Menntamál - 

14. febrúar 2018

Menntadagur atvinnulífsins 15. febrúar í Hörpu

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Menntadagur atvinnulífsins 15. febrúar í Hörpu

Hvað verður um starfið þitt? er yfirskrift Menntadags atvinnulífsins sem verður haldinn í Hörpu fimmtudaginn 15. febrúar kl. 8.30-12. Dagurinn, sem nú er haldinn í fimmta sinn, er að þessu sinni tileinkaður hlutverki skólakerfis og atvinnulífs við að búa fólk undir þær tæknibreytingar sem standa yfir.

Hvað verður um starfið þitt? er yfirskrift Menntadags atvinnulífsins sem verður haldinn í Hörpu  fimmtudaginn 15. febrúar kl. 8.30-12. Dagurinn, sem nú er haldinn í fimmta sinn, er að þessu sinni tileinkaður hlutverki skólakerfis og atvinnulífs við að búa fólk undir þær tæknibreytingar sem standa yfir.

Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök hafa hvatt fyrirtæki til dáða til að mennta starfsfólk sitt, til dæmis með árlegu vali á menntafyrirtæki ársins. Fjölmörg íslensk fyrirtæki eru til fyrirmyndar þegar kemur að menntun starfsmanna sinna. Menntafyrirtæki síðustu ára – Samskip, Marel, Icelandair hótel og Alcoa fjarðaál – eru þar fremst meðal jafningja. Þann 15. febrúar mun síðan enn eitt fyrirtækið bætast í hóp þessara fyrirmynda í atvinnulífinu.

Alcoa Fjarðaál var valið menntafyrirtæki ársins 2017

Dagurinn er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins. Dagskrá og skráning er hér að neðan - allir velkomnir en vinsamlegast skráið þátttöku.

Menntadagur atvinnulífsins 2018



8.30  Setning
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.                                 

Ávarp mennta- og menningarmálaráðherra. 
Lilja Alfreðsdóttir.                                                                               

Færni er framtíðin: Hvað átt þú eftir að læra? 
Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Burning Glass Technologies                      

Hvað geta fyrirtæki gert? 
Jón Björnsson, forstjóri Festi                                                                             

Amma, hvað er stundaskrá?
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Kara Connect                                              

Hugvekjur
Ragnar Kjartansson, listamaður.
Fida Abu Libdeh, frumkvöðull og eigandi GeoSilica Iceland
Marinó Páll Valdimarsson, teymisstjóri IoT og gervigreindar hjá Marel                  

Menntaverðlaun atvinnulífsins 2018 
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhendir verðlaunin.

10.00  Kaffi og með því. 
Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna sig á Menntatorgi. Óskir um sýningarpláss sendist á sa@sa.is.

10.30  Málstofur

A) Hvað verður um byggðirnar?

Árný Elíasdóttir, ráðgjafi hjá Attentus                                                                 

Birna Kristrún Halldórsdóttir, ráðgjafi hjá Attentus                                                             

Hilmar Janusson, forstjóri Genís                                                        

Ingvi Hrannar Ómarsson, grunnskólakennari                                                      

Sigrún Björnsdóttir, fræðslustjóri Alcoa Fjarðaáls                                                  

Málstofustjóri er Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins   


B) Tæknileg áhrif

Iðnbyltingar og innviðir
Þorvarður Sveinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækja- og þróunarsviðs Vodafone     

Snjallnet - Landsnets

Guðjón Hugberg Björnsson, Landsnet

Snjallsamgöngur (e. Smart Mobility)
Hrönn Sch. Hallgrímsdóttir – Samgönguverkfræðingur - Mannvit                                                               

Framþróun í bolfiskvinnslu
Helgi Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Valka                                                       

Málstofustjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku                                       

                
C) Framlínan - tækni, hæfni og þjónusta

Hæfnikröfur starfa í framtíðinni og raunfærnimat
Erla Ósk Ásgeirsdóttir, forstöðumaður starfsmanna- og gæðasviðs Icelandair hótela

Hugarflug – framtíðarsýn
Hrund Gunnsteinsdóttir, þróunarfræðingur og frumkvöðull                                 

Áhrif tæknibreytinga á framlínustörf
Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania                                                                  

Málstofustjóri er Áslaug Hulda Jónsdóttir, forstöðumaður menntasviðs SVÞ             


12.00 Málstofum lýkur

Allir velkomnir ekkert þátttökugjald. Hægt er að horfa á svipmyndir frá Menntadegi atvinnulífsins 2017 í Sjónvarpi atvinnulifsins.

Smelltu til að horfa.

Sjáumst í Hörpu 15. febrúar!

Umsóknarferli er lokið.





Samtök atvinnulífsins