Fréttir - 

05. júní 2015

Nýjar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Nýjar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja

Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja eru nú gefnar út í fimmta skipti á Íslandi. Útgáfuaðilar eru líkt og áður Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Nasdaq Iceland. Fyrsta útgáfa leiðbeininganna kom út árið 2004 og hafa þær verið endurskoðaðar með reglubundnum hætti frá þeim tíma.

Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja eru nú gefnar út í fimmta skipti á Íslandi. Útgáfuaðilar eru líkt og áður Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Nasdaq Iceland. Fyrsta útgáfa  leiðbeininganna kom út árið 2004 og hafa þær verið endurskoðaðar með reglubundnum hætti frá þeim tíma.

Leiðbeiningum um góða stjórnarhætti er ætlað að nýtast sem verkfæri stjórna og stjórnenda til að mæta þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir. Það er jafnframt skoðun útgáfuaðila að með því að fylgja góðum stjórnarháttum megi styrkja innviði fyrirtækja og efla almennt traust gagnvart viðskiptalífinu. Hvort tveggja skiptir sköpum fyrir samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. 

Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á leiðbeiningunum frá 4. útgáfu þeirra. Í endurskoðunarferlinu var lögð áhersla á að gera leiðbeiningarnar skýrari og notendavænni með almennum breytingum á formi, uppsetningu og orðalagi. Þá hefur verið bætt úr ýmsum ágöllum í takt við ábendingar frá notendum leiðbeininganna. Að lokum hafa tilmæli leiðbeininganna verið endurskoðuð með það að markmiði að leiðbeiningarnar henti íslensku atvinnulífi sem best, en séu á sama tíma í samræmi við alþjóðlega staðla og þróun.

Kynningu um endurskoðunarferlið og helstu breytingar frá fyrri útgáfu má nálgast hér.

Samhliða 5. útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja  opnar nýr vefur sem er tileinkaður leiðbeiningunum. Þar er hægt að nálgast rafræna útgáfu af leiðbeiningunum, tæmandi lista yfir breytingar frá fyrri útgáfu og ítarefni tengt stjórnarháttum. Rafræn útgáfa leiðbeininganna er gagnvirk og aðlagar sig að tölvum og snjalltækjum af ólíkum stærðum og gerðum. Það er von útgáfuaðila að með þessari breytingu verði leiðbeiningarnar enn aðgengilegri og notendavænni en áður.

Slóð vefsíðunnar er www.leidbeiningar.is.

Þá má nálgast pdf-útgáfu af leiðbeiningunum hér og jafnframt er hægt að panta prentuð eintök af leiðbeiningunum með því að senda póst á marta@vi.is.

Ensk útgáfa af leiðbeiningunum verður gefin út þriðjudaginn 9. júní. Ensk útgáfa vefsíðunnar verður opnuð samtímis.

Útgáfuaðilar leiðbeininganna vilja koma á framfæri sérstökum þökkum til þeirra fjölmörgu aðila sem veittu aðstoð og ábendingar við endurskoðun leiðbeininganna. 

undefined

Samtök atvinnulífsins