1 MIN
Tímabær lækkun stýrivaxta
Samtök atvinnulífsins fagna tímabærri vaxtalækkun en peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Skilaboð Seðlabankans um skilyrði til að lækka vexti enn frekar er jafnframt þörf áminning til aðila vinnumarkaðarins.

Í yfirlýsingu peningastefnunefndar segir:
„Framvinda nafnvaxta ræðst eins og alltaf af þróun eftirspurnar og verðbólgu. Verði launahækkanir í komandi kjarasamningum í samræmi við verðbólgumarkmið gætu skapast forsendur fyrir frekari lækkun nafnvaxta. Miklar launahækkanir og vöxtur eftirspurnar gætu hins vegar grafið undan nýfengnum verðstöðugleika og valdið því að hækka þurfi vexti á ný.“
Tengt efni: