Vinnumarkaður - 

23. febrúar 2015

Í aðdraganda kjarasamninga 2015

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Í aðdraganda kjarasamninga 2015

Heildarsamtökin á vinnumarkaðnum hafa gefið út nýja skýrslu um launaþróun undanfarinna átta ára og efnahagsforsendur kjarasamninga 2015. Niðurstöður sýna m.a. að ríkisstarfsmenn í stéttarfélögum innan ASÍ hafa hækkað mest í launum á árunum 2006-2014, þar á eftir framhaldsskóla- og grunnskólakennarar, en starfsmenn í aðildarfélögum BSRB hjá sveitarfélögum minnst. Upplýsingar um laun og launaþróun eru sóttar í gagnasafn Hagstofunnar en þær flokkaðar eftir heildarsamtökum launafólks og viðsemjenda þeirra.

Hækkanir hópanna eru nokkuð svipaðar í heild þegar litið er yfir tímabilið 2006-2014 en tímasetning þeirra mismunandi. Í öllum heildarsamtökum og samningssviðum hækkuðu laun kvenna meira en karla á tímabilinu og launadreifing varð jafnari. Laun skrifstofufólks og verkafólks hækkuðu mest en stjórnenda minnst.

Smelltu til að sækja (PDF)

Samtök atvinnulífsins