Fréttir
12.12.2000
Einkavæðingu verði hraðað
Stjórn Samtaka atvinnulífsins ályktaði á fundi sínum í dag að hraða bæri einkavæðingu opinberra fyrirtækja í fjarskipta-, fjármála- og orkugeira. Stjórnin gagnrýnir vöxt ríkisútgjalda samkvæmt nýsamþykktum fjárlögum. Hún hvetur til ítrasta aðhalds hjá fyrirtækjum og opinberum aðilum til þess að hægt sé að tryggja markmið kjarasamninga, efnahagslegan stöðugleika og bætt lífskjör.
Sjá nánar
9.12.2000
Reglur ríkisskattstjóra þrengja heimildir laga um kaupréttarsamninga
SA vekja í umsögn til Alþingis athygli á reglum, sem ríkisskattstjóri setti í júlí og þrengja heimildir laga um kauprétt starfsmanna að hlutabréfum í fyrirtækjum. Samtökin benda á að í reglunum svífi andi launakerfa opinberra starfsmanna yfir vötnunum og þær komi í veg fyrir að starfsmönnum, sem skari fram úr vegna hæfni, getu, frumkvæðis, ástundunar eða hugmyndaauðgi, sem umbunað sérstaklega með hærri kaupréttarsamningi en öðrum.
Sjá nánar
7.12.2000
Næstu mánuðir skipta sköpum
Við þær aðstæður sem nú eru, að næstu örfáir mánuðir skipta sköpum um framhald verðstöðugleika og þróun efnahagslífs, er rétt að allir aðilar sýni aðhald og fresti og endurmeti þörf á hækkunum. Það á jafnt við verðhækkanir einkafyrirtækja sem gjaldskrár- og skattahækkanir ríkis og sveitarfélaga. Það hefur í raun verið boðið upp á á þjóðarsátt um það markmið að koma í veg fyrir kollsteypu í íslensku efnahagslífi - hefur einhver efni á að sleppa því tækifæri? skrifar Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs SA.
Sjá nánar
4.12.2000
Hindra samningar kennara framþróun starfsmenntunar?
Kjarasamningar kennara eru hemill á samstarf skóla og atvinnulífs um starfsmenntun, skrifar Ari Edwald í Morgunblaðið í gær. Hann segir að kennurum ætti að vera kappsmál að auka samkeppni í menntakerfinu.
Sjá nánar
27.11.2000
Tilflutningur verkefna ekki rök fyrir hækkun á skattbyrði
Þau meginrök hafa verið færð fyrir hækkuðu útsvarshlutfalli að kostnaður vegna tilflutnings verkefna frá ríki til sveitarfélaga hafi orðið meiri en ráð var fyrir gert. Tilflutningur tekna til samræmis við tilflutning verkefna getur þó ekki réttlætt hækkun á skattbyrði í heild, segir í umsögn SA um stjórnarfrumvarp til breytingar á lögum um tekju- og eignarskatt.
Sjá nánar
20.11.2000
Lög um aðild starfsmanna að stjórnum fyrirtækja ekki líkleg til að bæta stjórnun
Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins telja að lagaboð um að starfsmenn í stærri fyrirtækjum skuli eiga aðild að stjórn þeirra sé ekki líklegt til að bæta stjórnun í íslenskum fyrirtækjum. Samtökin telja þingmannafrumvarp um þetta efni bæði óviðeigandi og óaðgengilegt og benda á að hugmyndir í þessa veru hafi hvorki verið settar fram á vinnumarkaði né kröfur um íhlutun í stjórn fyrirtækja settar fram af hálfu stéttarfélaga í kjaraviðræðum.
Sjá nánar
12.10.2000
Stórauka þarf framleiðni á næstu árum
Ari Edwald á ársfundi SF:
Ari Edwald framkvæmdastjóri SA sagði á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva að sem haldinn var í dag að brýnasta verkefni íslensks efnahagslífs á næstu árum sé að stórauka framleiðni. Hann sagði að gera verði ráð fyrir því að um 10 þúsund manns vanti á vinnumarkaðinn árið 2010 ef hagvöxtur verði 3%.
Sjá nánar
12.10.2000
Ályktun ársfundar Samtaka atvinnulífsins
Samtök atvinnulífsins telja að á næstu mánuðum ráðist hvort tekst að tryggja stöðugt rekstrarumhverfi og jafnvægi í efnahagslífinu til næstu ára.
Sjá nánar
11.10.2000
Hugur í íslenskum atvinnurekendum
Finnur Geirsson formaður SA sagði á ársfundi samtakanna sem haldinn var í dag, að það sé hugur í íslenskum atvinnurekendum. "Þeir hafa fært sér vel í nyt tímabil stöðugs rekstrarumhverfis fram til þessa og sótt fram af miklum krafti til hagsbóta fyrir landsmenn. Góður árangur til framtíðar veltur þó á því að okkur takist að tryggja bæði jafnvægi í efnahagslífinu og hagstæð samkeppnisskilyrði að öðru leyti," sagði Finnur
Sjá erindi











