Vinnumarkaður - 

20. maí 2015

Um meintar rangfærslur SA í samningaviðræðum við Flóabandalagið, VR og LÍV

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Um meintar rangfærslur SA í samningaviðræðum við Flóabandalagið, VR og LÍV

Síðastliðinn föstudag, þann 15. maí, lögðu Samtök atvinnulífsins fram skriflega tillögu gagnvart Flóabandalaginu og VR um tilteknar breytingar á vinnutímaákvæðum kjarasamninga og hækkanir launa og launataxta gegn þeim breytingum. Þessar tillögur eru settar fram til að gera SA kleift að koma að einhverju leyti til móts við miklar kröfur verkalýðsfélaganna um launahækkanir í yfirstandandi samningalotu. Tillögur SA eru einnig þess eðlis að þær mæta kröfum um aukið vægi grunnlauna í heildarlaunum og fela þannig í sér meiri ávinning til þeirra sem taka laun samkvæmt launatöxtum og þeirra sem ekki fá álagsgreiðslur í sínum reglulegu launum.

Síðastliðinn föstudag, þann 15. maí, lögðu Samtök atvinnulífsins fram skriflega tillögu gagnvart Flóabandalaginu og VR um tilteknar breytingar á vinnutímaákvæðum kjarasamninga og hækkanir launa og launataxta gegn þeim breytingum. Þessar tillögur eru settar fram til að gera SA kleift að koma að einhverju leyti til móts við miklar kröfur verkalýðsfélaganna um launahækkanir í yfirstandandi samningalotu. Tillögur SA eru einnig þess eðlis að þær mæta kröfum um aukið vægi grunnlauna í heildarlaunum og fela þannig í sér meiri ávinning til þeirra sem taka laun samkvæmt launatöxtum og þeirra sem ekki fá álagsgreiðslur í sínum reglulegu launum.

Hugmyndum SA um breytingar á vinnutímaákvæðum má skipta í þrennt.

Virkur vinnutími:
Vinnutími yrði miðaður við virkan vinnutíma, en ekki vinnutíma að meðtöldum neysluhléum (kaffitímum). Kaffitímarnir eru yfirleitt 35 mínútur á dag á dagvinnutímabili, eða 2 stundir og 55 mínútur á viku. Tillaga SA var sú að þessi ákvæði um 35 mínútna kaffihlé á dag féllu brott og dagvinnutími styttist samsvarandi. Hætt yrði að tala um 40 stunda vinnuviku og þess í stað talað um 37 stunda vinnuviku. Ef vilji væri til þess að hafa fastákveðin kaffihlé þá væri slíkt samkomulagsatriði á hverjum vinnustað fyrir sig og lengdist dagleg viðvera samsvarandi. Þessu fylgdi að deilitala, sem deilt er í mánaðarlaun til að finna út tímakaup lækkaði úr 173,33 hjá verkafólki í 160. Við það hækkaði tímakaupið um 8,3% en á móti yrði greitt fyrir færri tíma þannig að föst mánaðarlaun væru óbreytt. Mikilvægt er að gera þessa breytingu nú á tímum alþjóðlegs og norræns samanburðar því þar er ávallt miðað við virkan vinnutíma og tímakaup reiknað út frá þeim grundvelli.

Tvískipt yfirvinnuálag.

Talning yfirvinnustunda miðuðust við mánaðarlegt uppgjör. Yfirvinnuálag fyrir fyrstu 22 yfirvinnustundirnar í mánuði (5 stundir á viku) yrði 40% á tímakaup m.v. deilitöluna 160 (51,7% m.v. deilitöluna 173,33). Yfirvinnuálag yrði óbreytt, 1,0385% af mánaðarlaunum (80% m.v. deilitöluna 173,33)  fyrir vinnustundir umfram 182 á mánuði.

Sveigjanlegra dagvinnutímabil.
Lagt var til að dagvinnutímabil yrði almennt frá 06:00-19:00. Sama gilti um álagslaus tímabil í vaktavinnusamningum.

Endurgjald fyrir breytingarnar.
Gegn ofangreindum breytingum á yfirvinnuálagi og dagvinnu- og álagstímabilum buðu SA 9% hækkun á grunnlaunum kjarasamninga. Þar til viðbótar buðu SA að persónubundin regluleg heildarmánaðarlaun undir kr. 500.000 hækkuðu um 7,0% vegna þessara breytinga.

Skaðleysi í jaðartilvikum.
Tillögu SA fylgdi einnig ákvæði sem tryggði að enginn lækkaði í launum af völdum þessara breytinga og væru a.m.k. tryggðar þær lágmarkshækkanir sem í samningnum fælist að öðru leyti.

Vaktavinna.
Skoða þyrfti vaktavinnusamninga sérstaklega til að aðlaga þá breyttri deilitölu og lengra álaglausu tímabili.

Á meðfylgjandi mynd sjást áhrif tilboðs SA á mánaðartekjur launamanns eftir því hversu mikil yfirvinna er unnin í mánuði. Sá sem vinnur enga yfirvinnu fær fulla 9% hækkun á mánaðarlaun sín en það hlutfall fer lækkandi með hverri yfirvinnustund þar til 22 yfirvinnustundamarkinu er náð og verður lægst 5,8%. Hlutfallið fer síðan hækkandi á ný með enn frekari yfirvinnu og verður t.d. 7,4% ef yfirvinnutímar mánaðarins eru 40.

undefined

Sameiginleg yfirlýsing Flóabandalagsins, VR og LÍV í dag í tengslum við þetta tilboð er ekki boðleg, þar sem því er haldið fram að SA hafi stundað rangfærslur og að „margt launafólk fái lítið sem ekkert út úr tilboðinu“. Sú staðhæfing á sér enga stoð.

Tillögur SA eiga sér norrænar fyrirmyndir og ef þær gengju eftir yrði samanburður á vinnutíma, tímakaupi og grunnlaunum eðlilegri og sambærilegri en nú er. Tilboð SA kemur þeim tekjulægstu betur en öðrum og hefur þann eiginleika að draga úr kynbundnum launamun. Yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna aðildarfélaga ASÍ fengju umtalsverðan ávinning með umræddum breytingum. Tillögur SA voru enn í mótun milli aðila og umræðum um þær hvergi lokið, þar með talið að varpa ljósi á áhrif breytinga á einstaka hópa og bregðast hugsanlega við þeim.

Samtök atvinnulífsins