Fréttir - 

19. nóvember 2018

Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2018

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2018

Hvatningarverðlaun jafnréttismála verða afhent mánudaginn 19. nóvember á morgunfundi um jafnréttismál í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 8.30-10. Efni fundarins er vinnustaðamenning og jafnrétti á vinnumarkaði.

Hvatningarverðlaun jafnréttismála verða afhent mánudaginn 19. nóvember á morgunfundi um jafnréttismál í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 8.30-10. Efni fundarins er vinnustaðamenning og jafnrétti á vinnumarkaði.

Allir eru velkomnir en vinsamlegast skráið þátttöku hér að neðan.

DAGSKRÁ

Setning
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands

Áhrif #metoo - breytingar og áskoranir
Ásta Jóhannsdóttir, nýdoktor á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands

Fótbolti og femínismi
Magnús Orri Schram, ráðgjafi

Handhafi Hvatningarverðlauna jafnréttismála 2017
Stefán Sigurðsson, forstjóri Sýnar.

Hvatningarverðlaun jafnréttismála
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunar, afhendir verðlaunin.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, er fundarstjóri.

Að verðlaununum standa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök atvinnulífsins,  Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð og Háskóli Íslands en sérstakur samstarfsaðili verkefnisins er UN Women á Íslandi.

Umsóknarferli er lokið.

Samtök atvinnulífsins