Fréttir
12.12.2000
Einkavæðingu verði hraðað
Stjórn Samtaka atvinnulífsins ályktaði á fundi sínum í dag að hraða bæri einkavæðingu opinberra fyrirtækja í fjarskipta-, fjármála- og orkugeira. Stjórnin gagnrýnir vöxt ríkisútgjalda samkvæmt nýsamþykktum fjárlögum. Hún hvetur til ítrasta aðhalds hjá fyrirtækjum og opinberum aðilum til þess að hægt sé að tryggja markmið kjarasamninga, efnahagslegan stöðugleika og bætt lífskjör.
Sjá nánar
9.12.2000
Reglur ríkisskattstjóra þrengja heimildir laga um kaupréttarsamninga
SA vekja í umsögn til Alþingis athygli á reglum, sem ríkisskattstjóri setti í júlí og þrengja heimildir laga um kauprétt starfsmanna að hlutabréfum í fyrirtækjum. Samtökin benda á að í reglunum svífi andi launakerfa opinberra starfsmanna yfir vötnunum og þær komi í veg fyrir að starfsmönnum, sem skari fram úr vegna hæfni, getu, frumkvæðis, ástundunar eða hugmyndaauðgi, sem umbunað sérstaklega með hærri kaupréttarsamningi en öðrum.
Sjá nánar
7.12.2000
Næstu mánuðir skipta sköpum
Við þær aðstæður sem nú eru, að næstu örfáir mánuðir skipta sköpum um framhald verðstöðugleika og þróun efnahagslífs, er rétt að allir aðilar sýni aðhald og fresti og endurmeti þörf á hækkunum. Það á jafnt við verðhækkanir einkafyrirtækja sem gjaldskrár- og skattahækkanir ríkis og sveitarfélaga. Það hefur í raun verið boðið upp á á þjóðarsátt um það markmið að koma í veg fyrir kollsteypu í íslensku efnahagslífi - hefur einhver efni á að sleppa því tækifæri? skrifar Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs SA.
Sjá nánar
4.12.2000
Hindra samningar kennara framþróun starfsmenntunar?
Kjarasamningar kennara eru hemill á samstarf skóla og atvinnulífs um starfsmenntun, skrifar Ari Edwald í Morgunblaðið í gær. Hann segir að kennurum ætti að vera kappsmál að auka samkeppni í menntakerfinu.
Sjá nánar











