Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

27.6.2003

Náið verði fylgst með áhrifum á EES-samninginn

Í áliti sínu til ráðherraráðs EFTA leggur ráðgjafarnefnd samtakanna áherslu á mikilvægi þess að EFTA fylgist grannt með áhrifum væntanlegrar stjórnarskrár ESB á EES-samninginn og hefji sem fyrst undirbúning viðbragða, til að sem best verði áfram staðinn vörður um hagsmuni EFTA-ríkjanna.

25.6.2003

Starfsmenntaverðlaunin 2003 – tilnefningar óskast

Starfsmenntaverðlaunin verða afhent í fjórða skiptið í september nk. og er óskað eftir tilnefningum í flokkum fyrirtækja og félagasamtaka, skóla og fræðsluaðila og í opnum flokki. Frestur til þess að tilnefna rennur út 10. ágúst. Sjá nánar á heimasíðu Menntar.

24.6.2003

Mjög brýnt að samkeppnislögin verði endurskoðuð

SA telja það mjög brýnt að samkeppnislögin verði endurskoðuð, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, í samtali við Fréttablaðið. Hann segir m.a. að viðmiðunarmörk vegna samruna séu hér alltof lág og að verulegir ágallar hafi komið fram á réttarfari samkeppnis-mála.

24.6.2003

Tekjulækkun á ári sem svarar mánaðarveltu

Gengishækkun krónunnar kemur illa við allar útflutnings-greinar og greinar í erlendri samkeppni. Á fundi Samtaka fiskvinnslustöðva á dögunum var fjallað um sérstaka erfiðleika rækjuvinnslunnar, en á einu og hálfu ári hafa tekjur greinarinnar dregist saman um sem svarar eins mánaðar veltu á ári.

23.6.2003

3,2% kaupmáttaraukning launa

Á tímabilinu frá 1. ársfjórðungi 2002 til 1. ársfjórðungs 2003 hækkuðu regluleg laun að meðaltali um 5,1%. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 1,9% og samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 3,2% á tímabilinu. Sjá nánar í fréttabréfi Kjara-rannsóknarnefndar.

20.6.2003

Forsetaskipti hjá UNICE

Þann 1. júlí verða forsetaskipti hjá UNICE, Evrópu-samtökum atvinnulífsins, en þá lætur George Jacobs af embætti og við tekur Jürgen F. Strube. Strube er doktor í lögum og er m.a. stjórnarformaður þýsku viðskiptasam-steypunnar BASF.

19.6.2003

Fundur um hátt gengi krónunnar

Þriðjudaginn 24. júní halda Samtök iðnaðarins morgun-verðarfund á Grand Hótel til að ræða um hátt gengi íslensku krónunnar. Spurt verður um neikvæð áhrif á útflutning, atvinnustig og hagvöxt, hvað sé til ráða o.fl. Sjá nánar á heimasíðu SI.

19.6.2003

Góð reynsla af einkarekstri fangelsa

Samkeppni milli fangelsa, í opinberum rekstri og í einkarekstri, hefur leitt til betri þjónustu og lægri kostnaðar, auk þess að vinna gegn almennri andstöðu kerfisins við breytingar, að sögn yfirmanns fangelsismála í breska innanríkisráðuneytinu. Hann segir einkareknu fangelsin meðal þeirra bestu í landinu.

16.6.2003

Stuðningur við stjórnarskrárdrög ESB

UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, hafa lýst yfir stuðningi við drög að fyrstu sameiginlegu stjórnarskrá ESB. Aukin áhersla á samkeppnishæfni og formleg viðurkenning á hlutverki aðila vinnumarkaðarins eru meðal þess sem samtökin fagna.

13.6.2003

Vaxandi hlutfall langtímaatvinnulausra

Í lok maí hafði 1.601 einstaklingur verið á atvinnuleysis-skrá í 6 mánuði eða lengur, eða 27,6% af heildarfjölda atvinnulausra. Þetta hlutfall var 20,3% í lok maí 2002. Sjá nánar á heimasíðu Hagstofu Íslands.

13.6.2003

Minnkandi atvinnuleysi

Samkvæmt mælingum Vinnumálastofnunar jafngiltu skráðir atvinnuleysisdagar í maí 3,6% atvinnuleysi á landinu öllu. Það er lækkun úr 3,9% í apríl, en atvinnuleysið er þó enn mun hærra en fyrir ári síðan, þegar það mældist 2,5%.

12.6.2003

Íslendingar reiðubúnari að taka þátt í kostnaði við menntun sem tryggt getur þeim störf

Íslendingar eru reiðubúnari til að taka þátt í kostnaði við menntun sem tryggt getur þeim störf, en almennt gildir um EES-borgara. Nær helmingur EES-borgara, eða 47%, er ekki reiðubúinn að taka þátt í slíkum kostnaði, en hérlendis er þetta hlutfall 38%.

11.6.2003

Ráðstefna um vinnuvistfræði

Vinnuvistfræðifélag Íslands stendur fyrir ráðstefnu dagana 11.-13. ágúst nk., m.a. með stuðningi SA. Innlendir og erlendir fyrirlesarar munu fjalla um streitu, þjálfun, áhættumat, fjárhagslegan ávinning af vinnuvernd o.fl. Þá verður kynning á vörum og þjónustu og verðlauna-afhending, sem tilnefna má fyrirtæki og einstaklinga til.

7.6.2003

Mæla með auknum hlut einkaaðila

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir gagnlegt að auka hlut einkaaðila við að veita almannaþjónustu og efla tengsl þjónustugjalda og raunverulegs kostnaðar við þjónustuna. Í samtali við Fréttablaðið segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, þetta að mestu í anda þess sem SA hafi boðað, en undanskilur þjónustugjöld í heilbrigðiskerfinu.

5.6.2003

Mælt með einu þrepi virðisaukaskatts

Alþjóðavæðingin knýr á um lækkun VSK hlutfalls í Svíþjóð og öðrum háskattalöndum. Nýleg sænsk skýrsla mælir með afnámi undanþága til að auðvelda lækkun almenna hlutfallsins. Fáar undanþágur stuðla að lægri jaðarsköttum og minnka líkur á bjöguðum fjárfestinga- og neysluákvörðunum, sem hafa sóun í för með sér.

5.6.2003

Sóknarfæri í Evrópusjóði

Samið hefur verið um framlengingu þróunarsjóðs EFTA með all nokkrum breytingum, en m.a. verður sjóðnum nú heimilt að styrkja verkefni sem lúta að nýtingu og stjórn náttúruauðlinda. Íslensk fyrirtæki geta boðið í verkefnin, líkt og í önnur verkefni sem boðin eru út innan EES, sem norsk fyrirtæki hafa hingað til verið duglegri við. Íslensk fyrirtæki staðsett innan ESB hafa sótt styrki í slíka sjóði.

5.6.2003

Skólagjöld og rekstrarform háskóla

Að sögn OECD er lítil kostnaðarþátttaka nemenda helsta ástæða fremur langs námstíma íslenskra háskólanema, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir suma stjórnendur við ríkisháskóla telja afar brýnt að losna undan hamlandi og ósveigjanlegu lagaumhverfi hins opinbera vinnumarkaðar.

4.6.2003

Rangfærslur um tryggingamál sjómanna

Í frétt í Morgunblaðinu þriðjudaginn 3. júní sl. er greint frá því að Páll Steingrímsson, formaður Sjómannadagsráðs Akureyrar, hafi haldið því fram í ávarpi sínu á sjómanna-daginn að í tryggingamálum standi sjómenn flestum öðrum starfsstéttum langt að baki. Sannleikurinn er hins vegar sá að slysatrygging sjómanna er mun betri en almennt gildir um aðra launþega í landinu.

3.6.2003

Fyrirtæki minnt á fræðslusjóði atvinnulífsins

Á árinu 2000 gerðu Samtök atvinnulífsins samninga við helstu viðsemjendur um stofnun sérstakra fræðslusjóða á almennum vinnumarkaði. Rétt er að minna fyrirtæki á að líkt og launþegar geta þau sótt um styrki til þessara sjóða vegna starfsmenntamála.

3.6.2003

Leiðrétting

Umhverfis- og heilbrigðisstofa Reykjavíkur hefur gert athugasemd við upphæð lögboðinna eftirlits- og leyfisgjalda sem stofnunin leggur á atvinnulífið, eins og hún er sett fram í töflu í skýrslu SA, „Bætum lífskjörin!” Misskilnings gætti við úrvinnslu gagna hjá SA og er beðist velvirðingar á því.

1.6.2003

Á ekki og getur ekki stýrt uppbyggingu atvinnulífsins

SA vilja efla Samkeppnisstofnun til góðra verka og hafa stutt breytingar sem gera stofnuninni betur kleift að vinna gegn ólögmætu samráði fyrirtækja, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir það hins vegar ekki hlutverk Samkeppnisstofnunar að stýra uppbyggingu atvinnulífsins.
RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english