Samkeppnishæfni - 

15. maí 2018

Athugasemdir við útvíkkað hlutverk Íbúðalánasjóðs

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Athugasemdir við útvíkkað hlutverk Íbúðalánasjóðs

Samtök atvinnulífsins hafa skilað umsögn um drög að frumvarpi um húsnæðismál sem nú liggur fyrir Alþingi. Með frumvarpinu er ætlað að útvíkka hlutverk Íbúðalánasjóðs á sviði greininga- og stefnumörkunar en látið vera að taka afstöðu til framtíðarhlutverks sjóðsins þegar kemur að lánaviðskiptum.

Í umsögn sinni gera samtökin alvarlegar athugsemdir við þessa þróun, enda eru engar haldbærar ástæður fyrir því að Íbúðalánasjóður sinni þessu hlutverki. Fjölmargir aðilar gefi reglulega út greiningar á húsnæðismarkaði og sinni því hlutverki vel. Það dragi einnig úr trúverðugleika stofnunarinnar að henni sé nú samtímis ætlað að vera ráðherra til ráðgjafar um mótun húsnæðisstefnu og stunda lánaviðskipti í samkeppni við banka og lífeyrissjóði. Auk þess séu stofnuninni veittar alltof víðtækar heimildir til að afla ýmiss konar upplýsinga og gagna frá öðrum stofnunum sem standist vart lög.

SA leggja áherslu á að haldið verði fremur áfram með þá vinnu að endurskoða starfsemi Íbúðalánasjóðs í heild sinni. Það sé samtal sem þurfi að taka, sérstaklega varðandi lánahlutverk sjóðsins. Áður en það hafi verið gert sé engin ástæða til að sjóðnum verði veitt frekari verkefni á sviði greininga og stefnumörkunar.

Sjá nánar:

Umsögn SA um Íbúðalánasjóð

Samtök atvinnulífsins