Fréttir
16.5.2012
Best fyrir Ísland ađ gjaldeyrishöftum verđi aflétt - gögn frá opnum fundi SA
Samtök atvinnulífsins efndu til opins fundar í morgun um mikilvægi þess að gjaldeyrishöft verði afnumin sem fyrst. Mikill áhugi er á málinu innan íslensks atvinnulífs og var salurinn á Hótel Nordica fullskipaður. Samtök atvinnulífsins telja það brýnasta hagsmunamál Íslendinga, að höftin verði afnumin sem fyrst þar sem þau valda þjóðinni sífellt meiri skaða. Áætlun SA, sem hefur verið birt á vef samtakanna, gerir ráð fyrir að gjaldeyrishöftin falli niður í árslok og ráðist verði strax í sérstakar mótvægisaðgerðir til að takmarka tjón skuldsettra heimila af hugsanlegu gengisfalli krónunnar. Kynningar frummælenda frá fundinum hafa nú verið birtar á vef SA ásamt stuttri samantekt.
16.5.2012
Fundur SA um afnám gjaldeyrishafta
Opinn fundur Samtaka atvinnulífsins um afnám gjaldeyrishaftanna fór fram í morgun fyrir fullum sal á Hilton Reykjavík Nordica og ljóst að mikill áhugi er á málinu innan íslensks atvinnulífs. Fjallað verður um fundinn hér á vef SA síðar í dag en Samtök atvinnulífsins telja það brýnasta hagsmunamál Íslendinga, að höftin verði afnumin sem fyrst þar sem þau valda þjóðinni sífellt meiri skaða. Áætlun SA, sem hefur verið birt á vef samtakanna, gerir ráð fyrir að gjaldeyrishöftin falli niður í árslok og ráðist verði í sérstakar mótvægisaðgerðir til að takmarka tjón skuldsettra heimila af hugsanlegu gengisfalli krónunnar.
14.5.2012
Opinn fundur um afnám gjaldeyrishafta á miđvikudag - skráning stendur yfir
Samtök atvinnulífsins efna til opins morgunfundar um afnám gjaldeyrishafta á Hilton Reykjavík Nordica, miðvikudaginn 16. maí kl. 8.30-10. Á fundinum verður m.a. rætt um nýja áætlun SA um afnám gjaldeyrishaftanna en Samtök atvinnulífsins telja það brýnasta hagsmunamál Íslendinga, að höftin verði afnumin sem fyrst þar sem þau valda þjóðinni sífellt meiri skaða. Skráning á fundinn er nú í fullum gangi en skráningu lýkur á morgun.
Áætlun SA, sem hefur verið birt á vef samtakanna, gerir ráð fyrir að gjaldeyrishöftin falli niður í árslok og ráðist verði í sérstakar mótvægisaðgerðir til að takmarka tjón skuldsettra heimila af hugsanlegu gengisfalli krónunnar.











