Fréttir - 

25. september 2014

Verðbólgan undir markmiði í átta mánuði samfleytt

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Verðbólgan undir markmiði í átta mánuði samfleytt

Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,12% í september frá fyrri mánuði og er ársverðbólgan 1,8% og hefur ekki mælst minni frá ársbyrjun 2011. Ef hækkanir á húsnæði eru undanskildar hefur verðlag hækkað um 0,4% sl. 12 mánuði. Verðbólga vöru- og þjónustuliða er því lítil sem engin og fara verður tæpan áratug aftur í tímann til að finna minni hækkun þeirra. Á síðastliðnum þremur mánuðum hefur verðlag lækkað um 0,05% sem jafngildir 0,2% lækkun verðlags á heilu ári.

V1.jpg
Heimild: Hagstofa Íslands

Verðlækkunin í september stafar fyrst og fremst af mikilli lækkun flugfargjalda. Yfirleitt hækkar verð í september vegna áhrif útsöluloka. Lækkun verðlags nú er óvenjuleg en verður að leita aftur til ársins 1992 til að finna fordæmi fyrir lækkun verðlags í septembermánuði. Þetta eru góðar fréttir fyrir heimili og fyrirtæki. Stöðugt verðlag er eitt meginmarkmið gildandi kjarasamninga og það ásamt  hófstilltum launahækkunum stuðlar að betri lífskjörum.

 V2.jpg

Heimild: Hagstofa Íslands, útreikningar efnahagssviðs SA

Háir raunvextir halda aftur af fjárfestingu atvinnulífsins

Verðbólgan hefur verið undir markmiði Seðlabankans í átta mánuði samfleytt. Stýrivextir bankans hafa hins vegar haldist óbreyttir í 22 mánuði eða frá lokum síðasta vaxtahækkunartímabils í nóvember 2012. Hjöðnun verðbólgu hefur leitt til aukins peningalegs aðhalds og hafa virkir raunstýrivextir, sem nú eru 3,6%, hækkað um rúmlega 2% á síðastliðnum 12 mánuðum.  

V3.jpg

Heimild: Útreikningar efnahagssviðs SA, Hagstofa Íslands og Seðlabanki Íslands

Þróun verðbólgu á árinu hefur verið afar jákvæð en frá upptöku verðbólgumarkmiðs hefur hún haldist mest þrettán mánuði samfleytt undir markmiði, á árunum 2002-2003. Samfara lágri verðbólgu hafa raunvextir hækkað.

Hagvöxtur á fyrri helmingi ársins var lítill og vísbendingar eru um að kraftur hagkerfisins sé minni en spár hafa gert ráð fyrir. Hagvöxtur á fyrstu sex mánuðum ársins var 0,6% og einkum knúinn af vexti í einkaneyslu, en á sama tíma var vöxtur fjárfestingar lítill. Auk hægari hagvaxtar en búist var við  breyttist samsetning hans til hins verra þannig að hann var knúinn af aukinni einkaneyslu í  stað þess að vera knúinn af auknum útflutningi eins og á síðasta ári.

Við blasir að háir raunvextir hafa takmarkandi áhrif á fjárfestingar. Á sama tíma hefur styrking raungengis undanfarin misseri áhrif á neyslumynstur heimila og stuðlar að auknum innflutningi. Seðlabankinn verður að gæta þess að kæfa ekki fjárfestingarvilja atvinnulífsins með sligandi fjármagnskostnaði þótt markmið hans sé að halda verðbólguvæntingum innan markmiðsins.

Samtök atvinnulífsins