku samstarfi undir merkjum Leonardó starfsmennta-áætlunar ESB. Tilgangurinn er að flýta fyrir leit íslenskra sem erlendra aðila að samstarfsaðilum. Sjá nánar á vef Menntar.

20.2.2004

Löng leið erlends starfsfólks

Á málþingi Alþjóðahúss, SA o.fl. um mannauð innflytjenda fjallaði Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, um mikilvægi jákvæðrar umræðu um málefni innflytjenda, langa leið starfsfólks frá löndum utan EES til Íslands, efnahagslegt mikilvægi sæmilega greiðs aðgangs að íslenskum vinnumarkaði o.fl. Ferlið við öflun dvalar- og atvinnuleyfa hér tekur oft um þrjá mánuði.

19.2.2004

Verðmætamat í raforkuflutningskerfinu byggist á arðsemi

Í bókun fulltrúa SA í nefnd iðnaðarráðherra um fyrirkomulag flutnings raforku er áhersla lögð á að mat á verðmæti eigna í flutningskerfinu byggist á arðsemi en ekki stofnkostnaði. Þá er meðal annars  tekið fram að opinber stuðningur við tiltekna raforkunotendur eigi að vera eins gegnsær og unnt sé.

18.2.2004

Vísað til sáttasemjara

Samkomulag hefur náðst um það milli Samtaka atvinnulífsins annars vegar og Starfsgreinasambandsins og Flóabanda-lagsins hins vegar, að vísa kjaraviðræðum aðilanna til ríkissáttasemjara, í því skyni að koma viðræðunum um þá liði sem ekki hafa verið afgreiddir í ákveðnari farveg og skerpa á þeim.

18.2.2004

Danmörk: hálf milljón vill ekki vinna

Einungis fjórðungur Dana á aldrinum 30-66 ára sem ekki eru í vinnu vilja fá vinnu. Samkvæmt könnun dönsku hagstofunnar eru 656.000 Danir á aldrinum 30-66 ára ekki í vinnu. Af þeim vilja hins vegar einungis 147.000 fá vinnu, eða 22%. Áhuginn á að fá vinnu fer lækkandi með hækkandi aldri.

18.2.2004

Mannauður innflytjenda

Alþjóðahús efnir til morgunverðarmálþings um mannauð innflytjenda, í samvinnu við Samtök atvinnulífsins, ASÍ og félagsmálaráðuneytið, föstudaginn 20. febrúar kl. 8-10, í Iðnó.

18.2.2004

Þjónustugjöldin lægst hér á landi

Í nýrri skýrslu GJ Fjármálaráðgjafar fyrir Samtök banka og verðbréfafyrirtækja er borinn saman kostnaður almennings af þjónustu banka og sparisjóða í fjórum löndum, Danmörku, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Árleg gjöld meðalneytanda á Íslandi af þjónustu banka og sparisjóða eru samkvæmt könnuninni 3.172 kr., en 13.205 kr. að jafnaði í hinum löndunum.

17.2.2004

Boðin út verkefni fyrir 54 milljarða

Útboðsþing Samtaka iðnaðarins og Félags vinnuvélaeigenda var haldið á dögunum. Þar var kynnt yfirlit yfir öll helstu útboð verklegra framkvæmda á vegum ríkisins, Reykjavíkurborgar og Kópavogs á þessu ári. Ætla má að alls verði boðin út verkefni fyrir tæpa 54 milljarða á vegum þessara aðila á árinu. Sjá nánar á vef SI.

13.2.2004

Fimm ráð til að varast búðarþjófnaði

Á vef SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu er að finna fimm heilræði til að varast rán og þjófnaði, eða lágmarka áhrif þeirra. Fram kemur að mikilvægast sé að fara rækilega í gegnum þær hættur sem kunna að steðja að og haga skipulagi starfseminar í samræði við það. Sjá nánar á vef SVÞ.

13.2.2004

3,7% atvinnuleysi í janúar

Í janúar sl. voru skráðir 111.880 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 5.088 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá, eða 3,7% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Atvinnu-leysið jókst úr 3,1% frá desember, en var ívið minna en í janúar 2003, þegar það var 3,8%.

12.2.2004

Góðar vísbendingar í ferðaþjónustu

Árið 2003 voru gistinætur á hótelum 10% fleiri en árið áður, eða 880 þúsund í stað 802 þúsund árið 2002. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum. Þá fjölgaði erlendum ferða-mönnum sem fóru um Keflavíkurflugvöll um tæp 30% miðað við janúar 2003. Þetta gefur góðar vísbendingar fyrir árið 2004, að því er fram kemur á vef SAF.

10.2.2004

Lágmarkskröfur með lágmarkstilkostnaði

Mikið fjölmenni var á opnum fundi SA um vernd skipa, farms og farþega, þar sem fjallað var um væntanlega löggjöf um vernd gegn hryðjuverkum o.fl., og áhrif hennar, eftirlit, kostnað, umsýslu o.s.frv. Almenn samstaða var um að uppfylla yrði alþjóðlegar lágmarkskröfur, en jafnframt um að halda yrði kostnaði og umstangi vegna þessa í lágmarki.

10.2.2004

Brotnir hlekkir á vef SA

Vegna tæknilegra breytinga sem gerðar hafa verið á vef Samtaka atvinnulífsins er nokkuð um brotna hlekki („linka“) á vefnum en unnið er að lagfæringu á því. Þá er notendum vefsins bent á að huganlega þurfa þeir að uppfæra hjá sér favourites, sem og hlekki á eigin vefsíðum yfir á vef SA.

6.2.2004

Vernd skipa, farms og farþega - fundur 10. febrúar

„Vernd skipa, farms og farþega“ er yfirskrift morgunfundar SA þriðjudaginn 10. febrúar nk. Þar verður fjallað um væntanlega löggjöf um siglingavernd og áhrif hennar - eftirlit, kostnað, umsýslu o.fl. Málið varðar m.a. hafnir, útflytjendur og skipafélög. Um er að ræða innleiðingu alþjóðlegra skuldbindinga um ráðstafanir til að koma í veg fyrir hryðjuverk o.fl. Sjá nánar

5.2.2004

Einkaneysla byggð á skuldasöfnun

Skuldir heimilanna hafa aukist gríðarlega á undanförnum árum og stefna í 100% af kostnaðarverði íbúðarhúsnæðis. Á sama tíma hefur markaðsverð fasteigna hækkað hraðar en kostnaðarverð, sem er vísbending um að raunverð gæti lækkað, alla vega til lengri tíma litið. Slík þróun setur aukinni einkaneyslu og þar með hagvexti þrengri skorður í náinni framtíð.

5.2.2004

Fyrirtæki hyggjast draga úr fjárfestingum

Nokkur samdráttur virðist framundan í fjárfestingum fyrirtækja. 31% fyrirtækja hyggst fjárfesta minna í ár en á síðasta ári, 47% hyggjast fjárfesta álíka mikið og 22% hyggjast fjárfesta meira en í fyrra, skv. könnun SA. Áberandi mestur samdráttur er framundan í sjávarútvegi en einungis fjármálafyrirtækin hyggjast fjárfesta meira í ár en í fyrra.

5.2.2004

Enn af fjölgun opinberra starfsmanna

Í ýmsum nágrannaríkjum okkar setur vöxtur opinbera geirans samhliða hækkandi meðalaldri sívaxandi þrýsting á efnahagslífið sem líkja má við krísu, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Gústaf segir að ætla megi að Ísland verði í þessari stöðu eftir um áratug, verði engin breyting á þróuninni.

4.2.2004

Skýrslugerð um eftirlitsiðnaðinn

Næstu vikur munu SA, í samstarfi við aðildarfélög, vinna skýrslu um hinn svokallaða eftirlitsiðnað á Íslandi, þar sem m.a. verða lagðar fram tillögur að hagkvæmara fyrirkomu-lagi í einstökum greinum. Áhugasamir um gerð skýrslunnar eru hvattir til að hafa samband.

3.2.2004

Styrkir vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu

Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, í flokkunum 1) ný tækifæri til náms, með sérstakri áherslu á nám í verk- og tækni-greinum, og 2) ferðaþjónusta og útivist. Umsóknarfrestur er til 12. mars og rétt til að sækja um styrki eiga m.a. fyrirtæki og samtök atvinnurekenda og launafólks.

1.2.2004

Opinn fundur starfsmenntaráðs á þriðjudag

Hinn árlegi opni fundur Starfsmenntaráðs verður haldinn þriðjudaginn 3. febrúar kl. 12:00 á Litlu-Brekku, Banka-stræti 2 í Reykjavík. Á dagskrá er kynning á úthlutunum úr starfsmenntasjóði 2003 og áherslur við úthlutanir árið 2004. Sjá nánar um Starfsmenntaráð á vef ráðsins.
RSS-efnisveita SA

Atvinna fyrir alla - smelltu til að sækja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english