Fréttir - 

05. janúar 2018

Sáttmáli gegn einelti, áreitni og ofbeldi

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Sáttmáli gegn einelti, áreitni og ofbeldi

Samtök atvinnulífsins hafa útbúið sáttmála gegn einelti, áreitni og ofbeldi og hvetja starfsmenn og stjórnendur fyrirtækja til að gera gildi hans hluta af daglegum rekstri. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins kynnti sáttmálann á blaðamannafundi í Húsi atvinnulífsins í dag.

Samtök atvinnulífsins hafa útbúið sáttmála gegn einelti, áreitni og ofbeldi og hvetja starfsmenn og stjórnendur fyrirtækja til að gera gildi hans hluta af daglegum rekstri. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins kynnti sáttmálann á blaðamannafundi í Húsi atvinnulífsins í dag.

Samtök atvinnulífsins hafa útbúið veggspjöld með sáttmálanum en þau er hægt að hengja upp í kaffistofum eða á göngum fyrirtækja til að minna á mikilvægi þess að tryggja vellíðan á vinnustöðum, öryggiskennd og góðan starfsanda.

Í sáttmálanum sem má nálgast hér að neðan eru dregin fram gildi sem geta minnkað  hættu á að einelti, áreitni eða ofbeldi á vinnustöðum eigi sér stað. Með því að hafa þau í heiðri stuðla starfsmenn að heilbrigðri vinnustaðamenningu.

Veggspjald SA má nálgast hér (PDF)

Það má einnig nálgast í Húsi atvinnulífsins og fyrirtæki geta óskað eftir því að fá það sent í pósti með því að senda tölvupóst á sa@sa.is.

Sjá einnig á www.sa.is/sattmali

SÁTTMÁLI GEGN EINELTI, ÁREITNI OG OFBELDI

Öryggiskennd og góður starfsandi skipta sköpum fyrir vellíðan starfsmanna.
Á vinnustaðnum eigum við góð samskipti og virðum eftirfarandi sáttmála.

  • Við þekkjum stefnu og viðbragðsáætlun fyrirtækisins gegn einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi og erum meðvituð um skyldur okkar.
  • Við líðum ekki einelti, áreitni eða ofbeldi, beitum því ekki og vitum að meðvirkni með geranda getur skaðað starfsmenn og vinnustað okkar.
  • Við berum sameiginlega ábyrgð á vinnuumhverfinu og leggjum okkar af mörkum til að bæta það enn frekar.
  • Við erum ólík, með mismunandi bakgrunn og lífsskoðanir, en sýnum hvert öðru virðingu í öllum samskiptum.
  • Við skiljum að upplifun af samskiptum er mismunandi og gerum ekki lítið úr viðbrögðum og tilfinningum annarra.
  • Við ræðum um framkomu sem okkur mislíkar og tökum upp varnir fyrir þá sem brotið er gegn.
  • Við tökum tillit til ábendinga um að við getum bætt framkomu okkar.
  • Við sýnum öðrum kurteisi og virðingu í öllum samskiptum.

Ein meginskylda vinnuveitanda er að tryggja starfsmönnum öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi. Fyrirtækjum ber að gera áhættumat til að greina þá áhættu sem getur verið fyrir hendi. Í matinu skal koma fram til hvaða aðgerða fyrirtækið hyggst grípa til komi fram kvörtun, ábending eða rökstuddur grunur um brot.

Sjá nánar:

Fræðsluefni á Vinnumarkaðsvef SA

Dæmi:

Stefna og viðbragðsáætlun SA gegn einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi (PDF)

Samtök atvinnulífsins