Fréttir - 

13. nóvember 2015

Kynningar frá ráðstefnu um sæstreng

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Kynningar frá ráðstefnu um sæstreng

Í vikunni fór fram fjölsótt ráðstefna um sæstreng til Evrópu en kynningar frá henni eru nú aðgengilegar á vef SA. Þrír erlendir sérfræðingar fjölluðu um reynslu Norðmanna af lagningu sæstrengja og möguleika Íslands á evrópskum orkumarkaði ásamt því að greina nýjustu strauma og stefnur á markaðnum.

Í vikunni fór fram fjölsótt ráðstefna um sæstreng til Evrópu en kynningar frá henni eru nú aðgengilegar á vef SA. Þrír erlendir sérfræðingar fjölluðu um reynslu Norðmanna af lagningu sæstrengja og möguleika Íslands á evrópskum orkumarkaði ásamt því að greina nýjustu strauma og stefnur á markaðnum.

Íslendingar voru hvattir til að skoða málið af gaumgæfni og móta sér stefnu. En á sama tíma að fara varlega og kynna kosti og galla þess að tengjast orkumarkaði Evrópu fyrir öllum hagsmunaaðilum.

Ef rétt er á málum haldið eru vissulega til staðar mörg tækifæri sem geta verið Íslendingum hagstæð - auk þess sem lagning sæstrengs til Evrópu  myndi auka orkuöryggi þjóðarinnar - en mögulegir gallar þurfa líka að vera uppi á borðinu áður en hægt er að taka ákvörðun.

Kynningarnar má nálgast hér að neðan ásamt upplýsingum um frummælendur ráðstefnunnar sem um 200 manns tóku þátt í. Einnig umfjöllun fjölmiðla um ráðstefnuna. Guðmundur Ingi Ágústsson, forstjóri Landsnets og Benedikt Gíslason, hagfræðingur, tóku einnig þátt í umræðum.

European energy policy and markets - impact on investment decision

undefined

David Bothe er framkvæmdastjóri hjá Evrópuskrifstofu ráðgjafafyrirtækisins Frontier Economics og hefur áralanga reynslu sem hagfræðilegur ráðgjafi í orkugeiranum. Hann býr yfir mikilli reynslu á sviði orkumála, stefnumótunar, markaðshönnunar og markaðsgreininga. Bothe starfaði áður við rannsóknir og ráðgjöf hjá Orkuhagfræðistofnun Kölnarháskóla.

Smelltu til að sækja (PDF)

Connecting Europe through North Sea Interconnectors – experiences for Iceland

undefinedTor Eigil Hodne er framkvæmdastjóri Evrópumála hjá Statnett, norska raforkuflutningsfyrirtækinu. Hodne hefur starfað hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og EFTA) og ennfremur setið í stjórnum Renewables Grid Initiative og Best Grid Initiative um tengingar orkukerfa í Evrópu. Hodne opnaði skrifstofu Statnett í Brussel 2010 og veitir henni forstöðu. Meginverkefni skrifstofunnar eru samskipti við ESB á sviði orkumála, m.a. raforkuflutningar Norðmanna um sæstrengi til Bretlands og Þýskalands.

Smelltu til að sækja (PDF)

The Nordic spot market and effects of European market coupling

undefinedGeir-Arne Mo er viðskiptastjóri stundarviðskipta (Spot Market) hjá Bergen Energi. Hann hefur yfir 15 ára reynslu af evrópskum orkumarkaði þar sem hann vann meðal annars sem miðlari raforku hjá ICAP og sem forstjóri Aquiloz sem sérhæfir sig í ráðgjöf um vindorku.

Smelltu til að sækja (PDF)

Umfjöllun fjölmiðla:

Sæstrengur er umhverfismál – smelltu til að hlusta
Viðtal við  David Bothe og Guðmund Inga Ásmundsson, forstjóra Landsnets á Stöð 2
Viðtal við David Bothe á RUV-sjónvarpi " Of snemmt að fullyrða um arð"

Samtök atvinnulífsins