Fréttir
29.8.2003
Hvernig næst betri árangur í opinberum stofnunum?
Um þetta verður fjallað á morgunmálþingi á Grand Hótel, miðvikudaginn 3. september kl. 8 til 10:30. Prófessor við Harvard-háskóla flytur fyrirlestur og skrifstofustjóri hjá Ríkisendurskoðun kynnir niðurstöðu úttektar á árangurs-stjórnun í ríkisrekstri. Sjá nánar á vef Stofnunar stjórnsýslufræða við HÍ.
28.8.2003
Klasar og samkeppnishæfni fyrirtækja og svæða
26.8.2003
Vika símenntunar 7.-13. september
Vika símenntunar verður haldin dagana 7.-13. september nk. Málþing, sérstakur símenntadagur í fyrirtækjum o.fl. er meðal þess sem verður á döfinni, en þema vikunnar að þessu sinni er „fjarnám og aðrar óhefðbundnar leiðir til náms.“ Sjá nánar á heimasíðu vikunnar.
22.8.2003
Námskeið: Hefur þú hug á útrás?
Fimmtudaginn 4. september nk. stendur Útflutningsráð fyrir námskeiði sem ætlað er stjórnendum og starfsmönnum fyrirtækja sem eru að hefja útflutning. Markmiðið er að veita innsýn í ferli útflutnings, hvaða atriði beri að skoða þegar ákvörðun er tekin og hvar leita megi upplýsinga og aðstoðar. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.










