Fréttir
31.12.2004
Ár landvinninga í atvinnulífinu
Árið 2004 einkennist af góðum árangri íslensks atvinnulífs og samfélagsins alls í efnalegu tilliti og eftirtektarverðum land-vinningum einstakra fyrirtækja, segir
30.12.2004
Kaupgjaldsskrá fyrir 2005
Á kjaramálavef SA er að finna kaupgjaldsskrá SA, heildar-útgáfu, sem gildir frá 1. janúar 2005. Starfsfólk SA svarar fyrirspurnum frá félagsmönnum og er þeim innan handar ef skýra þarf einstök ákvæði samninganna. Sjá nánar undir liðnum kaupgjaldsskrá á kjaramálasíðu SA.
28.12.2004
Guðlaugur Stefánsson til hagdeildar SA
Guðlaugur Stefánsson hagfræðingur hefur verið ráðinn til starfa á hagdeild Samtaka atvinnulífsins og hefur hann störf í ársbyrjun 2005. Guðlaugur er með M.Sc.-gráðu í hagfræði frá Lundúnaháskóla og hefur undanfarin fimm ár starfað sem yfirhagfræðingur Samkeppnisstofnunar, en þar áður m.a. hjá ESA.
28.12.2004
Hörður Vilberg til SA
Hörður Vilberg hefur verið ráðinn verkefnastjóri á stefnu-mótunar- og samskiptasviði SA og mun hann hefja störf í ársbyrjun 2005. Hörður er með BA-gráðu í sagnfræði og heimspeki frá Háskóla Íslands. Hann hefur undanfarin rúmlega þrjú ár starfað sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu og áður m.a. á fréttastofu Skjás eins.
23.12.2004
Launakönnun KRN til Hagstofunnar
Kjararannsóknarnefnd og Hagstofa Íslands hafa gert með sér samstarfssamning um launakannanir og aðrar vinnumarkaðs-rannsóknir. Frá og með 1. janúar 2005 verður launakönnun Kjararannsóknarnefndar framkvæmd af Hagstofu Íslands og hættir nefndin skrifstofurekstri frá þeim tíma.
20.12.2004
Guðfinna S. Bjarnadóttir rektor nýs sameinaðs háskóla
Dr. Guðfinna S. Bjarnadóttir, núverandi rektor Háskólans í Reykjavík, hefur verið ráðin í starf rektors þegar fyrirhugaðri sameiningu skólans við Tækniháskóla Íslands verður lokið. Í tækni- og verkfræðideild skólans verða kennd rekstrar-verkfræði, fjármálaverkfræði, hugbúnaðarverkfræði og heilbrigðisverkfræði. Einnig er fyrirhuguð stofnun kennslu-fræðideildar og þá verða starfræktar viðskipta- og lagadeild við skólann. Sjá nánar á vef HR.
17.12.2004
Laga þarf félagslega kerfið í ESB að nútímanum
„Án vaxtar, án atvinnusköpunar, án kraftmeira hagkerfis getum við ekki viðhaldið því háa stigi almannatrygginga, félagslegrar verndar... og umhverfisverndar sem við köllum evrópska módelið“ segir Manuel Barroso, nýr forseti framkvæmdastjórnar ESB. Hann segir nauðsynlegt að nútímavæða hið félagslega kerfi aðildarríkjanna.
15.12.2004
Pólland, Slóvakía, Úkraína, Japan og Danmörk?
Útflutningsráð hefur gert skoðanakönnun meðal íslenskra fyrirtækja á því hvert þau myndu vilja að ráðið skipulegði viðskiptasendinefndir árið 2005. Töluverðar líkur eru á að efnt verði til slíkra ferða til þeirra landa sem lentu í efstu sætunum, þ.e. til Póllands, Slóvakíu, Úkraínu, Japan og Danmerkur. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.
13.12.2004
Stefnt að aldurstengdu réttindakerfi hjá lífeyrissjóðunum
SA og ASÍ undirrituðu á dögunum samkomulag um framtíðar-skipulag lífeyriskerfisins og um ráðstöfun á 1% viðbótar-framlagi atvinnurekenda um næstu áramót. Stefnt er að því að tekin verði upp aldurstengd réttindaávinnsla í þeim sjóðum sem ekki eru þegar með slíkt kerfi og að þeir lífeyrissjóðir sem vilja eða þurfa að breyta réttindaávinnslukerfi sínu geti gert það samtímis.
13.12.2004
Lengri vinnuviku, hærri eftirlaunaaldur...
Í mörgum aðildarríkja ESB þarf að hækka eftirlaunaaldur, lengja vinnuvikuna, lækka atvinnuleysisbætur, draga úr stighækkun tekjuskatts og lækka óbeinan launakostnað til þess að auka bæði framboð og eftirspurn á vinnumarkaði og þar með möguleika viðkomandi ríkja til verðmætasköpunar. Þetta kom m.a. fram í máli forseta bankastjórnar Seðlabanka Evrópu á degi samkeppnishæfni.
12.12.2004
2,6% atvinnuleysi í nóvember
Í nóvember voru skráðir 85.377 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.885 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá, eða 2,6% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,7% í október sl. en 3,0% í nóvember í fyrra. Mikil eftirspurn er eftir iðnmenntuðu fólki.
11.12.2004
Gengi sem ekki fær staðist
Núverandi gengi íslensku krónunnar fær ekki staðist og samræmist ekki raunstærðum í hagkerfinu, segir
9.12.2004
Samið við bankamenn
Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli Sambands íslenskra bankamanna og Samtaka atvinnulífsins og gildir hann til 1. október 2008. Samningurinn er nokkuð öðru vísi uppbyggður en aðrir helstu samningar sem gerðir hafa verið á almennum vinnumarkaði á þessu ári, þar sem fyrst og fremst er um að ræða beinar launabreytingar.
9.12.2004
Þúsund fyrirtækjastjórnendur krefjast umbóta innan ESB
Um eitt þúsund fyrirtækjastjórnendur eru saman komnir í Brussel á degi samkeppnishæfni til að krefjast umbóta á því sviði innan ESB. Draga þarf úr reglubyrði, ryðja burt hindrunum á innri markaðnum og auka sveigjanleika á vinnumarkaði, segja UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins. Meðal annars er bent á að erfiðara er að stofna fyrirtæki innan ESB en t.d. vestanhafs auk þess sem þau vaxa hægar.
8.12.2004
Áhyggjur af þróun verðlags – ályktun stjórnar SA
Stjórn Samtaka atvinnulífsins lýsir áhyggjum af verðbólgu og gengi krónunnar og horfum um þróunina á næstunni. 5% hækkun á gengi krónunnar á nokkrum dögum jafngildir 15 milljarða króna tekjulækkun útflutningsgreina á ársgrundvelli. Í ályktuninni er m.a. fjallað um ónógt aðhald í ríkisfjármálum, launaþróun hjá hinu opinbera og samkeppni Íbúðalánasjóðs á lánamarkaði.
8.12.2004
Mæla á kostnað fyrirtækja af lögum og reglum
Evrópusambandið undirbýr nú að mældur verði kostnaður atvinnulífsins af einstökum lögum reglum og er mælingunni ætlað að auðvelda minnkun reglubyrðinnar og þess kostnaðar sem af henni hlýst. Fyrirmyndin er sótt til Hollands, þar sem stjórnvöld stefna að lækkun kostnaðar atvinnulífsins vegna reglubyrði um fjórðung.
6.12.2004
Pólland, Slóvakía, Úkraína, Japan og Danmörk?
Útflutningsráð hefur gert skoðanakönnun meðal íslenskra fyrirtækja á því hvert þau myndu vilja að ráðið skipulegði viðskiptasendinefndir árið 2005. Töluverðar líkur eru á að efnt verði til slíkra ferða til þeirra landa sem lentu í efstu sætunum, þ.e. til Póllands, Slóvakíu, Úkraínu, Japan og Danmerkur. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.
2.12.2004
Af samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja
SA fagna umræðu um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja hér á landi, en hún hefur verið nokkuð fyrirferðarmikil á Evrópu-vettvangi. Í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi minnir Ari Edwald framkvæmdastjóri samtakanna þó á að meginhlutverk fyrirtækja sé að skapa verðmæti og bera arð, en það er jú forsenda almennrar velferðar. Samkeppnishæf starfsskilyrði atvinnulífsins séu mikilvægari en nokkru sinni fyrr nú á tímum hnattvæðingar.
2.12.2004
Hreyfing á vinnumarkaði
Þó nokkur fjölgun starfa virðist framundan á vinnumarkaði, skv. niðurstöðum könnunar SA á ráðningaráformum fyrirtækja. 19% fyrirtækja hyggjast fjölga hjá sér starfsfólki næstu 3-4 mánuði en 7% hyggjast fækka því. Meiri fjölgun virðist fram-undan á höfuðborgarsvæði en á landsbyggðinni. Fyrirtæki í nær öllum greinum boða fjölgun starfsfólks, nema fyrirtæki í útgerð sem boða lítils háttar fækkun.
2.12.2004
Afkomuvæntingar svipaðar milli ára
Afkomuvæntingar fyrirtækja eru mjög svipaðar og fyrir ári síðan, skv. könnun SA. Rúmur helmingur reiknar með svipaðri afkomu á næstu mánuðum, eða 56%, samanborið við 52% fyrir ári síðan. 29% reikna með batnandi afkomu í stað 30% fyrir ári síðan, og 12% með versnandi afkomu, í stað 16%. Bjartsýnin er minni á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæði og horfur bjartastar meðal verktaka en dekkstar í sjávar-útvegi.












