Fréttir - 

19. maí 2016

Virkir fjárfestar eða stofuskraut?

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Virkir fjárfestar eða stofuskraut?

Samtök atvinnulífsins, Nasdaq Iceland og Viðskiptaráð Íslands boða til morgunverðarfundar á Icelandair hótel Reykjavík Natura fimmtudaginn 26. maí kl. 8.30-10.00 um samspil lífeyrissjóða og almennra fjárfesta á hlutabréfamarkaði.

Páll Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland fjallar um forsendur heilbrigðs hlutabréfamarkaðar, Helga Hlín Hákonardóttir, ráðgjafi hjá Strategíu, ræðir um stofnanafjárfestar sem virka hluthafa og Heiðar Guðjónsson, fjárfestir og hagfræðingur fjallar um almenna fjárfesta við hlið stofnanafjárfesta.

Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA og formaður stjórnar Gildis lífeyrissjóðs, Þóranna Jónsdóttir, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna taka þátt í umræðum að loknum erindum ásamt frummælendum.

Fundarstjóri er Marta Guðrún Blöndal, lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands.

Vinsamlegast skráið þátttöku á www.vi.is

Verð: 5.900 kr. Innifalinn er morgunverður frá kl. 8.00 og eintak af Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, 5. útgáfa.

Fundurinn fer fram í þingsölum 2 og 3.

Samtök atvinnulífsins